Verzlunartíðindi - 01.07.1988, Blaðsíða 16
5000 manns innan 300 m
radíuss). Slík byggö býður
upp á mun þéttari dreifingu
matvöruverslana en í úthverf-
um,“ segir í svari Borgar-
skipulagsins.
Þá segir aö í Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1984-2004 sé
miöað við 14 til 16 íbúðir á
hektara eða 1400 til 1600
manns séu innan 300 metra
radíuss. Þar er einnig miðað
vð að aðeins verði ein hverfa-
miðstöð miðsvæðis í hverju
íbúðahverfi norðan Grafar-
vogshverfanna, þrátt fyrir að
hverfin séu um og yfir 1000
metrar í þvermál. Reiknað sé
með því að byggð verði þétt-
ust umhverfis hverfamið-
stöðvarnar og þær tengdar
saman með strætisvagna-
götu. íbúafjöldi í hverju hverfi
verður um 4-5 þúsund
manns.
Bjarni segir svo í svari við
þessari fyrstu spurningu að
rétt sé að minna á að í út-
hverfum Reykjavíkur sé nú
að meðaltali hálfur annar bíll
að meðaltali á hverja íbúð og
stór hluti íbúanna noti bíla við
innkaup í hverfaverslunum.
Spornað við
fækkun búða
Þá spurði Sigrún Magnús-
dóttir um það atriði hvernig
ætlunin væri að sporna við
fækkun matvöruverslana í
grónum hverfum. í verslunar-
könnuninni frá 1981 sé það
sett fram sem stefnumið að
svo verði, m.a. með bættum
gönguleiðum, upphituðum
gangstéttum og fjölgun bíl-
astæða.
Svar Borgarskipulags við
þessari spurningu er stutt og
laggott:
„Ein leiðin til að koma þess-
um atriðum í framkvæmd er
að meta aðstæður hverfa-
verslana, (aðkomu, bílastæði
o.fl.) í hverfaskipulagi og
koma þar með ábendingar
um framkvæmdir".
Jafnvægið milli
stórmarkaða og
minni matvöru-
verslana
í þriðja lagi spurði Sigrún um
þá stefnumörkun borgaryfir-
valda frá 1981 að stefnt skuli
að því að jafnvægi haldist
milli stórmarkaða og minni
matvöruverslana. Spurði hún
hvernig það skuli gert, hvað
sé æskilegasta jafnvægið,
hvaða skilgreining sé lögð til
grundvallar þegar talað er um
stórmarkað, hver sé eðlilegur
fjöldi stórmarkaða og loks
hvað margir stórmarkaðir hafi
verið starfandi í Reykjavík
1977 og 1978.
Fram kemur í svarinu að
borgaryfirvöld geta takmark-
að fjölda nýrra stórmarkaða
og ráðið staðsetningu þeirra.
í því sambandi sé mikilvægt
að nýir stórmarkaðir verði
ekki byggðir í eða nærri grón-
um hverfum þar sem hverfa-
verslanir veita þegar næga
nærþjónustu. í Reykjavík þar
sem dreifing matvöruversl-
ana er nokkuð jöfn og þétt er
mikilvægt að halda í það
mynstur og fylgjast með því
að ekki verði „stór göt“ í þjón-
ustunetinu.
Bent er á að dreifing mat-
vöruverslana í elstu hverfum
borgarinnar sé óþarflega þétt
og rekstrargrundvöllur sumra
þeirra því líklega ótraustur.
Það sé því líklegt að sumum
slíkum verslunum muni
fækka nokkuð á næstu árum
án þess að verslunarþjónust-
an við hverfisbúa skerðist
mikið.
Hugtakið stórmarkað skil-
greinir Borgarskipulag á eftir-
farandi hátt: „Stórmarkaður
er stór fjölverslun sem selur
matvöru, föt, húsgögn, heim-
ilistæki og fleiri vörur, oft á
lægra verði en sérverslanir."
Hinsvegar treystir skipulagið
sér ekki til að gefa upp ák-
veðna tölu um eðlilegan
fjölda stórmarkaða í Reykja-
vík. Verslunarhættir séu stöð-
ugt að breytast, svo og skoð-
anir manna um heppilegustu
stærð og fyrirkomulag versl-
ana. í Verslunarkönnun í
Reykjavík 1981 sé talið að
stórmarkaðir í Reykjavík séu
þrír, Hagkaup, Vörumarkað-
urinn í Ármúla og JL-Húsið.
Siðan hafi bæst við Hagkaup
í Kringlunni, Mikligarður og
Kaupstaður í Mjódd.
Kvöldsöluleyfin
Fjórða og síðasta fyrir-
spurn Sigrúnar í borgarráði
var um það hvernig staðið
væri að stefnumótum í versl-
unarmálum í höfuðborgum
Norðurlandanna. Ennfremur
spurði hún um hversu margir
hefðu kvöldsöluleyfi í borg-
inni nú og 1977. Loks spurðist
hún fyrir um fjölda starfandi
bakaría og fiskbúða, árin
1977 og 1987.
í svari sínu segir Bjarni
Reynarsson að Borgarskipu-
lag hafi ekki yfirlit yfir stefnu-
mótun í þessum málum í
nágrannalöndunum, en
bendir á Viðauka II í Verslun-
arkönnun í Reykjavík þar sem
ýmsan fróðleik sé að finna
um þróun verslunarmála í
nágrannalöndunum.
Varðandi kvöldsöluleyfi
segir að 123 aðilar í Reykjavík
hafi haft slík leyfi árið 1977, en
á síðasta ári voru þeir 119
talsins. Starfandi bakarí voru
26 í borginni árið 1977 en
voru orðin 33 á síðasta ári.
Hinsvegar hafði fiskbúðum
fækkað verulega, voru 28 ár-
ið 1977 en 18 á síðasta ári.
16
VERSLUNARTÍÐINDI