Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 12
Samgönguráðherra, Matthías Bjarnason, tekur formlega við íslensku land- mœlingagögnunum í Ráðherrabústaðnum við Tjörnina árið 1985. Landmcelingar Islands. Herforingjaráðskortin Skemmst er frá því að segja að á fyrstu fjórum áratugum tuttugustu aldar kortlagði landmælingastofnun danska hersins þennan útnára kon- ungsríkisins, ísland, með miklum ágætum, enda stóðu Danir þá í fremstu röð í heimi meðal landmæl- ingamanna. Þegar Island varð fullvalda ríki árið 1918 féll úr gildi samningur milli íslendinga og Dana um kort- lagningu íslands og skiptingu kostn- aðar vegna þessara starfa. Fljótlega náðist þó samkomulag við Herfor- ingjaráðið um að Danir héldu áfram að kortleggja landið samkvæmt upp- haflegri áætlun og stæðu undir mikl- um hluta kostnaðar. Ágúst Böðvars- son greinir svo frá í riti, sem er meg- inheimild þessa greinarkorns (bls. 127): Við þessa samninga sýndi herforingja- ráðið fullan skilning á þvi að hér var ekki um að ræða kaupsýslu heldur grundvallarstarf í þágu íslensku þjóð- arinnar. Danir lögðu metnað í að ljúka þessu verki sem þeir höfðu þegar hálf- unnið og greitt að meirihluta. Þeir sýndu stórhug við þessa samninga eins og reyndar ávallt fyrr og síðar við allt sem að verkefninu laut. Þegar Þjóðverjar hertóku Dan- mörku 1940 var mælingum og kort- lagningu Islands lokið, en eitthvað af kortunum var ekki fullunnið. Þjóð- veijar ætluðu að fá Dani til að vinna að Rússlandskortum fyrir innrásina í Sovétríkin, en starfsmenn Geodætisk Institut voru ekki hrifnir af þeirri vinnu, og forstöðumaður stofnunar- innar, N. E. Norlund prófessor, sann- færði Þjóðverjana um það að betra væri að nýta kortagerð Herforingja- ráðsins til að ganga frá kortum af ís- landi, enda væri þess ekki langt að bíða að þýski herinn legði eyna undir sig. Geodætisk Institut fékk því að halda áfram með íslandskortin. Árið 1944, áður en stríðinu lauk, kom út hjá danska forlaginu Gylden- dal Islands Kortlœgning, Kortasaga íslands, með flestum gömlum kort- um af landinu og öllum íslandskort- um frá Herforingjaráðinu - og skrá yfir þau kort sem ekki höfðu verið gefin út. Upplag þessa merka rits var aðeins 600 eintök, enda var það upp- selt þegar eðlilegt samband milli Is- lands og Danmerkur komst á að stríðinu loknu. Hundrað eintök voru samt send Menntamálaráðuneyti Is- lands, og af þeim afhenti ráðuneytis- stjórinn, Birgir Thorlacius, föður- bróðir þess sem þetta skráir, eintak til Ágústs Böðvarssonar, og það ein- tak er í vörslu Landmælinga Islands eftir að þær urðu sjálfstæð stofnun árið 1956. Landmælingar íslands taka við Árið 1944, þegar sambandsslit urðu milli íslands og Danmerkur, hefði mátt ætla að Danir teldu þess- ari eyþjóð ekki ofætlan að sjá um mælingu á eigin landi. Það var þó ekki. Þegar Atlantshafsbandalagið ákvað árið 1953, að lönd þess skyldu kortlögð í mælikvarða 1:25.000, og fól Kortadeild Bandaríkjahers (Army Map Service, AMS), að sjá um ís- landskortið, komu Danir enn inn í dæmið. Herforingjaráðið taldi sig ekki geta ábyrgst nákvæmni fyrri korta í þessum mælikvarða, en bauðst til að mæla nógu nákvæmt þríhyrninganet á einu ári, benti auk þess á að það væri hagur íslendinga að mælingarnar yrðu umfangsmeiri en NATO hafði sett að skilyrði, og tók á sig nokkurn aukakostnað sem af því leiddi, eða, með orðum Ágústs Böðvarssonar (bls. 222): Með þessu varð verkefnið að sjálf- sögðu viðameira og krafðist meiri tíma og kostnaðar sem Danir hikuðu þó ekki við að leggja fram. Þetta bar vott um góðan hug ráðamanna Geo- dætisk Institut til okkar Islendinga sem fyrr. Sá hugur hafði oft áður kom- ið fram ... Að þessum mælingum unnu, sum- arið 1955, 69 fastir leiðangurmenn, bandarískir, danskir og íslenskir. Vegna ótíðar tókst ekki að klára verkið á einu sumri, og næsta sumar unnu við það 37 leiðangursmenn. Auk þeirra voru bílstjórar og fleiri hjálparmenn. Þær mælingar Islendinga, sem hér 524 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.