Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Síða 26

Heima er bezt - 01.12.2002, Síða 26
Kristján tekur sterklega undir með þeim sem harma „hve troðið sé á tám íslenskra söngvara á landi voru.“ „í hvert sinn, sem til standa hátíðahöld einhvers konar, eru söngvarar þeir fyrstu sem leitað er til. Þetta gildir ekki bara á íslandi og ekkert skeður fyrr en þeir eru mættir á staðinn.“ Maður undrast auðvitað að það skuli hafa tekið ráða- menn þjóðarinnar yfir 50 ár að átta sig á , hve tónlistin er lífi mannsins samofin - en betra seint en aldrei. Kristján vill hér með gera að tillögu sinni að Gamla bíó verði selt, andvirðið látið renna til byggingar langþráðs tónlistarhúss, með óperuna þar innan dyra í huga. Upp- hæðin, sem fengist fyrir bíóið, væri fyrir auknum bygg- ingarkostnaði, ef af þessu yrði. Hann segir mörg slík fjölnota tonlistarhús vera í notk- un, sum þeirra ein bestu og þekktustu tónlistarhús í heim- inum og nefnir sem dæmi í Bandaríkjunum, í Gautaborg, og meira að segja í Salzburg, og þetta gengur vel upp og enginn muldrar. Svo bætir hann við: „Þjóðleikhúsið, stolt okkar Islendinga, hefur ekki verið nýtt til fulls samkvæmt lögum um starfsemi þess, en því er gert að vera óperu- og óperettuhús, jafnframt leikhúsi. Þjóðleikhússbyggingin er orðin gömul, lúin og tæknilega erfið í notkun, því er það mín skoðun að hún skuli brotin niður og nýtt Þjóðleikhús byggt á sömu lóð.“ Söngvarinn vill láta þetta duga af nöldri en segir nú frá því að að hann sé með tvo nýja geisladiska í smíðum. Hann hefur þann formála á að Pavarotti hafi sagt, „ég nenni ekki lengur að syngja fyrir 5 prósent almennings, ég vil fá 95 prósent," en talið er að 5 - 8 prósent hluti manna og kvenna leggi sig fram um að hlusta á óperutón- list. „Fyrir mig hafa verið samin 10 sönglög með texta, þau eru í léttari kantinum með trommum og rafmagnstónlist sem ívafi að hluta, nokkuð sem við köllum stuð. Á sama diski eru tvö lög eftir Gunnar Þórðarson og loks er búið að skrifa laglínu ofan á heimsþekkta hljóðfæratónlist eftir Bizet, Puccini, Mascagni og Mozart. „Hinn diskurinn er eingöngu kristilegs eðlis, Musica Sacra. Söngverk eftir Mozart, Verdi, Schubert og Bach auðvitað. Fjörtíu manna hljómsveit , Þjóðarhljómsveit Bulgaríu, „National Orchestra Bulgarian“ í Sofiu, leikur undir, þó verkin séu skrifuð fyrir 80 manna hljómsveit, en í sveitinni eru topp menn, jafnvel snillingar. Yfirbragð þessa disks eru áhrif frá litlu kirkjunni okkar Jónu í Desenzano del Garda. Yfirleitt er allt sem ég er að gera undir áhrifum þaóan. Á þessum síðusu árum hef ég breytst heilmikið. Ég tel að svið mitt og hugsun hafi víkkað og á sama tíma hafi ég líka vonandi stækkað sem listamaður, eins og þú bent- ir á þegar við hittumst hér í dag. Vín í september 2002 minninganna 1. hluti Ópið á leitinu Hér er svolítið atvik, sem gerðist rétt fyrirjól- in þegar ég var 11 eða 12 ára gamall. Eitt sinn á dimmu vetrarkvöldi sat öll Jjöl- skyldan á Anastööum inni í baöstofu. Uti var hláka og rigning og loft mjög þungbúið. Þá heyrðum við mikið hark í bœjardyrunum og litlu síðar ruddist maður til okkar inn á gólfið. Hann var fremur illa til reika, allur blautur og rennandi sveittur og svo móður að hann gat fyrst varla talað. Þegar hann mátti loks mœla, sagðist honum svo frá: morgun fékk ég boð frá bóndanum í Skarði, þar senrnann bað mig að taka út fyrir sig ýmsan smávarning og koma með hann úteftir. Þar sem ég hafði ekkert sér- stakt að gera, fór ég eftir hádegið niður í kaupfélag og keypti þetta og ætlaði að leggja strax af stað en hitti þar kunningja mína og varð okkur nokkuð skrafdrjúgt. Var farið að skyggja þegar ég komst af stað og niðamyrkur þegar ég var kominn út undir Kárastaði. Duttu mér nú í hug ýmsar kynjasögur, sem áttu að hafa gerst á Kárastaðaleitinu en orð lá á að þar væri reimt. Kom nú í mig mikill geigur en ég vildi þó ekki snúa við. Þegar ég kom þar sem ég sá ljósin á Ánastöðum, heyrði ég voðalegt angistar- eða neyðaróp neðan frá sjónum og 538 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.