Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2022, Blaðsíða 15

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2022, Blaðsíða 15
15 maður, en sú barátta snerist ekki eingöngu um glímuna við dauðan, sjúkdóminn og pólitík, heldur líka um lífsviljan og svo auðvitað ástina. Það virðist því vera kominn tími til að tala aftur um sögu alnæmis. Sigr- ana jafnt sem svartnættið. Og líka hversdagslífið, því þó að alnæm- isfaraldurinn feli í sér dramatíska baráttu upp á líf og dauða tekur sú barátta oft á sig ósköp hversdags- legar myndir. Jón Helgi Gíslason (Donni) orðaði þennan samslátt áfalla og hversdags lífs vel í viðtali við Hrafnhildi þar sem hann rifjaði upp að hafa verið að mála eldhúsið þegar fjölskyldufundur var hald- inn þar sem tilkynnt var að hann ætti nokkra mánuði eftir ólifaða en Donni var einn af þeim fyrstu sem fengu nýju lyfin og reis upp frá banalegunni. Endurlitið og fjarlægðin við at- burðina gefur okkur líka rými til að skoða faraldurinn í stærra samhengi. Við getum til dæmis getum velt því upp hvort og hvernig alnæmisfaraldurinn hafði áhrif á réttindabaráttuna. Var það ef til vill alnæmisfaradurinn frekar en frjáls- lyndi og ást á mannréttindum sem fékk stjórnvöld til að leggja eyrun við málflutning homma og lesbía á níunda og tíunda áratugnum? Við þessu er ekkert einfalt svar, því alnæmisfaraldurinn er margslungið fyrirbæri. Saga hans er þéttofið net af persónum og leikendum hvers hlutverk einkennist af samspili valda, valdaleysis og lífi, dauða, forræði og andspyrnu. Faraldurinn er saga baráttu sem tók á sig margar myndir. Stundum var það barátta við íslenskt mál í dálkum blaðanna eða barátta við heilbrigðisstarfs- menn og valdhafa. Og svo auðvitað mökrin milli okkar og hinna, þess viðtekna og óviðtekna, normsins og jaðarsins og þess sem hreyfir við þeim mörkum. En eitt er ljóst að áhrif alnæmisfaraldursins á rétt- indabaráttu, samfélag og menningu hinsegin fólks eru síst ofmetin. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir. Yfir vetrarmánuðina geta HIV-jákvæðir hist í hópa- starfi í húsnæði HIV - Íslands. Markmið þess eru félagslegs og tilfinningalegs eðlis, að geta hitt aðra í sömu stöðu, ræða hjartans mál og læra af reynslu hvers annars. Áhersla er lögð á einlægni og trúnað. Umsjón með starfinu hefur Sigurlaug Hauksdóttir félagsráðgjafi. Nánari upplýsingar má fá hjá HIV Íslandi í síma 552 8586 og með netpósti sem er sillahauks@gmail.com Hópavinna með HIV-jákvæðum Samnorrænn fundur var haldinn í Reykjavík í september. HIV Norden er samstarfsvettvang- ur HIV-jákvæðra á Norðurlönd- um og hefur skrifstofu í Helsinki. Formaður sambandsins er Nonni Mäkikärki frá Finnlandi. Norrænt samstarf Fundir eru haldnir tvisvar á ári (einn þeirra aðalfundur) þar sem rætt er um ástandið í hverju landi og reynt að móta sameiginlega stefnu. Áherslan í samstarfi HIV- Norden snýr að mannréttindum HIV jákvæðra, forvörnum og upp- lýsingum almennt út í samfélagið.

x

Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi
https://timarit.is/publication/1509

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.