Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 8

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 8
mæla - sem allra nákvæmast - eina hlið á einum þríhymingnum. Út frá þessari grunnlínu er svo hægt að reikna lengd allra hliðanna í öllum hinum þríhyrningunum. Þar með þekkjum við stærð landsins á kortinu. Enn er eftir að finna, hvar á jörð- inni kortlagða svæðið er. Hnattstaða er gefin upp sem íjarlægð frá tveim- ur línum eða baugum á hnettinum. Annars vegar er fjarlægðin norðan eða sunnan við miðbaug, sem miðuð er við breiddarbauga, þar sem mið- baugur hefur breiddina núll, en norð- an og sunnan hans eru dregnir sam- síða baugar og tölusettir í gráðum, þannig að heimskautin eru á 90° norður- og suðurbreiddar. Hins vegar er jörðinni skipt með baugum á milli heimskautanna, lengdarbaugum eða hádegisbaugum. Margra alda hefð er fyrir því að telja lengdina frá baug sem liggur gegnum Lundúnaborg, nánar tiltekið um fornfræga stjörnu- rannsóknastöð í útborg hennar, Greenwich. Frá þessum núllbaug eru lengdarbaugar tölusettir kringum jörðina til austurs og vesturs, allt upp í 180°, og réttur tími í Greenwich, þegar klukkan er þar tólf á hádegi og sólin er hæst á lofti, miðað við með- altal margra aflestra af gangi sólar eða stjarna, er notaður til viðmiðunar við önnur tímabelti. Landmælingamenn ákvarða breidd staðar, hnattstöðu hans norðan eða sunnan við miðbaug, með mælingum á pólhæð. Pólstjarnan eða norður- stjarnan, sem allur stjörnuhiminninn, séður frá norðurhveli jarðar, virðist snúast um, er í hvirfilpunkti, beint yfir höfði manns, sem stendur á norðurpólnum, en liggur niðri við sjóndeildarhring á miðbaug. Hæð pólstjörnunnar á himni í gráðum er jafnframt norðurbreidd athugunar- staðarins. A suðurhveli miða menn breiddina við aðrar stjörnur eða stjörnumerki, sem við sjáum ekki hér nyrðra. Ákvörðun á lengd staðar vafðist lengi fyrir mönnum. Rétt klukka á Björn Gunnlaugsson stœrðfræðingur. hverjum stað er miðuð við það að klukkan sé 12 á hádegi þegar sól er hæst á lofti. En vegna snúnings jarð- ar um möndul sinn er sólin því seinna á ferðinni sem staðurinn er vestar. Til að ákvarða lengd staðar, Endapunktur grunnlínu á Akureyri. Landmœlingar islands. 520 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.