Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.12.2002, Blaðsíða 36
Sama-bústaður á Harðangursheiði. Aðvörunarskilti við Kjeásen jarð- göngin, en í þeim geta stcerri bílar ekki mœttst. blasti þessi hrikalega fallegi ijörður allt í einu við augum okkar út um rútubílsgluggann. Fjörðurinn er ör- mjór og liggur í hlykkjum, svo að hann er líkastur stafnum S í laginu. Er hann talinn einhver hrikalegasti fjörð- ur í Noregi og um leið einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Það er alveg ástæðulaust að þegja um það hve smeykur ég var er við ókum niður Amarstíginn svonefnda, í 11 kröppum beygjum, en Bjartmar bílstjóri sat keikur við stýrið og Krist- ján fararstjóri í sætinu við hliðina og báðir störðu þeir niður í grænt hyl- dýpið á milli þess sem beygt var. Ein- hvers staðar í miðri fjallshlíðinni var bílastæði og útsýnispallur. Þar höfðu nokkrir bílar numið staðar meðan fólkið gekk fram á vegarbrúnina og litaðist um í þessu hrikafagra um- hverfi við trompetleik eins ferða- langsins. Þetta var mögnuð stund, svo ekki sé meira sagt og margar mynda- vélar voru á lofti. Fyrir fótum okkar lá grænn íjörðurinn, örmjór með snar- bröttum og himingnæfandi fjallveggj- um beggja megin, en hyldjúpur inn í botn, þar sem stórt skemmtiferðaskip Glœsipia, heldrimenn og eðalvagnar hjá Lesja-Bygdtuni, 21.júní 2002. Þarna eru þeir Baldur Þorvaldsson og Kristján fararstjóri staddir í 1500 metra hœð uppi á Dalsnibbu við Geirangursfjörð, 22. júní 2002. Þarna er rútan komin upp á brún og minjagripabúðir á hverju strái. 1 bak- sýn trónir fjallið Biskupinn (1759 metrar). 1 á skammt undan landi Geirangurs- bæjarins, sem fyrrum var kallaður Merok. Niðurlag í næsta blaði. 548 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.