Austurland - 08.11.2018, Blaðsíða 9

Austurland - 08.11.2018, Blaðsíða 9
9 8. nóvember 2018 Gisting fyrir tvo í eina nótt með morgunverði og jólahlaðborði á aðeins 17.700 kr.- á mann Jólahlaðborð verður allar helgar frá 16. nóv. til 15. des. Pantanir og fyrirspurnir í síma 460 2000 eða kea@keahotels.is Gisting og jólahlaðborð Hótel Kea - Hafnarstræti 87 - 89 - 600 Akureyri - S: 460 2000 - kea@keahotels.is Alz heimer sam tökin á Ís landi er með svo kallað tengla víðs vegar um landið sem miðla upp lýsingum til þeirra sem þangað leita, sem í flestum til fellum eru að­ standur þeirra sem greinst hafa með alz heimer eða grunur er um að séu með alz heimer á byrjunar stigi eða ein­ hver annan heila bilunar sjúk dóm, s.s. Lewy sjúk dóm eða æða heila bilun. Á al­ þjóð lega Alz heimer deginum í haust var haldin ráð stefna sem nefndist ,,Hvað er heila bilun? For seti Ís lands, hr. Guðni Th. Jóhannes son, flutti á varp og erindi fluttu Helga Eyjólfs dóttir öldrunar­ læknir, hjúkrunar fræðingarnir Guð ný Val geirs dóttir og Guð laug Guð munds­ dóttir og Margrét Alberts dóttir fé lags­ ráð gjafi.Sig rún Wa age leikari flutti brot úr leik ritinu ,,Ég heiti Guð rún" sem flutt hefur verið í Þjóð leik húsinu. Halla Dröfn Þor steins dóttir hjúkrunar fræðingur er tengill Alz­ heimer sam takanna á Seyðis firði. Hún var spurð hvað hlut verk tengill hefði. ,,Við veitum upp lýsingar um sam­ tökin og hvaða að stoð ættingjar eða skyld menni geta fengið, en svo lítið byggist þetta á því hvar að standandinn er staddur í ferlinu, þ.e. hversu veikur hann er orðinn og í sumum til fellum er þetta að eins grunur um að að standinn sé með alz heimer. Þá liggur fyrst fyrir að við komandi fái greiningu. Tenglar leið beina því fólki hver eru næstu skrefin, og réttur fólks, ef stað fest er að um alz heimer er að ræða. Stundum er reyndar um annan heila bilunar sjúk­ dóm að ræða.,“ segir Halla Dröfn. - Hver er réttur fólks með alz- heimer? ,,Fólk á rétt á alls konar þjónustu sem það veit ekki að það á rétt á og því síður hvert það á að leita til að öðlast þá þjónustu. Fyrst skrefið er oft að heim sækja fólk, sjúk lingum finnst oft að þetta sé allt í lagi, en að standur eru oft nærri því að gefast upp, hafa kannski verið með við komandi mann­ eskju með alz heimer nánast í gjör­ gæslu árum saman. Það getur oft verið mjög erfitt og bindandi. Sjúk lingurinn hefur á hrif allt í kringum hann, um­ hverfið, ættingja og jafn vel heilu fjöl­ skyldurnar.“ - Er mögu leiki fyrir þá sem búa á Austur landi og greinast með Alz heimer að komast á hjúkrunar heimili í sinni heima byggð, eða a.m.k. á Austur landi? ,,Eftir vistunar mat er málið kannað og metið af til þess hæfu hjúkrunar fólki. Það hefur komið fyrir að fólk sem býr á höfuð borgar svæðinu en er að austan hefur fengið vistun á Austur landi. Lengi vel vvoru einu lokuðu heila­ bilunar deildirnar utan höfuð borgar­ svæðisins sem tóku við alz heimer­ sjúk lingum á Akur eyri og Seyðs firði. Auk Fossa hlíðar á Seyðis firði er fyrir austan hjúkrunar heimilið Dyngja á Egils stöðum og og Hjúkrunar heimilið Huldu hlíð á Eski firði. Stundum kemur fólk í hvíldar inn lögn í tvær til þrjár