Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2021, Blaðsíða 25

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2021, Blaðsíða 25
25 Samtök lungnasjúklinga starfrækir minningarsjóð í formi minningarkorta og/eða frjálsra framlaga. Hægt er að nálgast form til að fylla út vegna minningarkorta á vef Lungnasamtakanna á www.lungu.is eða með því að hringja í síma okkar, 560 4812 sem almennt er opinn. Skrifstofa okkar er jafnframt opin alla mánudaga frá 11:00 til 15:00. Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða beint inn á reikning sjóðsins eða með því að stofna kröfu í heimabanka. Bankareikningur Lungnasamtakanna er: 0115-15-372748, kt. 670697-2079. Vinsamlegast sendið greiðslustaðfestingu á netfangið lungu@lungu.is Allt söfnunarfé sjóðsins rennur í Vísindasjóð Lungnasamtakanna sem veitir styrki til eflingar rannsókna á orsökum lungnasjúkdóma, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. MINNINGARSJÓÐUR - Margt smátt gerir eitt stórt SLS færir Reykjalundi vinnustóla og lífsmarkamæli að gjöf Vinnustólarnir eru báðir með stillanlegum örmum (hæð og dýpt), baki og setu. Gott rými er fyrir fætur og eykur bremsustöng einnig öryggi þess sem situr í stólnum. Annar stóllinn er með rafknúna hæðarstillingu og hentar vel þeim sem þreytast við að stilla stólhæðina. Hinn er með háu baki, hægt er að hafa höfuðpúða á honum og sethalli getur verið fastur eða laus, þannig að seta fylgi hreyfingu líkamans. Gott úrval er til af aukahlutum á stólana, t.d. uppfellanlegur fótahringur, hliðarstuðningur og belti. Að sögn Ingibjargar Bjarnadóttur, iðjuþjálfa, getur vinnustóll létt daglegt líf og viðhaldið sjálfstæði fólks við að sinna daglegum athöfnum, t.d. þeirra sem hafa litla orku til að standa lengi og ganga um. Þegar setið er í stólnum er auðvelt að ýta sér áfram með fótunum. Hægt er að nota þá við að þurrka af, elda, þvo upp, sinna þvotti, ryksuga og annað sem viðkomandi þarf að sitja við. Talið er að með því að sitja við verk í stað þess að standa sé hægt að spara orkueyðslu um 25%. Lungnasjúklingar og aðrir sem koma í endurhæfingu á Reykjalundi geta prófað að vinna í þessum stólum inni á verkstæði Iðjuþjálf- unar, í eldhúsi og við að sinna öðrum heimilisverkum sem valda erfiðleikum í endurhæfingunni. Einnig er hægt að fá stólana lánaða heim yfir helgi til reynslu meðan fólk er í meðferð á Reykjalundi. Lífsmarkamælirinn, sem Sjúkraþjálfun fékk og er talinn sá vandaðasti á markaðnum, mælir púls, mettun, blóðþrýsting og öndunartíðni skjólstæðinganna. Hingað til hefur ekki verið hægt að mæla öndunartíðni sem er mikilvægur þáttur í mati á lífsmörkum. Að sögn Garðars Guðnasonar, sjúkraþjálfara, er mælirinn afar mikilvægur þeim sem þurfa að láta fylgjast með lífsmörkum, til að áætla hvort þyngja eigi eða létta álagið við þjálfun skjólstæðinganna. Iðjuþjálfun fékk tvo vandaða vinnustóla sem hafa svipaða virkni og Sjúkraþjálfun fékk lífsmarkamæli af fullkomnustu gerð.

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.