Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 23

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 23
Haraldur Jóhannsson: ÍT% Aldrei betri Rætt við Kristján Jóhannsson/ óperusöngvara Kristján Jóhannsson, óperusöngvari. síðari hluta september mánaðar sl. ár söng Kristján Jóhannsson tjórar sýningar á Aidu í Ríkisóperunni í Vín. Undirritaður var sérlega hrifinn af þeirri uppfærslu og fannst mikið til túlkunar Krisjáns koma, enda var honum mjög fagnað í sýningarlok. Á næsta degi hittumst við til hádegisverðar á uppáhalds veitingastað hans í Vín, Trattoria „SOLE“ í Annagasse 8- 10, enda staðurinn nokkurs konar samkomustaður er- lendra sem innlendra heimssöngvara. Þó langt sé um liðið ætla hér að rifja upp nokkuð af því, sem okkur fór á milli. Ég byrjaði á að hafa orð á því við söngvarann að mér þætti, eftir sýninguna kvöldið áður, sem hann hefði náð meiri breidd í túlkun sinni, auk þess þætti mér sviðsör- yggið hafa vaxið. Viðmælandi minn brosti sínu blíðasta, en svaraði þessu ekki. Hann var að segja þjóninum hvað við vildum borða og drekka með slíkum orðaflaumi og tilburðum, að það var sem hann væri að segja honum hvernig maturinn skyldi tilreiddur. Ég var ekki einu sinni spurður álits. „Við fáum lambakótelettur að ítölskum hætti, með öllu tilheyrandi“, sagði hann svo. Maturinn kom og mér fannst hann alveg frábær. „Já, fannst þér það ekki, þær smökkuðust ekkert síður þessar en þær sem við fáum heima“. Krisján segist um þessar mundir vera búinn að vera 25 ár á Ítalíu, bætir svo við að hann eigi líka söngafmæli í Vín, en hann er búinn að syngja árlega í Ríkisóperunni þar sl. 10 ár. Nú hefur hann orð á að sýningin, sem ég sá kvöldið áður, sé óvenju góð, ekki síst með tilliti til þess hvað allir söngvararnir sungu vel, en það kemur oftar en ekki fyrir að á sýningum er mikill munur og á söngvurum líka. í sumum hlutverkum eru fyrsta llokks söngvarar, en í öðr- um meðal góðir eða jafnvel varla það. „Um þetta erum við sammála og líka það að áheyrend- ur eru mismunandi. Fólk með litla þekkingu á tónlist, sem er að reyna að tileinka sér glæsileik hins rómaða lis- flutnings, en kemst ekki langt með það vegna þekkingar- skorts, lætur sér þetta lynda. En svo eru hinir, sem vita nákvæmlega eftir hverju þeir eru að sækjast, þeir vilja heildargæði á flutningnum og það eru nákvæmlega óskir þessa fólks, sem við uppfyllum að þessu sinni, eins og þú sást og heyrðir í gærkvöldi. Ég næstum tárast þegar ég hugleiði hversu fagurlega allt rennur fram í listrænni ein- ingu, topp fólk í hverju hlutverki“, segir söngvarinn. Kristján segir mér nú frá því að kona sín hafi verið al- varlega veik í þrjú ár og hve mjög það hafi þyngt sér róð- urinn við að reyna að standa sig, „verið vængbrotinn“. Hann segir sig hafa skort þá sönggleði, og fyllingu sem honum er nauðsynleg til að geta einbeitt sér. En nú birtir á ný, bati konunnar er í sjónmáli og hún nú talin af lækn- um, úr allri hættu. Kristján segir elsta bróður sinn hafa látist úr krabba- meini á síðast liðnu ári, og var það mikið áfall. Hann tók Heimaerbezt 535

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.