Mosfellingur - 08.06.2023, Blaðsíða 26
- Mosfellingurinn Valur Oddsson26
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Gosið á Heimaey í Vestmannaeyjum
hófst aðfaranótt 23. janúar 1973 og
stóð yfir í rúmlega fimm mánuði.
Hraun og aska eyðilögðu þriðjung byggð-
arinnar eða tæplega 400 hús og byggingar.
Flestir íbúarnir flúðu til meginlandsins
og biðu milli vonar og ótta eftir því hvað
framtíðin bæri í skauti sér.
Einn af þeim sem flutti með fjölskyldu
sína er Valur Oddsson, þau fluttu ásamt
fleirum íbúum í Mosfellssveit. Hann seg-
ist verða ævinlega þakklátur fyrir þær
góðu móttökur sem Vestmannaeyingum
voru sýndar hér.
Valur er fæddur í Vestmannaeyjum 27.
júlí 1942. Foreldrar hans eru Magnea Lov-
ísa Magnúsdóttir húsmóðir og verkakona
og Oddur Sigurðsson skipstjóri.
Bræður Vals eru Magnús f. 1934 og Sig-
urður Pétur, ávallt kallaður Bói, f. 1936 en
þeir eru báðir látnir.
Ólst upp við frjálsræði
„Ég ólst upp í Vestmannaeyjum og það
var gott að alast upp þar við algjört frjáls-
ræði, einu skyldurnar voru að koma inn á
réttum tíma í mat og kaffi.
Fjöllin og bryggjan heilluðu mest, við
vinirnir tókum oft árabáta traustataki og
rérum út að Löngu, eins mokuðum við
flæðigarða í fjörunni og biðum eftir að sjór-
inn flæddi inn. Við veiddum einn og einn
smáufsa á bryggjunni og stundum marhnút
en það þótti mikil hneisa, maður reyndi að
láta lítið á því bera,“ segir Valur og brosir.
„Lífið á eyjunni breyttist alltaf í byrjun
janúar þegar um 2.000 sjómenn og verka-
fólk komu á vertíð. Þá kom fleira fólk inn
á heimilið og ættingjar ofan af landi komu
gjarnan í kaffi á frídögum.“
Beitti bjóð á línu
„Ég gekk í barna- og gagnfræðaskól-
ann og mér leið ágætlega í skóla en hann
þvældist pínu fyrir mér þegar líða tók á ver-
tíðirnar. Þá átti maður nefnilega möguleika
á að beita eitt og eitt bjóð á línu
og fá borgað fyrir það, svo þurfti
maður að fara á bryggjuna til að
fylgjast með hvernig fiskaðist.
Fyrsta vinnan mín var að
breiða saltfisk, þá var ég 11 ára, ég fór sjálf-
ur og bankaði upp á hjá verkstjóranum til
að fá vinnu. Við krakkarnir unnum með
eldri borgurum sem voru hætt að vinna en
fóru í þessa íhlaupavinnu, þau leiðbeindu
okkur. Þetta var einhver besta unglinga-
vinna sem hægt var að hugsa sér. Þegar
þessu lauk fór ég í frystihúsin, það fannst
mér drepleiðinleg vinna.“
Aðstaðan mjög bágborin
„Árið 1958 fór ég á sjó, réri til að byrja
með með Bóa bróður og pabba á vertíðum
og þess á milli var ég á Halkion 46, 100 og
250 tonna, eða fram til ársins 1963.
Á þessum tíma var öll aðstaða á bátunum
bágborin, hreinlætisaðstaðan engin og fata
til að gera þarfir sínar í. Í lúkarnum sváfu
menn í kojum í öllum fötunum og þar var
líka eldað og borðað. Með tímanum batn-
aði aðstaðan, það var komið
klósett og hvalbakur sem skýldi
okkur við vinnuna.
Á þessum árum tók ég þátt í
að bjarga 18 mönnum, tveimur skipshöfn-
um í tveimur sjóslysum, en því miður fórust
tveir í öðru slysinu.
Árið 1963 byrjaði ég á Ísleifi 4 og síðar á
Ísleifi, það aflaðist einhver ósköp á þessum
skipum, síldin var í hámarki fyrir austan.
Þetta var minn skemmtilegasti tími á sjó
með óskaplega góðri áhöfn sem enn heldur
hópinn. Ég var á sjó fram undir 1970 en þá
fór ég að læra húsasmíði í Iðnskólanum í
Vestmannaeyjum.“
Þyngstu spor sem ég hef stigið
„Árið 1968 féll Bói bróðir milli skips og
bryggju í Aberdeen en hann var á leið með
skipið sitt í vélarskipti til Noregs. Pabbi var
til sjós með Bóa þegar slysið varð en það
liðu nokkrar vikur þangað til hann fannst
látinn. Þetta var hræðilegur tími, algjör
óvissa og það var reynt að halda í vonina
fram á síðustu stundu.
Bói var hvers manns
hugljúfi, giftur og átti þrjá
drengi sem þarna voru 6, 7
og 8 ára. Amma okkar lést
á meðan leitað var að Bóa
og þau voru jörðuð sam-
an. Það voru þung spor,
líklega þau þyngstu sem
ég hef stigið,“ segir Valur
alvarlegur á svip.
