Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 18
Agúst Sigurðsson frá Möðruvöllum: Húnvetningur undir huliðshjálmi 2. grein Foreldrar sagnakonu okkar, Ólafar Sölvadóttur, sem tók sér nafnið Olof Krarer í Vesturheimi, þar sem hún varð víðfræg og öðlaðist fé og frama, áður en lauk, voru Solveig Stef- ánsdóttir og Sölvi Sölvason. Systra- böm á nágrannabæjunum Syðri- og Ytri-Löngumýri í Blöndudal. Solveig var fædd á Ytri-Löngumýri 22. maí 1831, dóttir bændahjónanna þar, Stef- áns Sveinssonar og Ólafar Halldórs- dóttur. Solveig fór nokkuð að heiman, þegar hún var orðin verkfær og er kunnugt, að hún var vinnukona á Kolugili í Víðidal vistarbandsárið ffá Auðkúla 1965 (mynd A.S.). Prests- seturshúsið var brotið niðurfyrir mörgum árum, en kirkjan, sem var vígð 1894, stendur enn,fegruð og endurbætt. vinnuhjúaskildaga 1852. Hún giftist nágranna sínum og bamsfoður, Sölva Sölvasyni á Syðri-Löngumýri í fardög- um 1855. Voru brúðhjónin skráð bú- andi á Ytri-Löngumýri í kirkjubókina á Auðkúlu. Sölvi var árinu eldri. Hafði verið í Reykjavík og víðar í vinnu- mennsku, en kom heim aftur sumarið, sem Solveig var á Kolugili. Löngumýrarbæimir em yztu byggð- arból í Blöndudal vestan jökulelfunnar og í Svínavatnssókn, en kirkjustaður- inn, sem er nágrannajörð að utan, er á Svínavatni í Svínadal. Auðkúlupresta- kall er í Svínavatnshreppi að fomri skipun sveitanna. Austan Blöndu er hinn stóri Bólstaðarhlíðarhreppur, skiptur í 4 sóknir, Bergsstaða-, Ból- staðarhlíðar-, Blöndudalshóla og Holtastaðasókn utan ffá Auðólfsstöð- um í Langadal, útkirkja ffá Blöndu- dalshólum að gömlu lagi, sem enn stóð í gildi á ævitíma Sölva og Solveigar. Fyrir rás viðburðanna lenti Sölvi aust- ur yfir á og bjó síðustu íslandsár sín á Brandsstöðum í Blöndudalshólasókn. Vom ástæður, að þar átti bústýra og sambýliskona hins snauða, bammarga manns, sveitfesti. í Föðurtúnum segir Páll læknir Kolka svo ffá, að Sveinn Sveinsson á Stijúgi í Langadal hafi keypt Syðri- Löngumýri á uppboði Hólastólsjarð- anna 1802 og byggi þar til dánardags 1827. Sölvi sonur hans tók síðan við 530 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.