Austurland - 08.11.2018, Page 14

Austurland - 08.11.2018, Page 14
14 8. nóvember 2018 Þessi dægrin knýr haustið dyra og ekki úr vegi að skoða hvernig skáldin tjá þessa árstíð. Byrjum á ljóðinu ,,Haustkvöld í garði“ eftir Sigurð Óskar Pálsson. Runnarnir sem í vor lyftu ljósþyrstum sprotum búast til að fella bleik lauf hrollköldum vindum til haustleikja. Haustlaufin koma einnig við sögu í ljóðinu ,,Fer að haust“ eftir Braga Björnsson auk þess sem lindin og lækurinn skerast í leikinn. Strýkur haust hörpu laufrúna, runnamuru og reynis. Á hauðri hélumara. Leikur þýðlega lind buldrandi undir bráhárum bakka leynis, í ferð með læknum að fara ... Og enn fjúka lauf í ljóðinu ,,Í skógi“ eftir Ingunni Snædal og það meira að segja svo hraustlega að haustið þyrlast burt. risageymsla fyrir gömul tré rokið þurrkar haustið burt með handarsveiflu kræklóttar hríslur taka fagnandi um axlir myrkursins Í ,,Síðdegi í september“ eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur eru það ekki lauflöð sem fjúka heldur sængurverin drifvít sem blakta í haustvindinum. Í haustvindinum blakta drifvít sængurver grannkonu minnar rétt eins og óskrifuð blöð sem biðja mig um ný ljóð Eins og við þekkjum breytist stemmingin þegar hausta tekur. Allt verður öðruvísi eins og Steinunn Ásmundsdóttir túlkar í ljóði sínu ,,Fyrstu næturfrost.“ Í nótt hélaði jörðin og allt varð öðruvísi. Ámannsfellið fjólublátt, söngur fuglanna hljóðlátari og ilmur andvarans var ilmur haustsins. Brátt breiða sig logandi litir um laufið og svörðinn og náttúran sofnar. Og sumir kjósa að hlýja sér saman undir sæng. Um það yrkir Ingunn V. Sigmarsdóttir í ljóðinu ,,Haustkvöld.“ Í hlýju haustkvölda var ekkert betra en þegja saman undir sæng, svo þétt og hlýtt. Meðan húmið hægfara þéttist, náttúran hljóðnaði, runnum við saman inn í mjúkan svefninn. Í hugum margra er haustið tími tregans og jafnvel einhverskonar endaloka. Þetta má gjarnan lesa í haustljóðum. En haustið getur líka boðað von og nýja tíma líkt og í lokaljóði bókarinnar ,,Bréf til næturinnar“ eftir Kristínu Jónsdóttur. Ljóðið heitir ,,Hversdagur.“ Fölnar nótt í fyrstu skímu fjötrarnir rakna. Allt að verða einskis að sakna. ̶ Við hlið þér í skini haustsólar er hamingjan að vakna. Og svo má ekki gleyma því að þótt svalt haust ríki á Fróni geta kringumstæður verið öðruvísi annarsstaðar í veröldinni. Við endum þáttinn að þessu sinni á ljóði Sigurðar Ingólfssonar, ,,Októbersumar í Montpellier.“ Á dögum sem þessum er þytur í laufi andvarp og unaðskurr. Útigangsmaður með ekkert í flösku teygar slæðing af lofti. Gleymd sál blossar um stund í brosi og gamalli hrukku. VÍSNAÞÁTTUR – Arnar Sigbjörnsson HRIKTIR Í UNDIRSTÖÐUM ATVINNULÍFSINS Á VOPNAFIRÐI Upp sagnir hjá HB Granda á Vopna firði hafa einnig mikil á hrif á Bakka firði og nærri lætur að fjórði hver vinnandi maður þar hafi misst vinnuna. Sveitar stjórar Vopna fjarðar hrepps og Langa nes byggðar kalla eftir meiri afla heimildum en fyrir tækið leitar að nýjum verk efnum í stað bol fisk­ vinnslu sem rekin var með tapi. HB Grandi lagði í mikinn kostnað til að opna nýja bol fisk vinnslu á Vopna firði vorið 2017. Mark miðið var að starfs­ fólk í upp sjávar vinnslu hefði meiri verk efni utan ver tíðar, en nú er öldin önnur. Ellefu af um 70 starfs mönnum var sagt upp og þar af eru 10 bú settir á Bakka firði sem er um 25% af vinnu­ afli staðarins. Upp sjávar fisk vinnsla verður á fram ó breytt enda landa skip HB Granda aflanum þar en fram­ tíð bol fisk vinnslunnar er ó viss þótt stjórn endur HB Granda full yrði að fram hald verði á henni. Til þess þarf m.a. meiri byggða kvóta sem alls ekki er í hendi. At hyglis verð stað reynd er það að öllum bol fiski sem unninn hefur verið á Vopna firði er landað á höfuð borgar­ svæðinu og ekið austur til Vopna­ fjarðar sem er 620 km leið og tekur flutninga bíl a.m.k. sjö og hálfan tíma að aka. Öllum bol fiski sem landað er á Bakka firði og Vopna firði er ekið suður til vinnslu! Er ein hver vit glóra í þessu?! Hús bolfiskvinnslu HB Granda á Vopnafirði. Höfum á lager est allt fyrir baðherbergið i-t.isOpið virka daga frá 9 til 18 laugardaga 11 - 15 Ármúla 31 - Sími 588 7332 Baðinnréttingar Í 25 ÁR

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.