Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Qupperneq 26

Flug : tímarit um flugmál - 01.07.1955, Qupperneq 26
ÍSLANB FYMIM STAFNI í hinni ágætu bók sinni „High Failure", sem Grierson skrifaði um ilugferð sína vestur um haf árið 1933 í lítilli de Havilland flugvél, segist hon- um m. a. svo frá um áfangann Færeyjar—ísland: — Til hafsins var loft ennþá alskýjað, en skýja- hæðin hækkaði upp í 3000 fet, og veðrið virtist fara batnandi. Hálftíma síðar var kominn rigningarúði, sem jókst jafnt og þétt, og skýin fóru lækkandi. Rigningin stóð þó aðeins yfir í 20 mínútur, en ég varð samt að fljúga í 500 feta hæð vegna skýjanna. Aftur tók að rigna og skýin að lækka enn meir, náði þokuslæðingurinn niður undir sjávarflöt. Var ekki annað sýnna, en að ég mundi þurfa að fljúga í þoku innan stundar. Regnið jókst, síðan stytti upp, þá regn aftur, síðan uppstytta, þannig gekk það á víxl með tæprar mínútu millibili. Framund- an virtust skýin nú vera lægra en áður, og þar sem ég bjóst við að þurfa að lækka flugið niður fyrir 100 fet, dró ég inn drag-loftnetið. Ég ætla að láta leiðarbókina taka hér við sögu og lýsa nokkrum af æsilegustu augnablikum ævi minnar, en þar getur að líta: 11,45: Skyggni slæmt, skýjað, loftnet dregið inn, ský ekki eins lágt og búizt við. 11,50: Hreyfill tapar gangi á einum strokkanna, 1700 snúningar hámark, flughraði 65 hnút- ar, regn minna núna. 11,55: Hreyfill gengur aftur eðlilega, flughraði aft- ur 75 hnútar, 1 strokkur bilaður aftur kl. 11,58, eðlilegur aftur kl. 12,00, snúnings- hraði minnkaður í 1750. 12,10: Rigning, lélegt skyggni. 12,11: Stefna 299°. Þegar hreyfillinn byrjaði fyrst að ganga óeðli- lega, datt mér í hug að lenda á sjónum til að gera við hann. En ég sá strax, að sjórinn var alltof úf- inn fyrir jafnvel stóran flugbát að freista lending- ar, hvað þá litla 85 hestafla sjóflugvél. Ef ég hefði komið auga á nærstatt skip, hefði ég reynt að nauð- lenda við hlið þess og synda að því, því að svo aug- ljóst virtist að hreyfillinn, sem með naumindum hélt ofhlaðinni vélinni á lofti með þremur skjálfandi strokkum, væri um það bil að láta sig algerlega. Ég mun aldrei gleyma taugaæsingi mínum, er ég starði á hæðarmælinn, þar sem við börðumst áfram, til að fylgjast með, livort við gætum lialdið hæð, eða —-----. Til íslands voru ennþá 200 mílur, og svo erfitt, sem mér mundi reynast að finna Færeyjar aftur, ákvað ég að snúa ekki við. Hreyfillinn komst í lag af og til á sama leyndardómsfulla háttinn og hann byrjaði að ganga óreglulega. Ég vissi aldrei, hvort það mundi endurtaka sig. í þrjár klukku- stundir enn sat ég og beið þess að sjá þá sjón, sem gleður úthafs-flugmanninn öllu fremur — land. Allan þennan tíma þurfti ég að halda um benzín- gjöfina og auka við hreyfilinn til þess að viðhalda nauðsynlegum lágmarkshraða. Eftir þetta gekk hreyfillinn snurðulaust, en missti smám saman mátt, þar til tveim tímum síðar að hann virtist hristast og ná aftur fullri orku. Ég fann ekki til, hve blaut- ur ég var og líðan mín ill, með allar taugar spennt- ar af hinum mikla hugaræsingi. Jafnvel eftir að ég eygði dimm eldfjöll íslands í gegnum regnið, eins og vinalega útverði, var líkast því sem ég ætlaði aldrei að ná ströndinni vegna mótvinds, sem þeytti hvítum öldutoppunum í ofsafengið særok. Þegar ég náði loksins að ströndinni, breyttist allt. Ég þakkaði Guði, taugaspenningurinn dvínaði og ég söng af gleði yfir því að vera á lífi —. ,Mér er sama þó þú hafir ekki lokið við að mála hana, ég eetla mér að komast einu sinni á loft i flugvél, sem ekki er orðin urelt,þegar hún kemur út úrverksmiðjunni." 24 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.