Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2022, Blaðsíða 14

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2022, Blaðsíða 14
14 „Gagnstætt öðrum minnihlutahóp- um ölumst við upp án nokkurra tengsla eða vitundar um félagsskap og menningu annarra homma og án minnstu þekkingar á sögu okkar sem hlýtur að vera forsendan fyrir betra lífi.“ Þetta ákall um að læra söguna birt- ist í tímariti Samtakanna ´78 Úr felum árið 1983. Hvort að sagan sé forsenda fyrir betra lífi verður ekki svarað hér, en öll höfum við þó ein- hverja söguvitund. Þau sem tilheyra minnihlutahópum eiga oft erfitt með að spegla sig í sögunni sem er yfirleitt sögð út frá sjónarhóli valda- mestu hópanna og söguleysi ýtir undir þöggun og jaðarsetningu. Það er því skiljanlegt að vilja forvitnast um söguna og miðla henni til ann- arra. En hvaða sögur segjum við og hvað látum við ósagt? Þau sem stigu sín fyrstu skref sem hinsegin einstaklingar á fyrstu áratugum 21. aldar voru yfirleitt meðvituð um að réttarbætur og frjálsara samfélag væri afrakstur þrotlausar vinnu og baráttu sem háð var á mörgum vígstöðvum. Í pontu Alþingis, í jólaboðum, á djamminu, skólanum og húsfélög- um. Við vissum aftur á móti minna alnæmið. Veirusjúkdómurinn sem lagðist eins og álagamyrkur á samfélag homma virtist í upphafi nýrrar aldar vera eins og vondur, fjarlægur draumur. Alnæmið var vissulega ekki þaggað í hel, en saga þess fékk oft á sig ásýnd neðanmáls- greinar. Sérkafli sem snerti þau sem upplifðu faraldurinn en væri hinum óviðkomandi. Þagnarhjúpurinn í kringum alnæm- Sagan sem á eftir að segja? Nokkrar hugleiðingar um sögu alnæmis á Íslandi ið hefur verið að bresta undan- farin ár. Árið 2018 var fjallað um alnæmi í Velvakanda Morgunblaðs- ins þar sem gert var að því skóna að hnattræn hlýnun væri á pari við alnæmis faraldurinn, ofmetið vandamál og ógn sem aldrei varð. Hinsegin samfélagið brást harkalega við slíkum ummælum. Felix Bergs- son sagði að ritstjórn Morgunblaðs- ins ætti tafarlaust að biðjast afsök- unar (sem aldrei var gert) og Lana Kolbrún Eddudóttir sagði pistilinn vera kjaftshögg fyrir þau sem að misstu fjölskyldumeðlimi, elsk- huga eða vini vegna alnæmis. Ef til vill var kominn tími til að rifja upp alnæmisárin til að gefa meiri- hlutasamfélaginu ekki tækifæri á að nota alnæmið til að spinna röklausa söguþræði í pólitískum tilgangi. Ári seinna frumsýndi Hrafnhildur Gunnarsdóttir heimildaþætti sína Svona fólk í Ríkissjónvarpinu en flest sem tóku til máls um þætt- ina voru sammála um að magn- þrunginn þátturinn um alnæmið hefði borið af. Ári seinna kom svo út ævisaga Einars Þórs Jónssonar, Berskjaldaður út þar sem að Einar fjallar á einlægan en hispurslausan hátt um líf sitt sem HIV smitaður Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, sagnfræðinemi sem vinnur að doktorsritgerð um sögu alnæmis á Íslandi

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.