vikur sem auð vitað nýtast bæði við­ komandi sjúk lingi og að stand endum, sem í mörgum til fellum hafa verið með sjúk linginn í gæslu. Þá þekkir fólkið staðinn ef það kemur síðar til varan legrar dvalar á við komandi heila­ bilunar deild,“ segir Halla Dröfn Þor­ steins dóttir. Alz hei mer kaffi er á Höfn Horna­ firði, Ekru salnum Víkur braut 30, 15. nóvember nk. kl. 17:00 HVAÐ ER HEILABILUN? Halla Dröfn Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur. Erindi fluttu á ráðstefnunni ,,Hvað er heilabilun“ þær Helga Eyjólfsdóttir öldrunarlæknir, hjúkrunarfræðingarnir Guðný Valgeirsdóttir og Guðlaug Guðmundsdóttir og Margrét Albertsdóttir félagsráðgjafi. Aðeins tveir Austfirðingar sitja í miðstjórn ASÍ Þing Al þýðu sam bands Ís lands fór fram í síðasta mánuði. Drífa Snæ dal var kjörinn for seti for seti ASÍ og hafði sigur á Sverri Alberts syni, fram kvæmda stjóra AFS starfs greina fé­ lags. Til mið stjórnar náðu að eins tveir Aust firðingar kjöri, Kristín Björns dóttir Egils stöðum sem er VR fé lagi sem aðal­ maður og Hjör dís Þóra Sigur þórs dóttir, for maður AFS í vara stjórn. 9 af 15 sem kosnir voru í mið stjórn eru þar nýir aðilar og það hlýtur að vekja nokkurn ugg, auk þess sem for seti og báðir vara­ for setar eru nýir. Gylfi Arn björns son, frá farandi for­ seti ASÍ, sagði m.a. við upp haf þess að ís lenskt sam fé lag stæði ekki einungis frammi fyrir þeirri á skorun að jafna hlut kynjanna í sam fé laginu heldur stæði Al­ þýðu sam band Ís lands og sam fé lagið allt einnig frammi fyrir miklum á skorunum nú þegar undir búningur kjara samninga stæði sem hæst efna hags upp sveiflan náð há marki sínu. ,,Reynslan kennir okkur að við slíkar að stæður getur orðið vanda samt að sam ræma væntingar fé­ lags manna okkar um kjara bætur við þær að stæður sem fyrir tækin í landinu búa við,“ sagði Gylfi. ,,At vinnu lífið stóð á brún hengi­ flugsins árið 2018 við upp haf efna­ hags hrunsins og þúsundir fé lags­ manna stóðu skyndi lega ekki einasta frammi fyrir eigna tapi heldur einnig for dæma lausri kaup máttar skerðingu, missi at vinnu og lífs viður væris og í full­ kominni ó vissu um hvort þeir sjóðir og þær stofnanir vinnu markaðarins og sam fé lagsins sem tryggja áttu vel­ ferð fé lags manna við á föll gætu valdið hlut verki sínu. Aldrei áður hafði at­ vinnu leysi vaxið eins hratt og þá og fall kaup máttar var af stærðar gráðu sem við höfðum ekki séð í langan tíma. Það er alveg ljóst að við deildum þá og deilum að sumu leiti enn kæru fé lagar um það hvort Al þýðu sam bandið hafi risið undir hlut verki sínu og sitt kann hverjum að finnast um það. En við skulum samt hafa það í huga að ekkert sam fé lag í hinum vest ræna heimi og engin verka­ lýðs hreyfing hafði áður staðið frammi fyrir öðru eins. Við sem Al þýðu sam band erum og eigum að vera stór og á hrifa mikil sam­ tök í ís lensku sam fé lagi. Við höfum einungis eina hags muni og eitt pólitískt mark mið og það er að tryggja vel ferð, menntun og öryggi alls vinnandi fólks og þeirra fé laga okkar sem misst hafa vinnu, ör kum last eða hverfa af vinnu­ markaði sökum aldurs. Að því leiti erum við stjórn mála afl en við erum ekki