Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - dec. 2021, Side 4
4
Húsaskjól HL stöðvarinnar var vel þegið þennan
hryssingslega septemberdag þegar sjúkraþjálfararnir
Sólrún Óskarsdóttir og Birna Aubertsdóttir tóku á móti
mér til að ræða um endurhæfingu lungnasjúklinga á
tímum COVID. Sólrún hefur unnið á HL stöðinni í 30 ár
og veitt henni jafnframt forstöðu. Þar fer fram þjálfun
fyrir hjarta- og lungnasjúklinga en Sólrún hefur einkum
séð um þjálfun síðarnefnda hópsins. Birna hefur starfað
á HL stöðinni í tæp 20 ár, fyrst og fremst með hjarta-
hópa, en áður vann hún á lungnadeild Reykjalundar og
kynntist lungnaendurhæfingu þar.
Endurhæfing ekki bara líkamleg
Þær Sólrún og Birna leggja strax í byrjun ríka áherslu mikilvægi
langtíma þjálfunar fyrir lungnasjúklinga. Þegar ég spyr hvernig
heimsfaraldurinn hafi helst komið niður á lungnaendurhæf-
ingunni, segir Sólrún að best sé að byrja á að rifja upp hvað felist
í hugtakinu endurhæfing. “Hún er ekki bara líkamleg, heldur líka
andleg og félagsleg.” Síðasta eitt og hálfa árið telur hún víst að
fólk hafi orðið dálítið illa úti með félagslegu örvunina sem sé svo
nauðsynleg. „Þú getur gert æfingar heima,“ heldur hún áfram,
„það er auðvelt að segja fólki að fylgjast með morgunleikfiminni,
en ég held að þessi andlega og félagslega einagrun hafi reynst
fólki oft mjög erfið.“ Birna samsinnir þessu heilshugar og segir
að þótt hægt sé að æfa sig heima geti reynst erfitt að halda sig
við efnið. „Það er því gott að geta sótt þjálfun á þjálfunarstað og
geta búið heima hjá sér og aðgreina svolítið þar á milli.“
Þegar ég spyr hvernig þær hafi brugðist við varðandi endur-
hæfinguna í kjölfar farsóttarinnar, segir Sólrún að þær hafi
byrjað á að hringja aðeins í fólkið sitt til að athuga stöðu mála og
hvetja það til þess að halda áfram að hreyfa sig. „Við höfum ekki
verið með fjarþjálfun, eða sett upp einhver kerfi á netið. Það
voru það margir aðrir aðilar sem gerðu það, t.d. Reykjalundur og
svo var morgunleikfimin bæði í sjónvarpi og útvarpi, þannig að
við bentum okkar fólki á að nýta sér það.“
Mikilvægt að sjá eitthvað nýtt
Sólrún segir að þær hafi aftur á móti lagt mesta áherslu á að
hvetja fólk til þess að fara út úr húsi og ná sér í hreyfingu þar.
„Auk þess gat ég ekki ítrekað nógu mikið,“ heldur hún áfram
með áhersluþunga, „að fólk reyndi að fara á nýja staði, ef
aðstæður buðu. Keyra t.d. út að strönd, rölta þar um og fá
súrefni í kroppinn, notfæra sér þessa yndislegu staði sem við
eigum eins og Laugardal, Elliðaárdal, Heiðmörkina og fleiri staði
þar sam hægt er að fá þessa útiveru, örvun og geta séð eitthvað
nýtt.“
Þríeykið og heimaleikfimin
Hún áréttar hve brýnt það sé að festast ekki í sama farinu, heldur
Ekki hægt að halda niðri í sér andanum endalaust
Viðtal við Sólrúnu Óskarsdóttur og Birnu Aubertsdóttur, sjúkraþjálfara á HL stöðinni
Birna og Sólrún sjúkraþjálfarar á HL stöðinni.