Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Síða 13

Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Síða 13
Convaír „Pogo“. undir eins nægilegum flughraða til þess að væng- irnir beri hana uppi. Þessari hugmynd varð aðeins hrundið í fram- kvæmd vegna geysilegra framfara, sem orðið hafa á orku — og þyngdarhlutfalli flugvélahreyfla með tilkomu þrýstihreyfilsins. Og með enn meiri full- komnun á þessu svið er talið eigi ósennilegt, að framtíðarhreyflar muni ná svo hagkvæmu orku- þyngdarhlutfalli, að þeir eigi að geta lyft flugvél- um 100 sinnum þyngri en þeir vega sjálfir, m. ö. o. 200.000 punda þung flugvél mundi því þurfa að- eins 2000 punda þungan hreyfil til að lyfta sér til flugs. Sú gerð flugvéla, sem líklegust er talin til hag- nýtingar þessari nýju uppgötvunar í framtíðinni, er þríhyrningslaga (delta) og á að geta flogið tvisvar sinnum hraðar en hljóðið. Er áætlað, að smíði slíkr- ar flugvélar taki 15 ár. Eins og áður er að vikið, eru flugvélar þær, sem smíðaðar hafa verið til lóðrétts flugtaks, mjög misjafnar að gerð og lögun. Fyrir tveimur árum komu fram á sjónarsviðið í Bandaríkjunum tvær flugvélar, sem smíðaðar voru fyrir sjóherinn, og áttu að geta hafið flug lóðrétt. Eru þær að því leyti frábrugðnar öðrum flugvélum, að þær eru reistar upp á endann, og eru lendingarhjól þeirra aftan á stélflötunum. Báðar flugvélarnar, Lockheed og Convair „Pogo“, eru knúnar af þrýstihreyflum, og er orka þeirra nýtt með venjulegum loftskrúf- um, tveimur á hvorri flugvél, sem snúast um sama ás, en gagnstætt hvor annarri. Loftskrúfurnar toga flugvélarnar lóðrétt upp í flugtakinu, síðan halla flugmennirnir þeim smám saman í lárétt flug, eykst þá flughraðinn, og vængurinn ber flugvélina uppi. Þegar lenda skal, er flugvélunum beitt upp á við til að draga úr hraðanum, og síðan eru þær látnar síga lóðrétt á endann til jarðar. Bell-flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum hafa jafnan staðið mjög framarlega í nýjungum á sviði flugtækninnar. Þær hafa heldur ekki látið sitt eftir liggja á þessu nýja sviði, enda ekki illa af stað farið, því að þær senda samtímis frá sér tvær ólíkar flugvélar, sem geta hafið flug lóðrétt. Önn- ur þeirra, Bell V.T.O.L. (Vertical take-off and land- ing), er knúin af tveim litlum 1000 þrýsti-punda Fairchild þrýstihreyflum, sem komið er fyrir undir vængnum og halla má um 90 gráður — lóðrétt og lárétt. í flugtaki eru hreyflarnir í lóðréttri stöðu og orka þeirra, 2000 pund samtals, verkar upp á við og lyftir flugvélinni, sent vegur rninna en 2000 pund í láréttri stöðu frá jörðu. Þegar öruggri hæð er náð, er hreyflunum smárn saman hallað í lárétta stöðu til venjulegs flugs, og ber vængurinn flugvél- ina þá uppi. Þar eð flugvélin er búin venjulegum stýrum á stéli og væng ,sem þurfa flughraða til að verka rétt, var vandamálið með jafnvægis-stjórn hennar í lóðréttu flugtaki leyst með því að koma Bell V. T. O. L. FLUG - 11

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.