Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Side 20
NÝJUNGAR t GYROTÆKNI
(Þýtt xtr Shell Aviaíion News)
Gýrólögmálið var ekki hagnýtt fyrr en fyrir 40
árum, en gýróið sjálft var fyrst fundið upjj fyrir
réttum 100 árum. Hét sá Focault, er gerði upp-
götvunina, og notaði hana til útlistunar á snún-
ingi jarðar. Árum saman var litið á snælduna,
sem hafði óháða hreyfingu um þrjá ása, eins og
hvert annað furðuverk eða leikfang ,er ætti heima
á rannsóknastofum. Það var fyrst árið 1911, að dr.
E. A. Sperry notaði sér lögmálið, er hann fann upp
gyroáttavita, sem notaður var í gufuskipið Princess
Anne.
Síðan hefur gýróið verið fullkomnað og bætt, og
er nú svo komið, að það er ómissandi við stjórn
skipa, flugvéla, eldflauga o. fl. Sá eiginleiki gýrós,
sem gerir það svo mikils vert, er hæfni þess til að
mæla stefnu og magn utanaðkomandi afla. Eigin-
leiki þessi orsakast að sjálfsögðu af tilhneigingu
gýrós til að snúast um ás sinn án breytingar á stefnu
s
Myncl 1.
8'
hans. Sérhvert afl, sem leitast við að breyta stefnu
ássins, veldur því, er nefnist „stefnuvik" (precession),
eða hreyfingu gýrósins í átt, sem rnyndar rétt horn
við snúningsásinn og stefnu aflsins.
Gýróið er vélrænt tæki, sem snýst, og er því háð
áhrifum núningsmótstöðu og tregðu, og hefur sá
annmarki mjög takmarkað notagildi Jiess í hrað-
fleygum nútímaflugvélum. Ýmsar leiðir til að leysa
vandkvæði þessi hafa verið reyndar árum saman,
m. a. voru eitt sinn reyndar loftlegur (sbr. kúlu-
legur), og síðar var reynt að láta ásana liggja í vökva
til að minnka núningsmótstöðuna o. s. frv.
Nú virðist svo, að með því að nýta lögmál tón-
kvíslarinnar og „tifara“ húsflugunnar (og annarra
tvívængja flugna) sé gýróið að nokkru leyti úrelt.
Rannsóknir á hinum gýróskopisku eiginleik-
um tónkvíslarinnar hófust hjá Sperry Gyro-
scope Co. fyrir 15 árum, en þegar sú rannsókn hófst,
vissu vísindamenn ekki, að jafnvægistæki flugunn-
ar er nokkurskonar tónkvísl. J. W. Pringle í Cam-
bridge hefur rannsakað flugur og komizt að þeirri
niðurstöðu, að séu tifararnir fjarlægðir, eða þannig
um þá búið, að þeir geti ekki titrað, missi flugan
jafnvægið. Útreikningar sýna að efnismagn tifar-
anna er ekki einhlítt til að skapa jafnvægi, og hallast
menn að þeirri skoðun, að útlimir þessir séu skynjr-
unarfæri, sem sendi boð til vængjanna, á svipaðan
hátt og gýrótæki ílugvélanna stýra stjórnflötum
þeirra. Sperry notar tvíálma tónkvísl í núverandi
gerð Vibragýrós (stytting fyrir „Gyrotron Vibra-
tory Gyroscope“), mætti kallast sveiflugýró, og
hefur þetta nýja lögmál verið hagnýtt af honum
með Gyrotron snúingshraðamæli, sem er áhald
til að mæla stefnubreytingar, miðað við ákveðna
stefnu í geimnum.1) Fræðilegar forsendur þessa mæli-
tækis eru skýrðar í ritgerð eftir Barnaby, Chatter-
ton og Gerring, er nefnist „General Theory and
Operational Characteristics of the Gyrotron Angu-
lar Rate Tachometer", og birtist í tímaritinu Aeron-
autical Engineering Review í nóvember 1953. í sama
tölublaði tímaritsins er ritgerð eftir Josep Lvman,
1) Sbr. gyró áttavita.
18
FLUG