Rit Mógilsár - 2023, Blaðsíða 3
Rit Mógilsár 3
Ræktunaröryggi, vöxtur, fræmyndun
og heilbrigði kvæma íslensks birkis
Brynjar Skúlason1*, Brynja Hrafnkelsdóttir1
og Aðalsteinn Sigurgeirsson2
1 Mógilsá, rannsóknasvið Skógræktarinnar
2 Skógræktin
* Skógræktin, Gömlu-Gróðrarstöðinni, is-600 Akureyri,
brynjar.skulason@skogur.is
Samantekt
Íslensku birkiskógarnir eru breytilegir að hæð og
gerð. Erfitt getur reynst að greina hvað þar ræður
mestu, arfbundnir eiginleikar eða staðbundnar
umhverfis aðstæður. Vorið 1998 var sett út kvæma-
tilraun með 50 kvæmum, gróðursett á níu mismun-
andi tilraunastaði og voru fimm þeirra mældir árin
2020 og 2021. Hæð og þvermál plantnanna var mælt
auk þess að lifun, ryðmyndun og fræmagn var metið.
Jákvæð fylgni var fyrir alla eiginleika í einkunnum
kvæma milli tilraunastaða og oftar en ekki marktæk
sem bendir til að eiginleikarnir stýrist af arfgerð
fremur en umhverfi. Mjög góð fylgni fannst á
milli sunn lensku tilraunastaðanna í lifun, þar sem
kvæmið Steina dalur er afgerandi best og kvæmin frá
Suðaustur- og Suðvesturlandi raðast nánast öll fyrir
ofan kvæmin frá Norðaustur- og Norðvestur landi.
Röðun kvæma í lifun er breytilegri á tilraunastöðum
á Norður landi og á Vest fjörðum. Bæjarstaða birki
og skyldir stofnar hafa al mennt mestan lífmassa
og kvæmin frá Suðaustur- og Norðausturlandi hafa
fæsta auka stofna. Skýrustu niður stöðurnar eru fyrir
fræ myndun og ryð þol þar sem birkið frá Suðaustur-
landi hefur yfirburði í ríkulegri fræmyndun og besta
þolið gagn vart birkiryði. Við notkun birkis fyrir lág-
lendi Íslands má nýta þann kynbóta ávinning sem
yrkið Embla sýnir og auka erfða breytileikann með
því að bæta klónum inn í þýðið frá kvæmum sem
koma vel út í til rauninni s.s. Steina dal, Þing völlum,
Þórs mörk og Bæjarstað.
Abstract
Title: Cultivation dependability, growth, seed forma-
tion and health of Icelandic birch provenances
The Icelandic downy birch woodlands show sub-
stantial variation in both height and growth habit
(straightness, shrubbiness) at maturity. However, it
can be difficult to distinguish which is more domi-
nant, hereditary characteristics or local environmen-
tal conditions on the particular site. In the spring of
1998, a seed experiment was set up with 50 prove-
nances of Icelandic downy birch (Betula pubescens),
planted on 9 different test locations. Measurements
were made in five of those locations in 2020 and
2021. The height and diameter of the plants were
measured, as well as survival, rust formation and
seed quantity. There was a positive correlation for
all traits in the scores between experimental sites
and differences were significant in the majority of
cases, which indicates that the traits are determined
by genotype rather than environment. A very good
correlation was found between the southern test lo-
cations in terms of survival, where the Steinadalur
provenance is decisively the best and the prove-
nances from the Southeastern and Southwestern
parts of the country are almost all ranked above
those from the Northeast and Northwest. The rank-
ing of provenances in terms of survival is more vari-
able at experimental sites in North Iceland and in
the Westfjords. The birch from Bæjarstaður Forest in
Southeast Iceland and nearby populations generally
show the highest biomass figures, and the birches
from the Southeast and Northeast are least likely to
develop multiple stems. The clearest results are for
seed yield and rust resistance, where the birch from
the Southeast has an advantage in abundant seed
production and the highest resistance to birch rust.
When using birch for woodland creation in the low-
lands of Iceland, it seems viable to take advantage of
the breeding benefits shown by the cultivar 'Embla',
as well as promoting increased genetic variation by
adding clones to the population from provenances
that have shown positive results in the experiment
such as birch from Steinadalur, Þingvellir, Þórsmörk
and Bæjarstaður.