Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 17

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 17
að hverfa fyrir öðrum ljósfærum. Kolan bar lélega birtu, raunar svo lélega að furðulegt var að nokkur skyldi geta unað við þá lýsingu. Svo komu vegglamparnir, litlir og heldur birtudaufir, þó að framför væri að þeim. Og ekki má gleyma týrunum, sem bæði voru notaðar í útihúsum og innanbæjar. Þeim fer nú að fækka, sem vita deili á gerð þeirra. Á hverju hausti kom faðir minn með olíudunk, venjulega frá Akureyri. Olían í honum átti að endast til vors en það gekk nú stundum illa því mikil gestanauð var á Fremri-kotum og ljósmetið vildi því eyðast örar en ella. Við krakkarnir sátum oft tímunum saman í myrkri uppi í einhverju rúminu í baðstofunni og biðum þess að mamma kæmi inn með ljóstýruna, sem hún var að vinna við í búri og eldhúsi, en faðir minn og eldri bræður voru úti við gegningar. Og þá var það leikur okkar að vita hvert yrði fyrst til að koma auga á Ijósgeislann sem barst inn um rifu á baðstofuhurðinni þegar mamma var á leiðinni til baðstofunnar og kalla „ljós, ljós!“ Kirkjuferðir Það þótti sjálfsagt að fara til kirkju á jólunum þegar messað var á Silfrastöðum, ef nokkur tök voru á. Við yngri krakkarnir vorum ekki látin fara svo langa leið en hún varð ekki gengin á minna en tveimur klukkutímum. Og foreldrar okkar gátu ekki báðir farið samtímis vegna okkar krakkanna, nema þegar svo vildi til að amma, Guðrún Hallsdóttir, var hjá okkur um jólin. Hún kom oftast einu sinni á vetri frá Axlarhaga í Blönduhlíð, þar sem hún átti heima hjá syni sínum, Eiríki, og var þá hjá okkur eins og mánaðartíma. Og það var ómældur fögnuður yfir því að fá hana í heimsókn. Hún kunni svo mikið af alls konar sögum að þær virtust óþrjótandi. Og margar þeirra hef ég síðan notað á ferðalögum mínum á leiðinni um landið eða í náttstað. Nú, auk þess höfðu svo þeir, sem sóttu kirkju á Silfrastöðum, sérstaka ánægju af því að tala við húsbóndann þar, eða öllu heldur að hlusta á hann. Það var Steingrímur Jónsson, sem þar bjó langa ævi og var ákaflega einkennilegur um tungutak og skoðanir. Hann var framúrskarandi hispurslaus í tali og sagði held ég allt sem hann hugsaði. I sumum bókum mínum hef ég minnst á hann nokkuð rækilega og lengi því ekki þetta rabb okkar að ráði með því að segja frá honum. Eitt tilsvar hans vil ég þó nefna hér, af því að það er einmitt tengt messu á Silfrastöðum. Þetta var á nýársdag. Kirkjufólkið hafði safnast saman í bæjardyrunum á Silfrastöðum, sem voru stórar og rúmgóðar og beið þar eftir presti sínum, séra Birni Jónssyni á Miklabæ. Er prestur kom í hlaðið og hafði stigið af hestinum, gekk hann inn í bæjardyrnar þar sem Steingrímur stóð mitt á meðal messufólksins og talaði við það. Séra Björn gekk í milli manna, heilsaði öllum með handabandi og óskaði gleðilegs árs. Er hann bar að Steingrími tekur hann í hönd hans og segir: „Sæll og blessaður, Steingrímur, og gott og gleðilegt ár.“ Steingrímur svaraði um hæl: „Nú, þú sagðir þetta nú líka í fyrra og það hefur aldrei verið eins bölvað og síðan.“ Kímdu þá flestir og prestur ekki síður en aðrir. Tvennir tímar Jólin hafa sjálfsagt alltaf sinn boðskap að flytja, lítið breyttan. En allur þessi fyrirgangur nú, auglýs- ingamennska, glingrið, sem nú berst að börnum, bæði í kaupstað og sveit, er svo ólíkt því sem áður gerðist, að enginn samanburður kemur þar til greina. Tilbreytnin í öllum þessum jólaháttum, veisluglaumurinn, íburðurinn í mat og drykk, allt er þetta svo andhverft því, sem gerðist á fátæku heimili í afdal fyrir 80 árum, að þar verður ekki orðum að komið. En þrátt fyrir allan þennan ytri glans, er kannski ástæða til þess að efast um að gleðin sé jafn djúp og heit og eftirminnileg hjá börnum nú og hún var í allri fátæktinni og skortinum hjá mér og mörgu fólki á mínum aldri, þegar við vorum að ganga fyrstu skrefin til móts við jólin. Heima er bezt 529

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.