Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.12.2006, Blaðsíða 7
Jón Sœmundsson og Helga Tómasdóttir, foreldrar Theodórs. sókn en við áttum aldrei kött. Það hagaði þannig til að pabbi byggði bílskúr á bak við húsið. Milli bílskúrsins og hússins var kolakassi, en búsið var kynt með kolum og seinna með olíukyndingu; það voru þvottasnúmr bak við húsið og rottan var þar. Mamma sagði pabba frá þessu þegar hann kom heim í hádegismat. Gyða, móðir Elísabetar. Hann brá sér með byssuna í eldhúsgluggann og skaut rott- una. Þetta er ekki skemmtileg minning. Það þurfti að þvo þvottinn aftur með einhverjum sótthreinsandi aðferðum, sem ég man ekki hverjar voru. En þrátt fyrir margt neikvætt um tilvist mýrarinnar má segja að hún yrði sælureitur krakka og unglinga á vetmm. Stjömu- björt kvöld með sindrandi norðurljósum, sem glömpuðu á svellinu; þeim er ekki hægt að gleyma. Það var óskaplega dimmt í kring og engin útiljós að lýsa hverfið upp. Næsta hús við Sunnuhvol var Bjarg og þar var fyrst kúabú, sem ég man vel eftir, en svo var þar svínabú. Guðjón bróðir minn var alltaf á sumrin úti í þessu svínahúsi á stuttbuxum og gúmmístígvélum, hann var kallaður Gussi grísakóng- ur. Svo voru þama aliendur og hænsni. Þetta bú átti Isak á Bjargi. Hann hafði nrisst konuna sína, móðurbamanna, en þegar ég man eftir átti hann konu sem hét Jóhanna. Oft var ég send að Bjargi til að kaupa egg. Þá afgreiddi Jóhanna mig. Mamma átti litla, hvíta emileraða fötu nreð tréhaldi, sem eggin voru sett í. Jóhanna gaf mér oft plötu af Síríus suðusúkkulaði þegar ég kom, hún var afskaplega góð við okkur. Svo er mér alltaf minnisstætt einhverju sinni þegar ég kom að sækja egg, að vinnumennimir, sem voru ýmist Fær- eyingar, Danir, Þjóðverjar og Hilda, sem var vinnukona, sátu í eldhúsinu og voru aö borða rúgbrauð með svínafeiti ofan Jón Guðjónsson, faðir Elísabetar. fóður í dýrin. Foreldrar Elísabetar Jón og Gyða með Kristínu. á, „fedtmad.“ Seinna vissi ég að síld var notuð með, sem sagt afar danskt. Það var sérstaklega gott fólk á Bjargi mikill vinskapur á milli húsanna. Alltaf fyrir jólin kom Isak á Bjargi til okkar með aflangan pakka undir hendinni sem var vafmn í smjörpappír. I pakkanum vom grísakótelettur. Eg man alltaf hvað þær vom góðar og ekkert fiskibragð af þeim, eins og algengt var með grísakjöt. Þetta kom til af því að Isak lét sjóða allt Það var einu sinni á jóladag, þegar ég vaknaði, og fór franr í stofu, að ég fann megna brunalykt. Ég fór inn í her- bergi til pabba og mömmu og sagði þeim frá þessu. Það var kviknað í svínabúinu. Ég man að pabbi rauk á fætur og út og fór að sprauta með vatnsslöngu á hliðina á húsinu okkar en reykinn frá svínabúinu og hitann lagði á Blómvelli. Þetta var hræðilegt áfall og okkur fannst það öllum. Þetta fór mjög illa með Isak. Annað er mér minnisstætt frá þessum árum, og það var þegar ég lék mér í fjörunni fyrir neðan, þar sem var birgða- skemma Gísla Jónssonar, alþingismanns, en pabbi vann hjá hjá honum. Þar var lagerinn með niðursuðuvörum, seinna Bíldudals grænar baunir. Það er enn eftir grunnurinn af skemmunni rétt við Útsali. Fjaran var mikill leikvöllur og ég fékk að sitja í hjá pabba þegar hann fór heim í mat. Sveitin mín Ég var send í sveit þegar ég var sex ára en var ekki nema eina viku fyrsta sumarið. Það var í gegnum pabba, því hann hafði verið í sveit hjá langafa sínum í Hlíð í Grafningi, en ég var á Torfastöðum, sem er mjög nálægt Ingólfsfjalli. Heimaerbezt 575

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.