Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 31
Niður stigann með braki og brestum ra- ri ---- brákaður á beinum flestum, ra- ri----- En sú hœtta, hugsið yður: á vinstra kjálkann kom ég niður, og kinnin varð sem blóðmörsiður, ra- ri----- Uppi heyrði ég einhvern hlœja, ra- ri----- hefði brosið átt að nœgja, ra- ri----- „ Hann er farinn, sá rœkalls raftur rumdi einhver karlmannskjaftur; svo var hurðinni hrundið aftur, ra- ri----- Ut úr skúrnum eg svo rölti, ra- ri----- Heim til sjálfs mín svo ég rölti, ra- ri----- Aldrei skal nein kvenmannsálka koma mér upp á hanabjálka, það sver ég við minn sjúka kjálka, . ra- ri-----. Benedikt Sigurjónsson frá Árbæ sendir langan ljóða- bálk, sem hann nefnir Vélskólapistil, en nám stundaði hann í rafmagnsdeild Vélskóla íslands 1949-50. Ég sé mér ekki fært að birta nema fá erindi, vegna rúmleysis í ritinu. Hér koma erindi: Sælt er að muna, þó margt sé nú gleymt, að mörgum liðnum árum. Mig ósjaldan hefur um það dreymt, þótt ört fjölgi gráum hárum. Kennaraliðið, það kœrt er mér enn; kannski égfáeinum gleymi. Einhverjir burtflognir; aðrir senn englar í jjarlægum heimi. Þetta var ort, þegar 40 ár voru frá námslokum. En hér á eftir fara vísur, ortar að loknum 50 árum frá því námi lauk í Vélskólanum, sem nú er að fá andlitslyftingu, eins og vegfarendur sjá: Hnípinn stendur holti á hálfsextugur skóli. Andlitslyfting á að fá, svo aftur valdi skjóli. Þarf að skipta á þaki um eir þessu næst -og kannske fljótt þá munu veggir þurfa meir; það er satt og gerist skjótt. Ég hefi í tveimur síðustu heftum HEB birt ljóð, sem helguð eru vissum kaupstöðum hérlendis. Hafnaríjörður og Isaijörður eiga örugglega sín átthagaljóð. Ég álykta, að ljóð Matthíasar Jocumssonar um Akureyri sómi sér vel enn sem átthagaljóð Akureyrar. Það er nokkuð langt, eða sextán erindi. Ég hefi valið fimrn erindi úr þessu ris- mikla ljóði þjóðskáldsins. AKUREYRI Heil og blessuð, Akureyri, Eyfirðinga höfuðból. Fáar betri friðarstöðvar fann ég undir skýjastól: Hýran bauðstu börnum mínum blíðu-faðm og líknar skjól. Þú átt flest, sem friðinn boðar, fjarðar drottning mild og holl, vefur grœnum fagurfaðmi fiskiríkan silfur „poll ", en í suðri Súlur háar sólargeislum prýða koll. Skrúðaveggur Vaðlaheiðar vendir að þér betri hlið, rammlegt fjall með reknar herðar reisir gafl við hánorðrið; út og suður sveitaraðir sumargrœnar taka við. Líf og björg á báðar hendur, blómatún og engi frjó, síldarhlaup og sjóbirtingar silfurglita lygnan sjó. Sett er borð, en sœgur fugla syngur hátt, að veitt sé nóg. Lifðu blessuð, Akureyri! Auðnu- við þig leiki -hjól, þó að tímans stríð og straumar sturli lýð og byrgi sól. Blessi þig með börnum þínum blessun guðs og líknarskjól! Þannig endar síðasti dægurljóðaþáttur þessa árs. Ég sendi lesendum hugheilar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár, og þakka skipti liðins tíma. Auðunn Bragi Sveinsson, Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík Netfang :audbras@simnet. is Heima er bezt 543

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.