Úrval - 01.04.1954, Page 109

Úrval - 01.04.1954, Page 109
Á VALDI SKILRlKJANNA 107 sem hefur þekkt yður lengi — segjum fimmtán ár eða svo.“ „Hvernig ætti ég að muna þau, herra? Þetta er allt óbrot- ið alþýðufólk. Verkafólk. Fólk, sem flytur sig til eftir því sem vinna býðst. Ég veit ekki hvað það heitir réttu nafni, aðeins hvað það var kallað.“ „Hafið þér heimilisfang ?“ „Nei, herra. Ég hafði ekki efni á að leigja mér herbergi. Skipin «ru heimili mitt, eins og flestra sjómanna. Ef ég verð að vera í landi um tíma, bý ég á sjó- mannaheimilum eða ódýrum gistihúsum nálægt höfninni.“ „Er móðir yðar enn á lífi?“ „Það held ég. En ég er ekki viss um það.“ „Þér eruð ekki viss um það?“ „Hvemig get ég verið viss um það, herra? Meðan ég var til sjós, flutti hún oft. Kannski er hún gift einhverjum, sem ég þekki ekki. Sjáið þér til, herra, hjá okkur verkafólkinu — og sjómönnunum, getur ekki allt verð jafn fínt og fágað og hjá þeim ríku, sem eiga falleg hús og peninga í bankanum, og hafa síma og heilan hóp af þjónustu- fólki. Fyrst verðum við að fá okkur vinnu, svo getum við kannski farið að hugsa um ann- að. Að hafa vinnu þýðir að fá að borða. Ef við höfum ekki vinnu, erum við eins og bóndi sem á enga jörð.“ „Hafið þér nokkurn tíma kos- ið?“ „Nei, herra. Ég hef aldrei mátt vera að því að skipta mér af stjórnmálum." „Eruð þér þá friðarsinni?“ „Ha?“ „ Ja, ég á við að þér séuð kom- múnisti. Þér viljið ekki berjast fyrir föðurlandið.“ „Það hef ég aldrei sagt, herra. Ég held að sjómaður, sem strit- ar eins og ég, sé alltaf að berj- ast fyrir land sitt. Land okkar væri ekki voldugt, ef það ætti enga sjómenn og enga verka- menn.“ „Sögðust þér ekki hafa verið skráður í New Orleans?" „Jú.“ „Þá eruð þér auðvitað með- limur í -— hvað heitir það nú aftur? Já, í Alþjóðasambandi iðnverkamanna. Syndikalismi og þessháttar.“ „Nei, herra. Ég hef aldrei heyrt það nafn.“ „En þér sögðust hafa verið skráður í New Orleans.“ „Já.“ „Aldrei í Los Angeles?" „Nei, herra.“ Hann horfði lengi á mig. Hann man ekki eftir fleiri spurning- um. Síðan segir hann: „Ég get ekki látið yður fá vegabréf. Mér þykir það leitt.“ „Hversvegna ekki?“ „Hvar eru sannanir yðar? Það er engin sönnun, þó að þér seg- ist vera amerískur borgari. Per- sónulega er ég þeirrar skoðun- ar, að þér séuð Ameríkani. En atvinnumálaráðuneytinu í Wash- ington, — og ég er ábyrgur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.