Austurland - 08.11.2018, Side 15
KYNNING
Ég byrjaði með einn bíl,
árið 2016 voru þetta
2–3 bílar en síðan þá
hefur þetta aukist stöð-
ugt, í dag erum við með
sjö bíla og það er einn nýr
bíll á leiðinni fyrir komandi
vetur,“ segir Stefán Þór
Jónsson, bílstjóri og eig-
andi flutningafyrirtækisins
Á ferð og flugi. Starfsem-
in hefur dafnað jafnt og
þétt undanfarin misseri en
þegar fyrirtækið var stofn-
að í mars árið 2015 var
bara einn flutningabíll í eigu
þess.
„Við erum aðallega í
vöruflutningum, keyrum
fyrir Samskip, Eimskip og
Vörumiðlun. Við sjáum líka
um allan áætlunarakstur
með vörur til Mývatns frá
Akureyri. Þetta eru mikið
matvörur, byggingarvörur
og síðan ýmislegt fleira,“
segir Stefán, en bílstjórar
fyrirtækisins fara einnig oft
milli Akureyrar og Seyðis-
fjarðar í tengslum við ferðir
ferjunnar Norrænu.
Elti ástina til Akureyrar
Stefán Þór Jónsson er
Reykvíkingur en flutti til Ak-
ureyrar fyrir tveimur árum,
tók með sér eitthvað af ver-
kefnum sem hann var með
í Reykjavík og síðan hefur
starfsemin bara vaxið: „Ég
byrjaði með flutningabíl
í Reykjavík en kærastan
mín er héðan, hún vildi
flytja norður og ég sló til og
ákvað að sjá hvort ég fengi
eitthvað að gera hér. Ég tók
með mér hluta af vinnunni
norður, Smyrilline-verkefnin
fyrir norðan og svo var ég
alltaf að keyra fyrir Samskip
og Eimskip í Reykjavík líka,
ég sagði þeim að ég væri
að flytja mig norður og það
var ekkert mál.“
Bílstjórarnir hjá fyrirtæk-
inu eru nú orðnir samtals
sex. Stefán Þór Jónsson og
unnusta hans, Sigríður Þor-
steinsdóttir, keyra bæði hjá
fyrirtækinu en auk þeirra
eru fjórir aðrir bílstjórar í
fullu starfi.
„Fyrirtækið hefur stækk-
að mikið síðustu ár, og við
höfum náð að bæta við
okkur tækjum til þess að
sinna þeim verkefnum sem
við erum með,“ segir Stefán.
Eins og komið hefur fram
hér keyrir Á ferð og flugi
mikið fyrir stór og þekkt
flutningafyrirtæki en Stefán
hefur áhuga á samstarfi við
fleiri aðila: „Við erum bara
verktaki og keyrum fyrir
hvern sem er,“ segir Stefán
en þeir sem hafa áhuga á
að nýta sér flutningaþjón-
ustu hans geta hringt í síma
789-1060, sent tölvupóst
á netfangið stebbij@gmail.
com eða haft samband í
gegnum Facebook-síðuna
https://www.facebook.com/
aferdogflugi/
Á FERÐ OG FLUGI:
Stækkandi flutningafyrirtæki
á landsbyggðinni