Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Blaðsíða 17
7
FBA STAMFSEMl FLUGFELAGS ISLANDS
Flugfélag íslands hefur í sumar hafið áætlunar-
ferðir til þriggja nýrra staða erlendis — Glasgow,
Stokkhólms og Hamborgar. Fyrsta flugferðin til
Glasgow var farin 7. maí, til Stokkhólms 13. maí,
og Hamborgarleiðin var vígð 15. júní. Gestum
var boðið héðan að heiman, bæði til Stokkhólms
og Hamborgar, í tilefni af opnun flugleiðanna milli
Reykjavíkur og þessarra borga. Þá hafa sænskir og
þýzkir blaðamenn heimsótt Island í boði Flugfélags
íslands, og hefur í því sambandi verið skrifað mik-
ið um ísland og íslenzk málefni í blöð, bæði í
Svíþjóð og Þýzkalandi.
Ýmsir hinna erlendu blaðamanna hafa íurðað
sig á hinni öru þróun, sem orðið hefur í flugmál-
um' okkar liin síðari ár. Bert Ibring, blaðamaður
við Stokkhólmsblaðið Morgon-Tidningen, sem var
einn í hópi sex sænskra blaðamanna, sem Flugfélag
íslands bauð hingað til lands, er félagið hóf reglu-
bundnar flugferðir til Stokkhólms, segir m. a. í
grein, sem hann hefur ritað í blað sitt: „Menn
verða að ferðast til íslands til að kynnast flugvél-
um sem alþýðlegu samgöngutæki. Þar ferðast ar-
lega þriðji hver íbúi með flugvélum. Flugfélag ís-
lands, sem annast allt innanlandsflug, kallar sig,
með hliðsjón af þessu heimsmeti, „stærsta litla flug-
félag í heimi.“ Fyrirsögnin í grein Ibrings á for-
síðu í Morgon-Tidningen er svohljóðandi: „Ein-
stætt heimsmet — íslendingar eru mesta flugþjóð í
heimi." Hann heldur áfram og segir m. a.: „Komið
um eins og t. d. Douglas DC-3. Þó var að sjá sem
rafknúinn mótor aftast. í vélinni væri til að létta
undir með hreyfingu liæðarstýrisins.
Eftir því, sem bezt er vitað, hefur aðeins ein flug-
vel verið smíðuð stærri en Convair XC-99, nefni-
lega Hercules-flugbátur — Howard Hughes, sem
hafði átta hreyfla og var að öllu leyti úr tré. Hann
flaug aðeins einu sinni í örfáar sekúntur, en er nú
ekki við líði lengur.
Myndirnar, sem hér fylgja með af Convair XC-99,
voru teknar á Keflavíkurflugvelli af Karli Eiríks-
syni flugmanni og R. T. Wall flugvélaeftirlits-
manni.
á flugvöllinn í Reykjavík. Flugstöðin er látlaus
bárujárnsbygging. Þar bíður alls konar fólk. Þér
sjáið kaupsýslumenn og skemmtiferðamenn innan
um sjómenn og hæglátar bændakonur. Þér takið
yður far með flugvél til austurhluta eyjarinnar og
setjizt við hliðina á skólabörnum og húsmæðrum,
sem virðast hafa farið til höfuðstaðarins til að kaupa
til búsins. Allt er þetta alþýðufólk. I flugvélinni
er ekki einn einasti maður, sem þér mynduð telja
tilheyra „yfirstétt“. Brátt eruð þér kominn á loft.
Þetta er spennandi flugferð yíir stórfenglegt lands-
lag. Hraun, kulnuð eldfjöll, Hekla, Vatnajökull.
En fólkið í vélinni sökkvir sér niður í blöðin, sem
flugfreyjan útbýtir. Einstaka skólabarn lítur út um
gluggann, en bandarísku hasarblöðin virðast hafa
Flugmálastjóri Skotlands býður Örn Ó. Johnson, frkvstj.
b. /., velkorninn lil Renfrewflugvallar í fyrstu ferðinni
þangað.
FLUG - 15