Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - Dec 2021, Page 25
25
Samtök lungnasjúklinga starfrækir minningarsjóð í formi minningarkorta og/eða frjálsra framlaga. Hægt er að nálgast form til að fylla út
vegna minningarkorta á vef Lungnasamtakanna á www.lungu.is eða með því að hringja í síma okkar, 560 4812 sem almennt er opinn.
Skrifstofa okkar er jafnframt opin alla mánudaga frá 11:00 til 15:00. Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða beint inn á reikning sjóðsins
eða með því að stofna kröfu í heimabanka.
Bankareikningur Lungnasamtakanna er:
0115-15-372748, kt. 670697-2079.
Vinsamlegast sendið greiðslustaðfestingu á netfangið lungu@lungu.is
Allt söfnunarfé sjóðsins rennur í Vísindasjóð Lungnasamtakanna sem veitir styrki til eflingar rannsókna á orsökum lungnasjúkdóma,
forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
MINNINGARSJÓÐUR - Margt smátt gerir eitt stórt
SLS færir Reykjalundi vinnustóla og lífsmarkamæli að gjöf
Vinnustólarnir eru báðir með stillanlegum örmum (hæð og dýpt),
baki og setu. Gott rými er fyrir fætur og eykur bremsustöng einnig
öryggi þess sem situr í stólnum. Annar stóllinn er með rafknúna
hæðarstillingu og hentar vel þeim sem þreytast við að stilla
stólhæðina. Hinn er með háu baki, hægt er að hafa höfuðpúða á
honum og sethalli getur verið fastur eða laus, þannig að seta fylgi
hreyfingu líkamans. Gott úrval er til af aukahlutum á stólana, t.d.
uppfellanlegur fótahringur, hliðarstuðningur og belti.
Að sögn Ingibjargar Bjarnadóttur, iðjuþjálfa, getur vinnustóll létt
daglegt líf og viðhaldið sjálfstæði fólks við að sinna daglegum
athöfnum, t.d. þeirra sem hafa litla orku til að standa lengi og
ganga um. Þegar setið er í stólnum er auðvelt að ýta sér áfram með
fótunum. Hægt er að nota þá við að þurrka af, elda, þvo upp, sinna
þvotti, ryksuga og annað sem viðkomandi þarf að sitja við. Talið er
að með því að sitja við verk í stað þess að standa sé hægt að spara
orkueyðslu um 25%.
Lungnasjúklingar og aðrir sem koma í endurhæfingu á Reykjalundi
geta prófað að vinna í þessum stólum inni á verkstæði Iðjuþjálf-
unar, í eldhúsi og við að sinna öðrum heimilisverkum sem valda
erfiðleikum í endurhæfingunni. Einnig er hægt að fá stólana lánaða
heim yfir helgi til reynslu meðan fólk er í meðferð á Reykjalundi.
Lífsmarkamælirinn, sem Sjúkraþjálfun fékk og er talinn sá
vandaðasti á markaðnum, mælir púls, mettun, blóðþrýsting og
öndunartíðni skjólstæðinganna. Hingað til hefur ekki verið hægt
að mæla öndunartíðni sem er mikilvægur þáttur í mati á
lífsmörkum.
Að sögn Garðars Guðnasonar, sjúkraþjálfara, er mælirinn afar
mikilvægur þeim sem þurfa að láta fylgjast með lífsmörkum, til að
áætla hvort þyngja eigi eða létta álagið við þjálfun
skjólstæðinganna.
Iðjuþjálfun fékk tvo vandaða vinnustóla sem hafa svipaða virkni og Sjúkraþjálfun fékk lífsmarkamæli
af fullkomnustu gerð.