Læknablaðið : fylgirit - 01.03.2013, Síða 4

Læknablaðið : fylgirit - 01.03.2013, Síða 4
B R Á Ð A D A G U R I N N 2 0 1 3 F Y L G I R I T 7 4 LÆKNAblaðið 2013/99 FYLGIRIT 74 5 Ágrip 1. Áhrif lengdar dvalar á bráðamóttöku á dánartíðni Elísabet Benedikz1, Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir2, Bjarki Már Elvarsson3, Brynjólfur Mogensen1,2,4 1Bráðadeild, 2rannsóknarstofu Landspítala og HÍ í bráðafræðum, 3raunvísindadeild, 4lækna- deild Háskóla Íslands Inngangur: Örtröð og dvalarlengd sjúklinga á bráðamóttöku gætu leitt til hærri dánartíðni, lengri innlagnar og seinkað viðeigandi meðferðum. Skortur á sjúkrarúmum, aukinn fjöldi sjúklinga og sífellt lengri dvalar- tími á bráðadeild leiðir til örtraðar sjúklinga og er vaxandi vandamál á bráðadeild Landspítala í Fossvogi. Markmið: Að rannsaka hvort örtröð og/eða dvalarlengd á bráðadeild hafi áhrif á dánartíðni sjúklinga og/eða lengd innlagnar á Landspítala. Aðferðir: Gögnum var safnað úr rafrænni sjúkraskrá (Sögu) allra sjúklinga sem lögðust inn eftir komu á bráðadeild frá 1. maí 2010 til 30. apríl 2011 að undanskildum þeim sem lagðir voru inn frá skammveru- einingu. Könnuð voru tengsl fjölda koma á 8 klukkustunda vöktum og dvalarlengd við dánartíðni innan 7 daga, innan 30 daga og lengd sjúkra- húsinnlagnar með aðhvarfsgreiningu og línulegri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Af 7863 sjúklinum sem lagðir voru inn, voru 7208 rann- sakaðir. Á fyrstu 90 mínútunum eftir komu á bráðadeild jókst 30-daga dánartíðnin með sterkri fylgni við dvalarlengd á bráðadeild (p<0,05). Eftir 90 mínútur hafði dvalarlengd á bráðadeild ekki áhrif á 30-daga dánartíðni. Engin marktæk áhrif voru á 7-daga dánartíðni. Ef komur á bráðadeild urðu fleiri en 100 á 8 tíma vakt, jókst 30-daga dánartíðnin óháð öðrum þáttum. Innlagnir um helgar tengdust hærri dánartíðni en innlagnir á virkum dögum (p<0,05). Hvorki örtröð né dvalarlengd á bráðadeild tengdust marktækt lengd innlagnar. Koma á bráðadeild á miðvikudögum miðað við aðra vikudaga, eða koma á dagvakt miðað við aðrar vaktir, var tengd lengri innlögn óháð öðrum breytum. Ályktanir: Fyrstu 90 mínúturnar eftir komu bráðadeild virðast skipta sköpum og dánartíðni eykst verulega við lengri dvöl. Eftir þennan tíma eykur örtröð á bráðadeild frekar en dvalarlengd 30-daga dánartíðni eftir innlögn. Lengd innlagnar virðist háð öðrum þáttum en örtröð eða dvalarlengd á bráðadeild. 2. Eldra fólk á bráðamóttöku. Niðurstöður úr fjölþjóðarannsókn InterRAI Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir1, Inga Dóra Kristjánsdóttir2, Hjördís Jóhannsdóttir2, Bára Benediktsdóttir2, Bryndís Guðjónsdóttir2, Ingibjörg Magnúsdóttir2, Sólrún Rúnarsdóttir2, Ólöf Guðný Geirsdóttir1, Pálmi V. Jónsson1,3 1Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum, 2bráðamóttöku Land- spítala, 3læknadeild Háskóla Íslands Bakgrunnur: Eldra fólk sækir bráðamóttökur í sívaxandi mæli. Eldra fólk er að jafnaði með aldurstengdar breytingar, marga sjúkdóma og á fjölda lyfja. Markmið: Að lýsa færni og tilvist aldurstengdra einkenna (öldrunar- heilkenna) á 13 bráðamóttökum í 7 löndum, þar á meðal Íslandi. Aðferð: