Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 6

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 6
Samkvæmt fornum heimildum var þessi blóthátíð haldin til árs og friðar og hinir gömlu guðir tignaðir með því að eta og drekka meira en venja var. Var í þá daga stundum talað um að drekka jólin, eins og sums staðar kemur fram í fornsögum okkar. Þetta jólablót mun einkum hafa verið haldið til að fagna hækkandi sólargangi, en að einhverju leyti var það líka tengt uppskeru og jarðar- gróða, sem og frjósemi hinnar lifandi náttúru. Fram á okkar tíma finnast merki um þessa fornu frjósemidýrk- un, eins og í jólahafrinum, sem gerð- ur er úr stráum og hafður til skrauts á jólum víða á Norðurlöndum. Þessi stráhafur er trúlega tákn fyrir raun- verulegan hafur, sem slátrað var og fómað til árs og friðar á fyrri tíð. Jólagrísinn, sem víða er á norræn- um jólaborðum á okkar tímum, bendir einnig til gamallar frjósem- idýrkunar og átrúnaðar á Frey, sem réð fyrir regni og skini sólar og þar með ávexti jarðar. Jólaærin, sem svo var nefnd, og slátrað var til jóla hér á landi fyrmm, gæti líka verið grein á sama meiði, þótt ekkert verði um það fullyrt. Þannig stendur jólahátíðin á afar gömlum merg og margt í jólahaldi okkar vísar til ævafornra trúarsiða í heiðni. En eitt af því sem bæst hefur við í jólahaldi á síðari öldum er jóla- tréð. En sú venja að setja upp slík tré á jólum mun hafa byrjað í Þýska- landi á 16. öld og breiðst þaðan út. Til Norðurlanda barst jólatréð ekki að marki fyrr en á 19. öld og þá hvað síðast til Islands, enda voru þá greni- skógar ekki teknir að vaxa í landinu. Fyrst í stað var gjarna verið að smíða heimagerð tré og skreyta þau með lyngi og mislitum pappír og setja á þau kertaljós. Síðar byrjuðu menn að flytja inn raunveruleg jólatré og munu danskir kaupmenn hafa verið brautryðjendur á því sviði. Loks var svo tekið að rækta hér greni- og furutré sem hentuðu til þessara nota og er nú svo komið að talsverður hluti af jólatrjám okkar er sprottinn úr íslenskri mold. En þótt jólatré og notkun þess sé tiltölulega ung að árum, þá má vera að þessi siður eigi líka ævafornar rætur og tákni eins konar tré lífsins, sem bendi til endur- nýjunar og upprisu. Það er jafnvel talið vera í ætt við maístöngina, sem víða tíðkast á vorhátíðum á Norður- löndum og á að merkja vöxt og þroska, heilbrigði og frjósemi. Þannig má ef til vill líka segja að jólatréð bendi á sinn hátt til blóthá- tíða fornmanna í heiðnum sið. Ryrir-hannyrðakonuna og fluguhnytingamanninn Standlampi á hjólum með dagsbirtuperu. Gefur alltaf rétta litatóninn. Með stækkunargleri og klemmu fyrir verkefni. Borðlampi með stækkunar- gleri. Skólavörubúðin Smiðjuvegi 5 • Kópavogi • Sími 58 • r • 'i www.skolavorubudin.is 518 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.