Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1918, Page 34

Sameiningin - 01.02.1918, Page 34
384 Lát nerncndurna rifja upp sögu hverrar lexíu, fvrirsafnirnar og helztu lærdómsatriöin. í staö þessa má koma: PÁSKALEXIA. LEXÍUTEXTINN: 1. Kor. 15, 50-58. MINNISTEXTI: Guði séu þakkir, sem gcfur oss sigurinn fyrir Drottinnn vorn Jesúm Krist.—1. Kor. 15, 57. Páskarnir eru hátíð ódauðleikans — sigurhátíð lífsins. Ódauð- leikavon kristins manns stendur bjargföst á vissunni um það, að Kristur er risinn upp. Les sannanir postulans í upphafi kaþitulans. Lexían er dýrmæt fyrir þá sök, að hún lyftir hjörtum vorum sigri hrósandi til Guðs út af ódauðleikavissunni. Eins getum vér fundiö í henni góð svör við ýmsum mótbárum vantrúarinnar gegn ódau'ðleika- kenningunni, ef vér lesum hana vel. VERKEFNI: 1. Upprisuvissan. 2. Helztu sannanirnar fvrir upprisu Krists. --------o-------- Fréttir lrá Árdals-söfnuði. Árdals-söfnuður hélt ársfund sinn í kirkju safnaðarins í Arborg þann 6. Jan. s. 1.' Voru þar lagðir fram reikningar fyrir síðastliðið ár, safnaðarstjórn kosin og önnur venjuleg safnaðarmál rædd og afgreidd. Höfðu fjármál safnaðarins gengið venju fremur vel, tekjur með mesta móti og talsvert borgað í skuldum, sem hvíla á kirkjunni og á íbúðarhúsi prestsins. í safnaðarstjórn voru kosnir þeir Tryggvi Ingjaldsson þformað urj, Sigurjón Sigurðsson þskrifari), Friðrik Níelsson ('féhirðirj, Stefán Guðmundsson og Jón M. Borgfjörð. Djáknar: Mrs. Ingjalds- son, Mrs. Sigurðsson, Mrs. S. Oddsson, Þorsteinn Hallgrímsson og 1‘órarinn Gíslason. Sökum dýrtíðarinnar ákvað söfnuðurinn að hækka tillag sitt til prestslauna um $50.00 á ári. Hefir borgað að sínum parti $350.00 um árið, en borgar nú $400.00 Samþykti fundurinn og áskorun til hinna safnaðanna, að hækka að sínurn parti tillög sin til prestslauna, eftir því sem þeir sæi sér fært og þurfa þætti, og fól skrifara sínum að tilkynna söfnuðunum þessa áskorun. Taldi fundurinn vist að þess- ari málaleitun mundi verða vel tekið. Þá samþykti fundurinn að ráðstafanir yrðu gerðar til þess, að kirkja safnaðarins yrði vígð einhverntíma á næsta sumri. “BJARMI”, kristilegt heimilisbla'S, kemur út í Reykjavík tvisvar á mánuði. Ritstjóri eand. S. Á. Gíslason. Kostar hér I álfu 85 ct. árgangurinn. Fæst í bókaverzlun Finns Jónssonar f Winnipeg. “SAMEINTNGIN” kemur út mánaSarlega. Hvert númer tvær arkir heilar. Verð einn dollar um áriS. Ritstjóri: Björn B. Jónsson, 659 William Ave., Winnipeg, Canada.—• Hr. Jón J. Vopni er féhirðir og ráðsma'ður “Sam.”—Addr.: Sameiningin, P. O. Box 3144, Winnipeg, Manitoba.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.