Muninn

Volume

Muninn - 01.09.2014, Page 48

Muninn - 01.09.2014, Page 48
KRÍTARSÖGUR Eina nóttina hittust þrjú ungmenni á hótelinu eftir djammið og öll búin að upplifa skrautlegt kvöld. Ákváðu þau að djammið væri samt ekki búið enda klukkan bara 5 og ákváðu að fara þrjú saman aftur í bæinn. Einhvern veginn fór það þannig að þau stigu upp í leigubíl og fóru á umdeildann stað lengst í burtu frá hótelinu. Þegar komið var á staðinn fenngu ungmennin bakþanka og languðu ekki inn á staðinn. Leigubílstórinn skildi ekkert í þeim og sagði þeim að þau þyrftu ekki að hræðast neitt. Ungmennin voru farin að vera hrædd við leigubílstjórann og hvað hann var ákafur og gátu ekki hugsað sér að fara aftur upp í bílinn hans. Eftir að hafa labbað í burtu til að leita að öðrum leigubíl eða öðrum stað sáu þau að það væri nákvæmlega ekki neitt í kringum þennan stað og enginn umferð svona seint um nóttina svo þau löbbuðu aftur til baka á staðinn. Endar sagan síðan þannig að ungmennin enduðu á því að fara inn á umdeilda staðinn með leigubílstjóranum sjálfum því hann vildi ólmur fá að skutla þeim síðan aftur til baka eftir djammið.. Ungmennin trúðu því valla að leigubílstjórinn hafi ákveðið að leggja bílnum og labba með þeim inn og fannst þeim þetta virkilega óþægilegt en þegar leigubílstjórinn ákvað að fara á barinn laumuðust ungmennin út stuttu seinna án þess að leigubílstjórinn tæki eftir því og stökkva upp í annan leigubíl sem akkurat var að keyra fram hjá staðnum og fara heim. VJamall krúttlegur dyravörður á skemmtistaðnum Tropicana hrósaði einni ákveðni stúlku í MA alltaf fyrir smekklegt fataval þegar hann sá hana koma til að skemmta sér á Tropicana sem voru ófá kvöld. Mynduðu þau með sér gott vina samband og ræddu mikið um tísku og hvernig viðeigandi væri að klæða sig á djamminu. A Villa Mercedes skemmtistaðnum sátu nokkrir krakkar í sófum og voru að spjalla. Allt í einu endaði það þannig að í einum tveggja manna sófa láu alls 6 mans í einni hrúu, glerbrot útum allt og blæddi úr hendini á einum stráknum sem klíndi síðan óvart öllu blóðinu á vínkonu sína sem sat með hann í fanginu. í því mómenti ákvað annar strákur að skríða yfir alla krakkana og fara í sleik við strákin sem hafði skorið sig á glerbrotinu. Effir sleikinn var ákveðið að fara inn á bað með strákin því ekki hætti að blæða úr sárinu og finna starfsmann til að setja plástur á blæðandi sárið. Hlúði starfsmaðurinn fagmannslega að sárum stráksins inn á baðherberginu meðan vinirnir stóðu áhyggjufull í kring og labbaði síðan strákurinn alsæll aftur á djammið með klósettpappír vafðan utan um hendina feStan með hárteyju. Titt gott kvöld var hinn fallegi 4.B að fara borða saman, einn stráksauli í bekknum hafði rétt fyrir akveðið að kikja aðeins 1 sjoinn og nældi sér þannig í eitt skemmtilegt ígulker í fótinn. Á meðan bekkurinn át svo góðan mat og hafði gaman sat hann í smá fjarlægð frá okkur á deiti með manninum sem átti barinn sem var að skoða á honum fótin. Hver veit nema þeir hafi síðan dottið í hellaðan sleller.. nee ég segi svona ;)

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.