Framvirk lýsandi rannsókn á fólki 75 ára og eldra sem sótti bráðamóttökur, metið af hjúkrunarfræðingum með því að fylla út skimtæki InterRAI fyrir bráðamóttökur. Niðurstöður: Metnir voru 2282 einstaklingar. Fyrir bráðaveikindi voru 46% háðir öðrum í að minnsta kosti einum þætti athafna daglegs lífs (ADL). Þetta hlutfall hækkaði í 67% við komu á bráðamóttöku. Á bráða- móttöku sýndu 26% merki um vitræna skerðingu og 49% voru ógöngu- færir án eftirlits. Öldrunarheilkenni höfðu 48% fyrir bráðaveikindi en 78% við komu á bráðamóttöku. Ályktanir: Öldrunarheilkenni og færnitap hrjáði meirihluta eldra fólks sem leitaði á bráðamóttöku. Þessar upplýsingar ætti að leggja til grund- vallar við gerð verkferla og hönnunar á húsnæði fyrir bráðamóttökur. 3. Eldra fólk á bráðamóttöku, spáþættir útkomu. Niðurstöður úr fjöl- þjóðarannsókn InterRAI Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir1, Inga Dóra Kristjánsdóttir2 , Hjördís Jóhannsdóttir2, Bára Benediktsdóttir2, Bryndís Guðjónsdóttir2, Ingibjörg Magnúsdóttir2, Sólrún Rúnarsdóttir2, Ólöf Guðný Geirsdóttir1, Pálmi V. Jónsson1,3 1Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum, 2bráðamóttöku Land- spítala, 3læknadeild Háskóla Íslands Bakgrunnur: Eldra fólk sem sækir bráðamóttökur er í aukinni áhættu á óhagstæðri útkomu samanborið við yngra fólk, svo sem andláti, færni- tapi, langri sjúkrahúsdvöl, endurinnlögn og hjúkrunarheimilisdvöl. Markmið: Að greina og bera saman þætti sem gætu sagt fyrir um óhag- stæða útkomu eldra fólks á bráðamóttöku. Aðferð: Framvirk lýsandi rannsókn á fólki 75 ára og eldra (n=2282) sem sótti 13 bráðamóttökur í 7 löndum, metið af hjúkrunarfræðingum með því að fylla út skimtækið InterRAI fyrir bráðamóttökur. Niðurstöður: Einbúi (OR=1,75, p<0,00), umönnunarálag ættingja (OR=1,67, p<0,01), göngulagstruflun (OR=2,15, p<0,00) og áverki (OR=2,14, p<0,00) útsettu eldra fólk fyrir langri sjúkrahúsdvöl. Óháð landi, spáði nýlegt ADL færnitap (persónuleg umhirða) (OR=2,19, p<0,00) fyrir um þörf fyrir aukna þjónustu, oft hjúkrunarheimilisdvöl. Heimsókn á bráðamóttöku innan 30 daga (OR=1,95, p<0,00), erfiðleikar við að ganga stiga (OR=1,90, p<0,00) og sæmilegt eða lélegt sjálfsmat á heilsu (OR 1,91, p<0,00) spáði fyrir um endurinnlögn á sjúkrahús í náinni framtíð. Ályktanir: Áhætta á óhagstæðri útkomu eftir heimsókn á bráðamóttöku er greinanleg með þokkalegri nákvæmni með því að greina algeng öldrunarheilkenni. Bæta mætti þeim áhættuþáttum sem hér eru greindir inn í rútínu upplýsingaöflun á bráðamóttöku, til dæmis með því að nota stöðluð skimtæki. Með því má stuðla að bættum ákvörðunum um úrlausnir fyrir eldra fólk sem leitar á bráðamóttöku. 4. Virðisaukandi og virðissnauð vinna hjúkrunarfræðinga á bráða- móttöku Sólrún Rúnarsdóttir1,4, Snjólfur Ólafsson1, Helgi Þór Ingason2, Helga Bragadóttir3,4 1Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, 2iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands, 3hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, 4Landspítala Inngangur: Gæði hjúkrunar geta skipt sköpum fyrir árangur þjónust-

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.