Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.12.2006, Blaðsíða 4
Ágætu lesendur. Kátt er á jólunum, krakkarnir syngja, kveikt eru Ijósin ogfarið í bað. Klukkurnar allar í kirkjunum hringja, kjötið er soðið og Ijújfengt er það. Lundin erglöð, þó að lágt fari sól. Lifandi ósköp ergaman um jól. Ofan úrfjöllunum karlamir keifa, kertin að sníkja ogsleikja innan pott. Hurðum þeir skella og húfunum veifa háma í sig skyrið, það þykir þeim gott. Þeir fara á gluggann og þefa um gœtt, þá er nú bjúgum og kjötlæmm hætt. Svona orti leikarinn þjóðkunni, Þorsteinn Ö. Stephensen, um miðja síðustu öld, og var textinn sunginn undir lagboðanum „Komdu og skoðaðu í kistuna mína...“ Erindin eru reyndar öllu fleiri en hér eru birt, eða sex alls. Ymislegt hefur nú breyst í jólasiðunum ffá því Þorsteinn orti þetta, og má t.d. ætla að í dag teldi höfiindur varla þurfa að taka það ffam í texta sínum að farið hafi verið í bað fyrir jólin, sérstaklega. Sá var nú siðurinn reyndar, og fóru kannski sumir varla í bað nema í þetta eina skipti á árinu, og sumstað- ar var jafnvel sama vatnið nýtt fyrir alla. Nú er öldin aldeilis önnur, því fyrir skömmu gerði ein útvarpsstöðin könnun á því meðal hlustenda sinna, hversu oft fólk færi í bað, og reyndist útkoman vera sú að 56% svarenda, ef ég man rétt, fóru í bað eða sturtu á hverjum degi, restin annan hvem dag eða sjaldnar. Skyldi ekki forfeðrum okkar hafa þótt þetta nokkurt svo mikið bmðl í vatnsbúskapnum, hefðu þeir mátt vita hvað ffamundan væri í þessum efnum. Annað í þessum tveim erindum Þorsteins á nú reyndar ágæt- lega við enn í dag, svo sem að kveikt séu ljósin, þau em orðin hreint ótrúlega mörg í jólaskammdeginu, kjötið er soðið ennþá, lundin er glöð og sólin fer enn lágt um þetta leyti og flestum þykir gaman um jólin. Og enn er talað um gömlu jólasveinana okkar, þó þeir hafi reyndar farið allnokkuð halloka fyrir þeim ameríska, hina síð- ari áratugina. Þjóðminjasafnið hefur reyndar unnið mjög þarff verk í því að viðhalda ímynd þeirra og háttum, með því að láta þá birtast í safninu síðustu f3 dagana fyrir jólin, við góðar undirtektir. Og það verður að segjast eins og er, að íslensku jólasvein- amir em að afar mörgu leyti mikið trúverðugri en sá ameríski, sem ég kalla svo, þó hann eigi nú kannski uppmna sinn í Evr- ópu, upphaflega. Þeir em býsna jarðbundnir og fást bara við þá hluti sem hendinni em næstir og ferðast jafnan á tveimur jafnfljótum. Sá ameríski, aftur á móti, hefur þá ímynd að fara um allan heiminn með hreindýr og sleða, á einu kvöldi og heimsækja hvert einasta bam, sem á hann trúir. Það er auðvitað góðra gjalda vert að eiga þessa fallegu sögu og siði, sem orðnir em í kringum hann, en ég sá fyrir ekki allslöngu gamansama útreikninga á þeim afköstum sem hann þyrfti að ráða yfir blessaður karlinn, ef hann ætti að standa undir því sem honum er ætlað, og varð niðurstaða þeirra reikninga eiginlega sú, að það stendur varla steinn yfir steini varðandi tiúveröugleika hans. Þar er fyrst til að taka að flestum er nokkuð ljóst að engin þekkt hreindýrategund kann að fljúga. Bent er þó á í því efni að talið er að enn séu til um 300.000 tegundir lífvera sem mönn- um hefur ekki tekist að skrá eða finna. Þó að þær séu flestar úr heimi skordýra og sýkla, þá þýðir það að eldci er algjörlega hægt að útiloka að til séu fljúgandi lireindýr, sem enginn hafi séð nemajólasveinninn. Talið er að um 2 milljarðar bama séu til í heiminum (undir 18 ára aldri), en þau em ekki öll kristinnar trúar, svo reikna má með að vinnuálag jólasveinsins minnki þar með niður í 15% af því og að hann þurfí að heimsækja um 378 milljónir, sem þætti nú ærið verkefni, engu að síður. Og ef reiknað er með að 3,5 böm séu á hverju heimili, þá verða þetta 91,8 millj- ónir heimila. Sumir vilja meina að jólasveinninn hafi ekki nema 31 klukku- stund til þess að ljúka verkinu, og er þar tekinn með í reikning- inn tímamismunurinn á jörðinni, og það myndi þýða að hann yrði að komast yfir 822,6 heimsóknir á sekúndu. Það þýðir að fyrir hvert heimili með góðum krökkum, hefði jólasveinninn 1/1000 hluta úr sekúndu til þess að leggja sleðanum, hoppa út, skríða niður reykháfmn, fylla skóinn, setja restina af gjöfunum undir jólatréð, smakka á góðgæti sem kann að vera á borðum, fara aftur upp reykháfínn (ef hann er til staðar að segja), kom- ast á sleðann aftur og koma sér að næsta húsi. Ef gert er ráð fyrir því að þessum 91.8 milljónum stoppstaða sé dreift jafnt um jarðarkúluna (sem auðvitað er ekki, en það auðveldar útreikninginn að gera ráð fyrir því), þá emm við að tala um rúman kílómeter á hús, þ.e. 1,3, sem gerir nærri 70 milljónir kílómetra, og þá ekki talin með stopp sem flestir verða Framhald á bls 607 572 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.