Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 6

Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 6
‘20 HEIMILI OG SKÓLI þennan hátt. Líkamleg mök ungl- ingspilta við stúlkur hafa yfirleitt vond áhrif á sálarlíf þeirra, auk hinna alvarlegu afleiðinga, sem þau geta haft. Pilturinn er þannig gerður, að á þessum árum er honum eðlileg- ast að láta sér nægja reykinn af rétt- unum. Svo heit og þjáningarfull sem ást unglingsins er, er hér sjaldnast um varanlega ást að ræða, a. m- k. sjaldan þegar piltar eiga í hlut. En stúlkur eru miklu meira bráðþroska að þessu leyti. — Það er eins og ungl- ingsástin eigi ekki að fá svölun eða fullnægingu. En hún gegnir samt miklu hlutverki: að halda unglingn- um hreinum líkamlega. Ástadraum- amir hafa því sinn tilgang. Skoðanir unglings eru venjulega öfgakenndar, og að þessu leyti er hann í andstöðu við fullorðna fólkið, sem hefir yfirleitt tamið sér meira hóf. Ríður því á, að foreldrar og kennarar sýni unglingnum fullan skilning og fordæmi hann ekki né út- skúfi honum sakir stundaröfga hans. í stjórnmálum er unglingurinn t. d. vís til að hallast að róttækum stefn- um, einkum þeim, sem hafa á sér hugsjónablæ. Oft myndar unglingur- inn sér andstæður stjórnmálaskoðan- ir við þær, sem foreldrarnir hafa. Yf- irleitt er mjög óhyggilegt af fullorðn- um að vilja beygja unglinginn með offorsi eða kappræðum til að aðhyll- ast skoðanir sínar. Það herðir ungl- inginn venjulega í andstöðunni og gerir aðeins illt verra. Um trúmál er þessu líkt farið. Trúarskoðanir þær, sem unglingurinn myndar sér, eru oft andstæðar trúarskoðunum for- eldranna. Ef foreldrarnir eru t. d. trú- arofstækismenn, er unglingurinn vís til að varpa skoðunum þeirra fyrir borð og gerast trúleysingi. Það er þó ekki einungis þessi innri ólga og jafnvægisleysi, sem veldur unglingnum örðugleikum, heldur og hitt, að hann þarf að laga sig að fé- lagslífinu á miklu víðtækari hátt en áður. Ný verksvið og viðfangsefni bíða hans. Hann verður á þessum ár- um að taka hinar mikilvægustu ákvarðanir um framtíðina, t. d. varð- andi stöðuval sitt. Af þessu er ljóst, að uppeldi ungl- inga verður að haga á annan veg en uppeldi bama fyrir kynþroskaskeið- ið. Það er að mörgu leyti vandfarnara með unglinginn en barnið. Foreldr- um hættir hér einkum við tvenns konar andstæðum öfgum, sem báðar eru jafn skaðsamlegar: Sumir sleppa algerlega beizlinu af unglingnum, láta hann hafa ótakmarkað frjáls- ræði, en gæta þess ekki, að hann kann enn ekki með það að fara og það verður honum oft að fótakefli. Aðrir taka ekkert tillit til hinna breyttu þarfa unglingsins og viðleitni hans til að verða sjálfstæð persóna, en beygja hann miskunnarlaust und- ir vilja sinn og sérvizku í öllu. Hið vandrataða meðalhóf er bezt hér sem endranær. Unglingurinn þarfn- ast aukinst sjálfræðis eftir því sem hann eldist og þroskast, en hann þarfnast líka aðhalds og vingjarn- legrar handleiðslu. Þessi handleiðsla foreldranna verður að vera ósýnileg,

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.