Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 28

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 28
Kviðling kvæða - 114. þáttur Umsjón: Auðunn Bragi Sveinsson LÆ Agætu lesendur og vísnavinir. Þegar þetta hefiti berst til ykkar, verður orðið stutt til jóla. Alltaf er nokkur spenna í för með jóluundirbúningi, og við, sem aldin erum að árum, finnum jafnvel til nokkurs fiðrings. Skammdegið er langt og dimmt hér á norðurslóðum, þegar jörðin er jafn auð og dökk og hún hefur verið að þessu sinni. Þá lýsa jólaljósin og stytta þennan dimma tíma. Að vísu er gott að vera að miklu leyti laus við snjóinn og klakann. Margir hafa ort um jólin og langar mig að birta fáein erindi þeim helguð. Jóhann Gunnar Sigurðsson, skáldið sem dó aðeins 24 ára, yrkir þetta um jólin:; Nú eru jólin að nálgast, notar þau hver sem má. Barnið við gjöfunum brosir; batnar og ellinni þá. Helg eru jólin þar heima, sem hreiður mitt áður ég bjó. - En eins og hver annar ungi með aldrinum burtu ég fló. Jólin, sem við áttum sem böm í foreldrahúsum, geym- ast í minningunni meðan við lifum. Ovíst er, að við lifum jól síðar á lífsleiðinni, sveipuð viðlíka ævintýraljóma. Ég lifði mín síðustu jól í foreldrahúsum, þegar ég var 21 árs. Það var í afdal. Næstu jólum eyddi ég hér í Reykjavík, á matsölu þar sem ég þekkti fáa. Sören Kierkegaard, hinn heimsfrægi danski heimspekingur, skrifaði bók, sem heit- ir „Stig á lífsbrautinni“ (Stadier paa livets vej). Já, lífs- braut eins getur verið býsna margþætt, ekki síst ef háum aldri er náð. Eitt breytist þó minna en flest annað: tilfinn- ingin fyrir jólunum, sem við upplifum árlega. Vegna þess að þetta er vísnaþáttur, finnst mér við hæfi að birta nokkrar stökur helgaðar jólum. Fyrir jólin 1940 orti ég, 17 ára drengur, þessar vísur um jólin, og bera þær með sér að höfundurinn hefur hugsað um tilefni jólanna, hvað sem skáldskapargildi líður : Þau boða oss œtíð bjartan hag og blíðu í okkar hjarta og minna á œðsta andans lag, en ekki á myrkrið svarta. Alltafhaldin eru jól í æðstu þakkarkynning. Kristur, okkur indœlt skjól, eignast kæra minning. Þegar jólin helg og há í heimsins veldið inna, lít ég upp í loftin blá Ijóss til kynna þinna. Þetta var um jólin, sem ég vona, að verði mörgum ljós í skammdegi vetrarins. Þá er ég kominn að hagyrðingi mánaðarins eða skáldi, vilji menn heldur hafa það. Hver er munur á góðum hag- yrðingi og skáldi? Þannig má spyrja. Að þessu sinni kynni ég landsfrægan hagyrðing og skáld. Hann var fæddur í Kárahlíð á Laxárdal í Austur- Húnavatnssýslu 8. ágúst 1919 og var skírður Rósberg Snædal. Foreldrar hans voru hjónin Guðni Sveinsson, úr Fljótum í Skaga- firði, og Klemensína Karitas Klemensdóttir, frá Holti í Svínadal. Þau bjuggu á tveimur öðrum jörðum á dalnum: Vesturá og Hvammi. Rósberg minnist æskuheimkynna sinna ofit í ljóðum sínum, enda kom mér eitt sinn í hug þetta um það efni, en við ólumst upp á næstu bæjum, ég á Sneis og hann á Vesturá: 540 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.