Stóðu uppi heimilislaus
Eiginkona Vals er Kristín
Stefánsdóttir fyrrv. banka-
starfsmaður, hún lést árið
2015. Dætur þeirra eru
Ingibjörg f. 1970 og Ásdís f. 1976.
„Við Kristín kynntumst um borð
í Gullfossi árið 1965, hún var úr
Reykjavík en átti ættir að rekja til
Eyja. Eftir að við giftum okkur þá
bjuggum við okkur heimili í Vest-
mannaeyjum sem síðar fór undir
hraun í gosinu 1973. Þá stóðum við
hjónin uppi heimilislaus ásamt dóttur
okkar sem var þriggja ára og það var ekkert
annað í stöðunni en að flytja upp á land.
Fluttu í Mosfellssveit
„Sveitastjórn Mosfellshrepps með Jón á
Reykjum og Hrólf Ingólfsson í fararbroddi
buðu okkur sem misst höfðum húsin okkar
lóðir við Arnartanga. Verkið var boðið út og
sama fyrirtækið byggði flest einbýlishúsin
sem þar standa. Þegar kom að því að borga
lóðirnar var ekki búið að greiða út bætur úr
Viðlagasjóði. Ólafur Helgason bankastjóri
Útvegsbankans í Eyjum lánaði öllum án
þess að hafa veð, sem er væntanlega fá-
heyrt. Arnartanginn var því nokkurs konar
útibú frá Vestmannaeyjum.
Það var mjög vel tekið á móti okkur öll-
um hér í Mosfellssveit og við hjónin flutt-
um í Arnartanga 1975. Hér bjuggu um 1.100
manns og okkur leið eins og við værum
flutt á hjara veraldar. Við náðum þó fljótt að
samlagast bæjarbragnum og ég gæti hvergi
annars staðar hugsað mér að eiga heima,
en ég fer líka mikið á mínar æskuslóðir.
Dætur mínar og fjölskyldur búa hér líka og
við höldum vel hvert um annað.
Eftir að ég flutti upp á land þá fór ég
að vinna við smíðar, hóf síðan störf hjá
Borgarspítalanum þar sem ég starfaði í 30
ár með góðum félögum. Síðustu þrjú árin
áður en ég fór á eftirlaun starfaði ég hjá
framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar og
sinnti viðhaldi á eignum borgarinnar.“
Góðar stundir í Suðurey
„Lundaveiði hefur fylgt mér nánast alla
ævi,“ segir Valur aðspurður um áhuga-
málin. „Ég fór fyrst í útey 5 ára. Ég veiði
í Suðurey og það er mikill félagsskapur í
kringum veiðina, sá góði hópur hefur gefið
mér afskaplega mikið.
Ég hef spilað golf í 30 ár og svo byrjaði ég
að stunda líkamsrækt fyrir nokkrum árum.
Ég les líka mikið og nýti mér Storytel inn á
milli. Ég var „forseti“ Gufufélags Mosfells-
bæjar í tuttugu ár eða svo, það var afskap-
lega skemmtilegur félagsskapur. Svo sat ég í
byggingarnefnd Mosfellsbæjar í fjögur ár og
í yfirkjörstjórn í 16 ár fyrir Samfylkinguna
þar sem ég hef hitt fyrir margt vandað og
gott fólk sem hefur reynst mér vel.
Fyrir utan þessi hefðbundnu áhugamál er
ég mjög áhugasamur um fjölskylduna mína
og vil gjarnan verja sem mestum tíma með
þeim og mínum mörgu og góðu vinum,“
segir Valur og brosir er við kveðjumst.Fjölskyldan árið 2012, Ásdís, Kristín, Valur og Ingibjörg.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Valur Oddsson húsasmiður flutti upp á land eftir gosið í Eyjum 1973
Þetta var hræðilegur tími,
algjör óvissa og það var
reynt að halda í vonina fram
á síðustu stundu.
HIN HLIÐIN
Eftirminnilegasta ferðalagið? Þegar við
hjónin fórum í brúðkaupsferð tíu árum eftir
að við giftum okkur, til Portoroz í gömlu
Júgóslavíu.
Uppáhaldsmatur? Reyktur lundi.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert? Að vera úti í Suðurey með
góðum félögum.
Hvað keyptir þú síðast fyrir heimilið?
Eldhúsvog.
Draumaborgin? París.
Hvað myndi ævisaga þín heita?
Í sannleika sagt.
Hverju myndir þú breyta á Íslandi ef
þú ættir þess kost? Það er af mörgu
að taka en ég myndi byrja á að breyta
skerðingum á ellilífeyri.
Hver kom þér síðast á óvart og
hvernig? Steinunn Edda, langafastelpan
mín sem fæddist í desember, hvað hún
færir mér mikla hamingju.
Mjög vel tekið á móti okkur
með lunda í suðurey á fermingardaginn 1956
fjölskyldan í eyjum á 80 ára afmæli vals