og eigum ekki að vera stjórn mála flokkur. Innan okkar raða eru stuðnings menn og and stæðingar allra stjórn mála flokka en sem sam einast innan okkar raða sem sam stæður hópur vegna þess að þeir vilja vinna að þeim grund vallar hags­ munum sem við eigum saman þvert á alla stjórn mála flokka og stefnur. Því hefur verið haldið fram að afl ASÍ hafi ekki verið notað árin eftir hrun. Ég er ekki sam mála því mati, því með kjara samningum og þrí hliða sam­ starfi við stjórn völd og at vinnu rek endur náðum við að hrinda í fram kvæmd mörgum sam fé lagsúr bótum sem er­ lendir kollegar okkar hafa öfundað okkar af. Mig langar að nefna nokkur dæmi þó fjarri lagi sé um ein hverja tæmandi talningu a ræða. Eftir hrun var bóta tíma bili í at vinnu­ leysi lengt úr 3 árum í 4 ár og fram lög til menntunnar þeirra sem misstu vinnuna og virkra vinnu markaðsúr ræða aukin veru lega frá því sem áður var. Þetta var fyrst og fremst okkar verk með sam komu lagi við at vinnu rek endur og öflugum stuðningi stjórn valda. Hvergi í heiminum tókst betur til við að verja við kvæmustu hluta heil brigðis­ og vel ferðar kerfisins í endur reisn ríkis­ fjár mála, m.a. vegna þess að veiga miklir þættir til færslu­ og af omu tryggingar­ kerfinu eru í kjara samningum en ekki hjá ríkis sjóði. Vorið 2008 höfðum við samið um stofnun VIRK – starf sendur hæfingar­ sjóðs undir yfir skriftinni ,,við skiljum engan eftir‘‘ og okkur tókst að tryggja far sæla upp byggingu kerfis raun hæfra úr ræða fyrir þá sem lenda í veikindum og al var legum slysum í gegnum allt hrunið. Veru legar úr bætur náðust á laga­ legri stöðu skuldugra heimila bæði hvað varðar ó hófl egan inn heimtu kostnað lög manna en sú laga breyting fæddist á skrif stofum ASÍ en ekki síður með sér stökum lög um af skriftir ó raun­ hæfra skulda í gegnum 110% leiðina og greiðslu að lögun, mál sem ASÍ setti á dagsrá löngu fyrir hrun. Sam komu lagi um endur reisn fé lags­ lega hús næðis kerfisins með 30% stofn­ kostnaðar styrkjum og stofnun Bjargs í búða fé lags þannig að aldrei aftur þurfi lág launa fólk að steypa sér í ofur skuldir til þess að njóta hús næðis öryggis sem er hluti af grund vallar mann réttindum. Við lögðum grunn að auknum hag­ vexti og fjölgun starfa og gerðum kjara­ samninga sem bæði tryggðu að fé lags­ menn okkar næðu kaup mætti sínum til baka, og meira til, á samt því að lyfta þeim tekju lægstu veru lega. Það hefur svo sannar lega gengið eftir eins og al­ kunna er meðan fé lagar okkar austan hafs og vestan eru langt frá því að ná sömu stöðu fyrir launa fólk í sínum heima ríkjum og líta til okkar og þeirra úr ræða sem við gripum til. Okkur hefur tekist á ná fram þeirri ára tuga gömlu kröfu Al þýðu sam­ bandsins að jafna á vinnslu líf eyris­ réttinda á milli al menna­ og opin bera markaðarins, að gerð sem mun skila yngri fé lags mönnum okkar sér stak lega, mun betri líf eyri s kjörum en þeim sem við flest búum við. Við tvö földuðum fram lög at vinnu­ rek enda í starfs mennta sjóði al menns launa fólks og jukum fram boð af nýjum náms tæki færum fyrir þá sem litla menntun hafa. Við höfum náð sam komu lagi við at vinnu rek endur og stjórn völd um veru