Muninn

Volume

Muninn - 01.09.2014, Page 21

Muninn - 01.09.2014, Page 21
Minni kvenna Það hefur varla farið framhjá neinum að í október síðastliðnum varð Malala Yousafzay yngsti viðtakandi í gjörvallri sögu friðarverðlauna nóbels. Malala er 17 ára pakistönsks baráttuhetja. Ég er 18 ára íslenskur mömmustrákur. Ég fæ að minnsta kosti pínu minnimáttarkennd þegar ég ber afrek mín saman við afrek hennar. Þegar hún var 11 ára bloggaði hún undir dulnefni fyrir BBC. Þegar ég var 7 ára lenti ég í öðru sæti í öskudagsbúningakeppni á Svalbarðseyri. Ég mætti sem töffari. í október 2012 var Malala skotin þrívegis af herskáum talibönum og í kjölfarið barðist hún fyrir lífi sínu og hefur síðan þá náð ótrúlegum bata. í maí 2011 brákaði ég á mér handlegginn í skotbolta og þurfti að vera í gipsi í heila viku. Ég náði sömuleiðis undraverðum bata á endanum. En það sem ég er að reyna segja er að Malala Yousafzayer vægast sagt mögnuð manneskja. Og það er ekki bara baráttuandi og eiginleikinn til að ná skjótum bata sem við eigum sameiginlegt. Ég og hún deilum nefnilega þeirri skoðun að bæði kynin eigi að fá nákvæmlega sömu tækifæri í lífinu. Og það er kannski þessvegna sem mér gekk brösulega, að minnsta kosti til að byrja með, að semja þessa ræðu. Ég gæti tiltölulega auðveldlega fylgt í fótsport margra forvera minna sem flestir hafa sagt eitthvað á þessa leið: “Elvað er frétta með það að stelpur fari alltaf í hópum saman á klósettið? Hvað eruð þið að gera þarna .ss mm? og afhverju eru þið alltaf svona pirraðar? en — hey takk fyrir að þola okkur, ég elska ykkur” En raunin er sú að það er ekkert þreyttara en þessi klisjuofnotkun. Fátt fer meira í taugarnar á mér en þessi endalausa þörf samfélagsins fyrir að setja kynjastimpla á allt. Ekki bara á föt, leikföng og aðra ^ efnislega hluti, heldur á tilfinningar og framkomu líka. | Þá á ég sérstaklega við allar þessar gömlu, asnalegu klisjur sem ég nefndi áðan um að einhverskonar ^ . hegðun tilheyri þessu eða hinu kyninu, t.d. að strákar 'iÉY - megi ekki sýna tilfinngar. EF ÉG VIL FARA AÐ GRÁTA ÞEGAR BEYONCE TEKUR SEINASTA HÁA TÓNINN f HALO, EÐA ÞEGAR CARRIE OG AIDAN HÆTTA SAMAN í SERÍU 3 AF SEX AND THE CITY ÞÁ MÁ F.G ÞAÐ BARA. (týpísk Carrie). Og að sama skapi, ef einhver kona vill segja að Liverpool hafi verið að gera mistök með því að borga 16 milljónir fyrir Balotelli, þá er henni það blessunarlega velkomið. En það sem við skulurn öll reyna að forðast er að nota asnalega frasa eins og “hættu að láta eins og algjör stelpa” eða “taktu þessu eins og maður”. Það er svo fáránlegt að slíkt skuli viðgangast enn í dag. Innihald þessarar ræðu er því eins og fyrr segir frekar óvenjulegt, miðað við ræður fyrri ára og fyrirmælin sem ég fékk, en það er bara ekki séns að ég taki þátt í því að styðja við óhollar staðalímyndir um hegðun kynjanna. Ég þekki stráka sem hafa eytt heilu dögunum í náttubuxunum einum fata að borða Brynjuís og horfa á Grey's effir sambandsslit. Ég þekki líka alveg stelpur sem taka meira í bekk en ég. Ókei, slæmt dæmi, það er reyndar bara af því að ég er sulta, en það breytir því ekki að það er ekkert að hægt að kasta einhverju neti yfir heilt kyn og ætlast svo bara til þess að við getum sagt til um nákvæmt hegðunarmynstur þeirra. Mér finnst þetta ekkert sérstaklega flókið. Við erum öll mismunandi, við búum öll yfir flóknum tilfinningum og hugsunum. Það að ætlast til þess að við högum okkur nákvæmlega eins og kynsystur okkar eða -bræður er barnalegt viðhorf. Að draga ályktanir útfrá kyni, eins og t.d. að engin stelpa kunni að bakka í stæði bara útaf því að mamma þín er léleg í því, getur nefnilega verið alveg jafn heimskulegt og að draga ályktanir útfrá kynþætti, kynhneigð eða stjörnumerki þessvegna. Hérna er t.d. dæmi um stjörnuspá fyrir einhvern fæddan 20. apríl: Þegar tekið er tillit til fæðingardags þíns er það á hreinu að þú ert ævintýragjarn, bjartsýnn og Ijúfur persónuleiki, það kemur því ekki á óvart að þú býrð yfir óbilandi jákvæðni. Hitler var fæddur 20. apríl. ý Þið sjáið hvað ég er að meina, það er ekki mark á þessu takandi, ekki frekar en á flestum staðalímyndum sem snúa að hegðun kynjanna. Þessi heíð, að hafa Minni karla og Minni kvenna, er á vissan hátt úrelt, að minnsta kosti í þeirri mynd sem hefur viðgengist undanfarið. Það að skjóta bara á yfirborðskennda eiginleika hins kynsins er löngu orðið J: þreytt- ^vo ég ætla ekki einu sinni að leggjast svo lágt. Konur: Þið eruð margar hverjar frábærar, yndislegar ■ og ljúfar. Þið eruð líka margar hverjar alveg ógeðslega leiðinlegar. En fyrir mér eru þið yndislegar manneskjur, já eða þá leiðinlegar manneskjur. Það skiptir ekki öllu, það sem skiptir höfuðmáli er að þessir eiginleikar ykkar gjörsamlega óháðir því hvort þið fæddust með typpi eða ekki. Við erum öll svo ólík, getum við vinsamlegast hætt að alhæfa hitt og þetta um kynin, það er löngu kominn tími til að hætta því. Gangið hægt um gleðinnar dyr, takk kærlega fyrir mig.

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.