Rit Mógilsár - 2023, Síða 8
8 Rit Mógilsár
um að vera normaldreifð. Óparametrískar aðferðir
við greiningu gagna gáfu mjög svipaðar niðurstöður
um marktækan mun milli kvæma svo ákveðið var
að nota hefðbundna fervikagreiningu við úrvinnslu
gagna þrátt fyrir að skilyrði um normaldreifingu
væri ekki uppfyllt.
Ef fervikagreining leiddi í ljós samspilsáhrif milli
tilraunastaðar og kvæma var skoðuð fylgni kvæma
milli staða fyrir viðkomandi eiginleika. Tekið var mið
af marktækri fylgni við frekari greiningu gagnanna.
Reiknuð voru meðaltöl kvæma ásamt staðalskekkju
sameiginlega fyrir staði með marktæka fylgni en sér
fyrir staði sem sýndu umtalsverð frávik frá öðrum
tilraunastöðum. Við samanburð kvæma þar sem
meðaltöl eru byggð á fleiri en einum tilraunastað,
var einungis reiknað fyrir sameiginleg kvæmi.
Þegar reiknað var fyrir einstaka staði var byggt á
öllum kvæmum sem voru prófuð á viðkomandi
tilraunastað.
Niðurstöður
Heildarlifun í tilraununum var nokkuð breytileg eða
25% á Fagurhólsmýri, 55% á Læk, 74% í Varmadal
og á Hjaltastað en einungis 11% á Haukadalsheiði.
Reiknuð var fylgni í einkunnum kvæma milli staða til
að meta hvort kvæmin röðuðust ólíkt eftir því hvar
þau væru gróðursett (tafla 3).
Tafla 3. Fylgni (R2) milli staða fyrir einkunnir kvæma fyrir mismunandi eiginleika. Rautt skáletur táknar að fylgni sé marktæk
(p<0,05).
Lifun Fagurhólsmýri Hjaltastaður Lækur Varmadalur
Hjaltastaður 0,323
Lækur 0,354 0,553
Varmidalur 0,708 0,450 0,515
Haukadalsheiði 0,732 0,377 0,397 0,749
Fræ Fagurhólsmýri Hjaltastaður Lækur
Hjaltastaður 0,725
Lækur 0,426 0,722
Varmidalur 0,757 0,896 0,737
Rúmmál Fagurhólsmýri Hjaltastaður Lækur
Hjaltastaður 0,249
Lækur 0,203 0,641
Varmidalur 0,662 0,576 0,422
Fjöldi stofna Fagurhólsmýri Hjaltastaður Lækur
Hjaltastaður 0,148
Lækur 0,216 0,384
Varmidalur 0,350 0,567 0,545
Ryð Fagurhólsmýri
Varmidalur 0,297
Fylgni milli staða er ávallt jákvæð og oftast mark-
tæk; t.d. er marktæk fylgni milli allra staða fyrir fræ-
myndun. Fyrir aðra eiginleika er helst skortur á fylgni
milli Fagurhólsmýrar annars vegar og Hjalta staðar
og Lækjar hins vegar.
Fagurhólsmýri, Haukadalsheiði og Varmadal var
sleg ið saman í greiningu fyrir lifun (3. mynd) en
Hjalta staður og Lækur greindir sérstaklega (4. og 5.
mynd).