legar breytingar á réttar stöðu er­ lendra starfs manna með auknu að haldi að starfs manna leigum og fyrir tækjum sem fá til sín út senda starfs menn. Eins og skýrt hefur komið fram á síðustu vikum er það verka lýðs hreyfingin undir merkinu „Einn réttur – ekkert svindl“ sem hefur staðið vaktina í þessum efnum með öflugu og vel skipu lögðu vinnu staða eftir liti, eftir liti sem stjórn­ völd höfðu mikið til van rækt. Það hefur leitt til þess að stofnanir ríkisins og stjórn völd eru að vakna til verka og hefði þó mátt vera fyrr. Enn eigum við þó langt í land í þessum efnum en vinnum hörðum höndum að úr bótum í sam starfi við at vinnu rek endur og stjórn völd.“ Stjórn völd hafa hirt lungann af á vinningnum ,,Staðan er ein fald lega sú, að þrátt fyrir að verka lýðs hreyfingunni hafi með sam stöðu sinni tekist að hækka lægstu laun langt um fram al menna launa­ þróun, hefur það ekki leitt til þeirra bættu lífs kjara þessara hópa sem að var stefnt. Á stæðan er sú að stjórn völd hafa með að gerðum sínum og að gerðar­ leysi á unda förnum árum hirt lungann af þeim á vinningi sem kjara samningar hafa tryggt þeim tekju lægstu. Við erum að tala um skerðingu skatt leysis marka, lækkun barna bóta, lækkun vaxta­ og hús næðis bóta á sama tíma og stjórn völd hafa van rækt hlut verk sitt á hús næðis­ markaði og fast eigna verð og húsa leiga hækkar upp úr öllu valdi. Fólk veigrar sér við að leita læknis vegna hárrar gjald­ töku í heil brigðis kerfinu. Skerðingar á greiðslum al manna trygginga með miklum tekju tengingum gagn vart greiðslum líf eyris sjóðanna eru enn eitt dæmið um hvernig ríkið hefur höggvið þar sem hlífa skyldi. Þetta og fleira er er rót þeirrar reiði sem birtist í sam fé laginu og nær inn í okkar raðir þrátt fyrir þann mikla árangur sem Al þýðu sam bandið hefur náð á undan förnum árum. Er þá skemmst að minnast réttinda á vinnu markaði og að búnaður á vinnu­ stöðum sem er ó víða betri en hér á landi. Veikinda réttur, líf eyris mál, or lofs réttur, at vinnu leysis tryggingar, sjúkra sjóðir sem veita alls kyns styrki auk sjúkra­ dag peninga og svo mætti á fram telja. Og listinn er miklu lengri góðir fé lagar og við getum verið stolt af þeim árangri sem við höfum náð. Því miður er það svo að stjórn völd hafa í trekað gengið bak orða sinna í því efni og við þurfum sem hreyfing að í huga al var lega hvernig tryggja megi að efndir fylgi orðum og að lof orðin séu bæði fjár mögnuð og skýr en það er annað mál. En allt er breytingum háð og margt bendir til þess að á herslur og bar áttu­ að ferðir stærstu aðildar sam taka ASÍ verði með nokkuð öðrum hætti en verið hefur um lagt skeið. Það er ekki mitt að dæma um hvort það muni verða fé lags­ mönnum Al þýðu sam bandsins og fjöl­ skyldum þeirra til heilla í fram tíðinni, nú þegar ég hef á kveðið að stíga til hliðar sem for seti ASÍ, en svo notuð séu fleyg orð Sókratesar úr máls vörn sinni í síðustu sam ræðu hans við fé laga sína: „Nú skiljast leiðir en hvor fer betri för er öllum hulið nema guðinum.“ „Við veitum upp lýsingar um sam tökin og hvaða að stoð ættingjar eða skyld menni geta fengið,a

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.