Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2002, Side 42

Heima er bezt - 01.12.2002, Side 42
styrking á ónæmiskerfinu og ýmislegt fleira. Niðurstöður ýmissa rannsókna styðja og það sjónarmið, að þeir sem taka inn gingseng séu í minni áhættu með að fá ýmsar tegundir krabbameins. Hinn þekkti vísindamaður, dr. Florence C. Lee, segir á einum stað, að ekki megi rekja hin ýmsu áhrif ginsengs til eins eða fáeinna virkra efna. Þessi áhrif hljóti óhjákvæmilega að vera samtvinnuð áhrif fjölþátta efnakerfis, sem vísinda- menn séu enn ekki búnir að fá fullan skilning á og ginsengrótin inniheldur óvenju mikið magn virkra efna. Margar lækningajurtir hafa einungis eitt eða örfá slík efni, en í ginsengótinni er að finna minnst 40 virk efhi. Áhrif þau á manns- líkamann, sem rekja má til ginsengs, stafa af öllum þessum efnum, sem þá vinna saman sem ein heild. Má jafhvel líkja þessu samstarfi við symfóníu- hljómsveit og samhljóm þann, sem hljóðfærin í henni skapa og allir þekkja. Þegar ginsengrótin er orðin sex ára eru virku efnin í henni talin hafa náð fúllum krafti. Rauða ginsengið frá Kóreu er fyrst gufúsoðið til að halda kraffinum í rót- inni. Síðan er það sólþurrkað í mildri haustsólinni í Kóreu. Þannig fær það rauða litinn. Aðeins sérvaldar rætur fá þessa meðferð. Hvítt ginseng er ekki sólþurrkað og er talið hafa minni virkni en það rauða. Öfugt við önnur örvandi efiii hefur ginseng alls engin eituráhrif á líkamann. Það hefur beinlínis fjörgandi áhrif á þá sem þjást af ofþreytu, sleni eða streitu. Rannsóknir sýna að það jafnar horm- ónastarfsemina og brennslu í líkaman- um. Ekki þarf að taka mikið af geins- engi til að hin jákvæðu áhrif þess komi ffam. Ginseng er ekki ánetjandi og rann- sóknir sýna að þeir sem neyta þess eiga ekki í vandræðu með svefn, sem er gjaman fylgifiskur koffínneyslu. Nýlegar rannsóknir hafa einnig leitt í ljós að eldra fólk, sem neytir ginsengs reglulega, er hressara, bæði líkamlega og andlega. Það er af þessum sökum sem ginseng hefúr verið nefnt sannkall- að yngingarlyf. Það gerir fólk sprækara, þannig að það nýtur lífsins út í ystu æsar. Ginseng hentar þeim vel sem þurfa að vinna mikið undir álagi. Það er kjörið streitumeðal vegna þess að það hefur góð áhrif á taugakerfið. Það einfaldlega styrkir taugamar og gerir menn hæfari til að vinna undir miklu andlegu og lík- amlegu álagi. Rannsóknir haf t.d. sýnt að hlauparar ná betri tíma ef þeir taka ginseng. Sovétmenn hafa gefið geimför- um sínum það til að þeir hafi úthald í geimferðimar. Strangar reglur voru settar um ræktun ginsengjurtarinnar og ein var sú að rækt- unin skyldi vera algerlega líffæn. Bestu ræktunarsvæðin vom tekin frá og sér- stök lög sett um það hvemig bæri að planta jurtinni út. Fjarlægðin á milli plantnanna varð að vera nákvæm svo að hver rót fengi næga næringu. I dag eru sömu reglur í gildi. Það er t.d. kveðið á um að jarðvegurinn þurfi að jafna sig að minnsta kosti í tíu ár effir hverja upp- skem, því jurtin sogar til sín alla þá nær- ingu sem jarðvegurinn hefúr upp á að bjóða. Ginseng er lýst sem mildu náttúrulyfi, sem hafi fjölvirkandi áhrif. Menn em sammála um að það lækni ekki sjúk- dóma en sé hins vegar fjölhæfl upp- byggingarlyf. Greinin er unnin eftir ýmsum heimildum og greinum, þ.á.m.: Lyfjatíöindi: Er Ginscngneysla vöm gegn krabbameini í mönnum? / María Ásgeirsdóttir, lyfjafræöingur. Morgunblaöiö: Um innihaldsefni Ginsengrótarinnar / Oddur C.S. Thorarcnscn. Dr. Si-Kwan Kim, prófessor viö Konkuk-háskólann í Seol: I’ríndi, IK. t'cbriiar 2002. O.fl. Pleasure Créme™ Fyrir konur yCáltúríeyí Árem tilaú ciuíia unab i Áynlij-i. Pleasure Créme frá Dermaláge er af nýrri kynslóð örvunar- og unaðskrema. Kremið er gert úr sérstakri blöndu náttúruefna sem hefur staðbundin örvandi áhrif á taugar og útvfkkandi áhrif á æðar mjúkvefjanna. VLyf&heilsa Apf tekarinn www.pleasurecreme.is 554 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.