Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 41
BOKAKYNNING
Jón R. Hjálmarsson:
Þjóðkunnir menn
við þjóðveginn
Frá landnámi
til lýðveldis
/ þessari nýstáríegu bók er lagt upp í
langferð I huganum og haldlð kríngum
landið eftir hringveginum og ýmsum
vegum út frá honum. Sagt erfrá leiðum
og staðháttum og loks staldrað við á
fæðingarstöðum fjölmargra einstakl-
inga sem komið hafa við sögu með
einum eða öðrum hætti í aldanna rás
og rakinn æviferill þeirra.
Betri heyrn -
bætt lífsgæði
Lifðu lífinu lifandi og njóttu þess að eiga góð
samskipti við fjölskyldu og vini á efri árunum.
mmr
V JÓNR.HJM.MMKSON
í þessu mikla ferðalagi um landið stíga fram á
spjöldum sögunnar karlar og konur, ungir og aldn-
ir, landnámsmenn og leiðtogar, kirkjuhöfðingjar og
kennimenn, athafnamenn og andans hetjur, baráttu-
menn og brautryðjendur, skáldsnillingarog skapandi
listamenn, útlagarog ævintýramenn og margiraðrir,
sem markað hafa spor.
Bók þessari svipar að nokkru leyti til fyrri þjóðvega-
bóka eftir sama höfund, en þær hafa notið mikilla
vinsælda sem menningartengdar ferðabækur. Þess
er að vænta að þessi nýja bók muni ekki síður þykja
ómissandi ferðafélagi þegarfarið er um landið, enda
má segja að í henni renni land og saga saman í eitt,
líkt og í lygnum straumi. Þess má samt geta að ekki
er nauðsynlegt að vera á ferðinni til að njóta bókarinn-
ar, því hana má engu síður lesa í ró og næði heima
fyrir og láta jafnframt hugann reika út um sögusvið
hinna breiðu byggða.
Útgefandi: Bókaútgáfan Skjaldborg ehf.
Kvöldlag við kirkjudyr
Kirkjustaðir á Vestjjörðum -
Vestur-Isafjarðarsýsla
í fyrra kom út bókin í manns
munni, þar sem síra Ágúst Sig-
urðsson frá Möðruvöllum segir
frá öllum kirkjusetrunum 15
í Barðastrandarsýslu. Hér er
komið að kirkjusetrunum 12
í vesturhluta ísafjarðarsýslu.
I þessum handhægu bókum
er slungið saman gömlum
fróðleik og nýrri með fjöl-
breyttum sagnamáta, ásamt
því sem aragrúi ljósmynda
lýsir textann.
Á9úst Sigufðsswi
Kvöldlag við kirkjudyr
Kirkjiístaðir á Vestfjðrðum
Vestur-ísa^arðarsýsla
„Þessir þættir eru að minum
dómi svo hæfilegur skammt-
ur fróðleiks, að sá, sem vill vita deili á kirkju-
stað sínum, hefur hér flest, sem máli skiptir, en þarf
þá ekki að vinsa úr einhverjum ókjörum, sem maður
lætur sig lítið varða.“
(Erlendur Jónsson I ritdómi í Morgunblaðinu um eina
af bókum sr. Agústs Sigurðssonar um kirkjustaði).