Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1942, Side 9
I. Breytingar á löggjöfinni
um alþýðutryggingar og lífeyrissjóð
opinberra starfsmanna.
A. Lög um alþýðutryggingar.
Frá 1. janúar 1944 falla úr gildi I.—III. kafli (1.—45. gr.) laga nr.
74 31. des. 1937, um alþýðutryggingar, 3.—15. gr. laga nr. 92 1940, a-,
h- og' e-Iiðir 1. greinar og 2. gr. laga nr. 56 1941, lög nr. 94 1942 og lög
nr. 53 1943, en frá saina tírna koma i gildi eftirfarandi ákvæði.
/. kafli. Almenn ákvæfíi.
1- gr. —- Alþýðutryggingar teljast samkvæmt lögum þessum:
1. Slysatryggingar.
2. Sjúkratryggingar.
3. Elli- og örorkutryggingar.
4. Atvinnuleysistryggingar.
2. gr. — Stofnun sú, er annast tryg'gingarnar, heitir Tryggingastofn-
un ríkisins. Þegar tryggingarnar koma til framkvæmda, verða þær, hver
um sig, sjálfstæð deild í Tryggingastofnuninni og hafa þar aðskilinn
ljárhag. Engin deildanna ber ábyrgð á skuldbindingum annarrar.
3. gr. — Tryggingastofnun ríkisins hefur heimili og varnarþing i
Reykjavík, en umboðsmenn annars staðar þar, sem þörf krefur.
4. gr. — Ríkisstjórnin hefur vfirumsjón með starfseini Trygginga-
stofnunar rikisins og setur reglugerðir eftir lögum þessum.
5. gr. — Heimilt er að fela Tryggingastofnun ríkisins framkvæmda-
stjórn skyldra opinberra stofnana, svo sem Samábyrgðar íslands, sbr.
!ög nr. 23 1921, og Brunabótafélags íslands, sbr. lög nr. 73 4. júli 1942.
Skal hver stofnun hafa sérskilinn fjárhag, og fer að öðru leyti um stjórn
þeirra eftir því, sem ákveðið er í lögum þeirra og reglugerðum.
6. gr. — Ráðherra ræður forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins.
Hann ræður og deildarstjóra, eftir því sem þörf krefur, svo og yfirlækni
Tryggingastofnunarinnar og tryggingafræðing, ef forstjóri eða deildar-
stjórar eru það ekki, að fengnum tillögum forstjórans. Fela má sama
deildarstjóra forstöðu fleiri en einnar deildar. Forstjórinn stjórnar
stofnuninni í samræmi við lög, reglugerðir og erindisbréf, er honum
verður sett. Hann afgreiðir mál í samráði við hlutaðeigandi deildar-
stjóra, en ber sjálfur áhyrgð á ákvörðnnum og úr.skurðum.