Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 5

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 5
HATK> forn og ný Jón R. Hjálmarsson: svartasta skammdeginu, undir lok desembermánaðar, koma jólin líkt og himnasending og flytja birtu og yl inn í vetrarmyrkrið. Margar af fegurstu minningum okkar frá æskudögum eru tengdar jólunum og þær geymum við innra með okkur alla ævi. Við upplif- um jólin sem hátíð ljósanna og sem sigur birtunnar á myrkraöflunum og sem kristnir menn gleðjumst við inni- lega á þessum fagra afmælisdegi Jesúbamsins. Og hvort sem við emm ung eða gömul, þá hlýnar okkur alltaf um hjartarætur, þegar við heyrum söguna um Frelsara mannkynsins, sem fæddist í fjárhúsi á Betlehems- völlum fyrir 2000 ámm og var lagður í jötu. Við þá sögu glöddumst við í æsku og ef við viljum halda áfram að gleðjast á þessari hátíð ljóssins, þá skulum við halda áfram alla ævi að fagna jólunum á sama hátt og við gerðum sem böm. En kristin trú er ekki mjög gömul og jólin sem kirkjuleg hátíð er nokkru yngri en trúin. Bæði páskar og hvítasunna eru eldri hátíðir hjá kristnum mönnum. A fyrstu öldum kristni deildu menn hart um fæðing- ardag Jesús, því að enginn vissi hið rétta í því efni. Varð þessi óvissa til þess að í kristnum söfnuðum tóku menn að halda upp á fæðingarhátíð Frelsarans á ýmsum árstímum. Eftir að kristnir menn höfðu öðlast trú- frelsi árið 313 og einkum eftir að kristnin var gerð að ríkistrú í Róma- veldi árið 380, komu þessir söfnuðir sér saman um að miða fæðingardag Jesús við 25. desember. Á þeim árs- tíma, kringum vetrarsólstöðurnar, hafði frá fornu fari verið haldin hátíð í Róm. Og eftir að Cæsar innleiddi tímatal sitt um miðja síðustu öld f. Kr., var tekið að helga þennan dag sólguðinum, sem Rómverjar nefndu Sol invictus eða Sólina ósigrandi. Svo gerðist það um eða eftir alda- mótin 500 að munkurinn Dionysus litli í Rómaborg, reiknaði út árið fyrir fæðingu Krists og setti það við árið 754, samkvæmt fornu tímatali Róm- verja. Við þennan útreikning hans miða kristnir menn síðan tímatalið og telja frá þessu ári ýmist aftur á bak eða áfram. Við það situr upp frá því, þótt síðari tíma rannsóknir bendi til að Jesús Kristur hafi komið í heim- inn hinn 1. desember árið 4 fyrir Krist. Á Norðurlöndum vildi svo heppi- lega til að þar var haldin hátíð frá fornu fari um sama leyti og kristnir menn í Rómaveldi settu fæðingardag Jesús. Þessa gömlu hátíð nefndu heiðnir menn jól og það heiti fékk að halda sér, þótt Norðurlandabúar gerðust kristnir á 10. og 11. öld og kirkjuleg hátíð kæmi í stað heiðinnar blótveislu. Orðið jól er ævafornt samnorrænt heiti af óvissum upp- runa. Sumir telja að það sé skylt orð- inu hjól, því að þá sé hjól eða hringur ársins fullkomnaður og byrji þar með nýja umferð. Margar aðrar hugmynd- ir eru uppi um merkingu orðsins jól, þótt ekki verði farið nánar út í það hér. En þetta heiti var notað yfir há- tíð sem venja var að halda um vetrar- sólstöður. Heima er bezt 517

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.