Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Page 35

Heima er bezt - 01.12.2002, Page 35
sem annar hver maður virðist tala annað mál en norrænt, einkum á sumrin þegar ferðamannastraumurinn er hvað stríðastur. En þó að Osló sé útlend borg, þá á hún engu síður en aðrir bæir og byggðarlög Noregs, svo ótal margt er minnir á sögu tveggja norrænna þjóða, sitt hvoru megin hafsins. Fimmtudagsmorguninn 20. júní heilsaði okkur í Osló með sólskini og 20 stiga hita. Skroppið var í búðir og litið inn á söfn. Að því loknu var ferð- inni haldið áfram til næsta áfanga- staðar, sem var Lillehammer. Á leið- inni þangað var staldrað við eins og á Eiðsvelli og Harnri. í Lillehammer beið okkar kvöld- verður og gisting á öðru hóteli, „First Hotel Breiseth," sem einnig tilheyrði „First Hotels“ keðjunni, rétt eins og í Osló. Næsta dag, 21. júní, skoðuðum við byggðasaíhið á Maihaugen, sem norski tannlæknirinn Anders Sandvig setti á stofn árið 1887 og hefur stöðugt verið í uppbyggingu síðan. Meðal bygginga í því er Garma-staf- kirkjan frá 12. öld, en að vísu endur- byggð úr sínum upprunalegu viðum. Að því búnu héldum við áfrarn um blómlegar byggðir norður Guðbrands- dal, söguslóðir Péturs Gauts eða fyrir- myndar hans og Kristínar Lavrans- dóttur, frægrar persónu úr sögu Sig- ríðar Undset, með smá stoppum hér og þar, eins og í Ringebu, Otta, Dornbás og vestur Romsdalinn á leið- inni til Anddalsness, en þar beið okk- ar kvöldverður og gisting á Grand Hotel Bellevue, en þetta reyndust allt hin ágæt- ustu hótel. Stórbrotið landslag er víða í Romsdaln- um, fjöll yfir 1500 nretrar á hæð en mest- an svip á umhverfið setur Tröllaveggurinn, lóðrétt hamraþil, þar sem ofurhugar köst- uðu sér frarn af í fall- hlíf til skamms tíma Gömid mynd frá Skálavík Sandey. Hús Dalsgaards- hjónanna, þar sem Björn ritstjóri dvaldi, stendur þarna upp í hlíðinni, eitt sér. (Póstkort frá fyrsta áratugi 20. aldar). dalshornið (1550 metrar). Anddalsnes er vel hýstur bær enda var hann endurbyggður að stórum hluta eftir stríðslok, þar sem Þjóðverj- ar lögðu hann í rúst með sprengjuregni árið 1940. Laugardag- inn 22. júní var síðan ekið upp hinn margfræga Tröllastíg, „Troldstigen“ í 11 beygjum frá Isterdalnum í Roms- dal upp í 850 metra hæð. Þessi vegur er mikið mannvirki enda hefúr verið sagt að ekki færri en hundrað rnanns hafi unnið að staðaldri við vegarlagn- inguna árin 1916-36, að hann var opnaður til umferðar. Þarna uppi eru enn hærri fjöll, eins og Drottningin (1568 metrar), Kóng- urinn (1539 metrar) og Biskupinn (1759 metrar). Þaðan lá hálendisvegur yfir til Valldal við Stóríjörðinn. Þar (1986). Austan dalsins Eins og sést á þessari mynd er vegurinn upp rís svo sjálft Roms- Mabödalinn œði bugðóttur. Húsakostur Kjeásen-býlisins, innst í Harðangursfirði (Eiðsfirði) í Noregi. Brotna línan sýnir gömlu gönguleið- ina upp að Kjeásen býlinu, sem er í 600 metra hæð. lögðum við lykkju á leið okkar og ókum inn í botn Táfjarðar, en það var einmitt í þeim firði sem berghrunið ægilega varð úr fjallinu Langhamrin- um, aðfaranótt 7. apríl 1934, með þeim afleiðingum að 41 maður fórst í Táfjord og Fjörá, þegar mikil fljóð- bylgja myndaðist í firðinum við skriöufallið. Eftir að hafa litast þarna urn var siglt með ferju frá Lynge yfir Nor- dalsljörðinn til Sylte (Eidsdal) og ekið þaðan yfir fjallveg til Geirangurs- fjarðar. Á vestanverðri fjalIsbrúninni Heima er bezt 547

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.