Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 25

Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 25
HEIMILI OG SKÓLI 39 úr fjölda hljóða. Þau læra ekki ein- stök hljóð, sem þau síðan setja sam- an, heldur orðin heil, sem þau síðan skipa í setningar. Eg vil þó engan hvetja til þess að nota þessa aðferð við lestur. Það er mikill vandi að kenna hana, og hún hefir líka galla. Kennsluaðferðir eru ekki aðalatriði, heldur sú alúð og þrautseigja, ná- kvæmni og þolinmæði, sem nauðsyn- leg er við allt byrjunarnám, og krefj- ast verður af kennara. Það er ekki nóg að kunna það sem kennt er. Það verður að sýna skilning á námsefn- inu, skilja nemendurna og bera virðingu fyrir hvorutveggja. Það, sem sagt verður um lesturinn hér á eftir, á við stöfunaraðferðina. Þó að sumt af því geti einnig átt við aðrar aðferðir. Oft er um það spurt á hvaða aldri börnin eigi að byrja að þekkja staf- ina og fara að lesa. Það er ekki hægt að gefa fastar reglur um aldurstak- mark, því að þroski barna er mjög misjafn á sama aldursstigi, en hann skiptir mestu máli og eftir honum verður oftast að fara. Þó er ýmislegt það í fari og störfum barna, sem gef- ur til kynna, að það hafi náð þeim þroska og skal getið hér nokkurra at- riða- 1. Barnið hefir gaman af að at- huga myndabækur, spyrja um stafi í bókum, auglýsingaspjöldum o. fl. 2. Barnið hlustar með áhuga, þeg- ar kvæði eða sögur eru lesnar fyrir það. 3. Bamið hlýðir fyrirskipunum. 4. Bamið getur hjálparlaust rifjað upp fyrir sér og öðmm reynslu sína og endursagt sögur. 5. Barnið sér líkingu og mismun forma, greinir t. d. hring frá ferhyrn- ingi og þríhyrningi. Mamma, nú kann ég að lesa! 6. Barnið heyrir líkingu og mis- mun hljóða. 7. Barnið hefir ráð á allgóðum orðaforða til að láta í ljós hugsanir sínar. 8. Barnið getur sagt skipulega frá og haldið þræði hugsunar. 9. Barnið getur leikið sér og unnið með öðrum. 10. Barnið hefir réttar hugmyndir um algenga hluti, sem það sér dag- lega og heyrir talað um. Öllum þessum atriðum þarf barn- ið helzt að fullnægja, áður en það fer að stafa eða lesa. Þó getur verið undantekning frá því, ef um mjög seinþroska börn er að ræða, og þarf

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.