Aldan - 17.04.2018, Page 6

Aldan - 17.04.2018, Page 6
 6 17. apríl 2018 ALLT HEFST MEÐ Kolmunnaveiðin fer vel af stað í færeysku lögsögunni og fjölgar íslenskum skipum þar, m.a. frá HB-Granda, Samherja og Skinney- Þinganesi. Bjarni Ólafsson NK fékk 580 tonn í fyrsta holi en togað var í 13 tíma. Hákon EA fékk um 500 tonn eftir 16 tíma og Börkur NK fékk 600 tonn eftir 15 tíma. Um er að ræða fínustu veiði og það tekur væntanlega ekki langan tíma að fá í skipin ef framhald verður á henni. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki NK, að kolmunnaveiðarnir byrji vel og fyrr en á sama tíma í fyrra. , ,Fyrsta skipið á miðin núna var Hoffell SU frá Fáskrúðsfirði og þeir fylltu í fjórum holum. Við vorum að klára að dæla úr öðru holinu okkar, togað var í 12 tíma og það gaf 460 tonn þannig að við erum komnir með tæp 1.100 tonn. Það er ekkert sérstaklega mikið að sjá hérna, en það er ágætis líf á kafla og það gefur vel í trollið. Menn hljóta að vera ánægðir með þessa byrjun á veiðunum,“ sagði Hjörvar. Norskir bátar hafa að undanförnu landað samtals 11 þúsund lestum af kolmunna hjá Loðnuvinnslunni á Samfellt 50 ár hjá Landhelgisgæslunni Föstu daginn 13. apríl sl. kom Sigurður Steinar Ketils son skip- herra á v/s Þór úr sinni síðustu varð skips ferð eftir 50 ára starf hjá Land helgis gæslunni. Tekið var á móti varð skipinu með við höfn þegar það lagðist á bryggju og í kjöl farið um borð var hann heiðraður af for stjóra Land- helgis gæslunnar fyrir ó eigin gjarnt starf og Faxa flóa hafnir færðu honum gjöf og þakkir fyrir sam starfið. Sigurður Steinar á að baki far sælan og við burða ríkan feril hjá gæslunni. Hann byrjaði sem há seti, lauk svo námi úr Stýri manna skólanum í Reykja vík og var skip stjórnar maður á varð skipum og í loft förum í fjölda ára en fast ráðinn skip herra varð hann fyrir u.þ.b. 30 árum. Þá hefur hann lokið frekara námi meðal annars frá Naval War College í Banda ríkjunum og sér fræði námi frá R hodes A cademy í haf réttar sátt mála Sam einuðu þjóðanna. Hann hefur gegnt fjölda starfa innan gæslunnar, meðal annars sem yfir maður að gerða. Þá hefur hann lagt lóð sitt á vogar- skálarnar í mennta- og þjálfunar- málum Land helgis gæslunnar. Störf hans hafa á vallt ein kennst af mikilli hollustu og trúnaði við Land helgis- gæsluna. Hann hefur stjórnað og tekið þátt í fjölda verk efna á vett vangi leitar og björgunar, siglt í öllum veðrum oft við erfiðar og krefjandi að stæður, tekið þátt í öllum helstu á skorunum sem Land helgis gæslan hefur staðið frammi fyrir og á vallt leyst öll sín verk af vand- virkni, út sjónar semi og metnaði. Sigurður Steinar Ketilsson skipherra ásamt fjölskyldumeðlmum á dekki v/s Þórs. Fáskrúðsfirði. Hefur þessi afli farið í bræðslu hjá fyrirtækinu. Samningar við Færeyinga Íslensk og færeysk stjórnvöld hafa náð samningum um fiskveiðiheimildir Færeyinga innan íslenskrar lögsögu fyrir þetta ár og um gagnkvæman aðgang að veiðum í lögsögu beggja fyrir norsk-íslenska síld og kolmunna á árinu 2018. Samkvæmt samkomulaginu hafa íslensk uppsjávarveiðiskip hafið veiðar í færeyskri lögsögu. Samið var um gagnkvæman aðgang til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld með sama hætti og á liðnu ári með þeirri breytingu að hámarksfjöldi íslenskra skipa sem getur verið á kolmunnaveiðum í einu í færeyskri lögsögu fjölgar úr 12 í 15. Samið var um að Færeyingar geti veitt loðnu við Ísland sem nemur 5% af ákvörðuðum heildarafla í loðnu á vertíðinni en að hámarki 25.000 tonn i stað 30.000 tonna sem var áður. Áfram eru takmarkanir á heimildum Færeyinga til að verka loðnu um borð eða landa í Færeyjum til manneldis. Eftir 17. febrúar verða færeysk skip að landa a.m.k. 67% sínum í íslenskum höfnum. Heimildir Færeyinga til veiða á botnfiski verða þær sömu í ár og þær voru 2017 eða 5.600 tonn en hámark fyrir þorskveiði er áfram 2.400 tonn og 650 tonn fyrir keilu innan þessa heildarmagns. Ísland mun áfram hafa heimild til að veiða 1.300 tonn af makríl sem eru aflaheimildir frá Færeyjum í færeyskri lögsögu en Ísland afsalar sér 2.000 tonnum af Hjaltlandssíld sem lengi hafði verið í samningi þjóðanna, án þess að Ísland hafi nýtt sér um árabil. Þjóðirnar stefna að því að hefja vinnu við gerð rammasmnings milli landanna um fiskveiðimál sem fyrst með það að markmiði að þeirri vinnu verði lokið fyrir 1. september á þessu ári. Kolmunnaveiðar byrja vel í færeyskri lögsögu

x

Aldan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.