Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 10

Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 10
24 HEIMILI OG SKÓLI Séra Páll Þorleitsson prestur að Skirmastað: Vetur í augum — eða vor Fyrir nokkru las ég í tíma- riti einu orð, sem höfð voru eftir mennt- aðri, amerískri konu- — Þau áttu að sýna lífsviðhorf hennar, og að mér skildist ýmsra annara kvenna nútímans. Kona þessi gaf þær upplýsingar, að hún væri háskólagengin, gift manni með mikil árslaun, og gæða lífsins gæti hún notið í ríkum mæli. En þrátt fyrir það kvaðst hún líta biksvörtum augum á tilveruna. Hún segist ekkert afkvæmi hafa eignast og ekki undir nokkrum kringumstæð- um vilja eignast það, því að í fyrsta lagi hafi hún ekkert yndi af börnum, og í öðru lagi myndi barn skapa henni of miklar áhyggjur. Og hún spyr: — Hví eigum við konur að fæða af okkur börn fyrir þessa bölvuðu til- veru? — Mannkynið á að keppa að því að slokkna með öllu út. Það á að afmá sjálft sig af þessari jörð, því að lífið er án vona og án tilgangs. Við lestur þessara dapurlegu um- mæla komu mér ósjálfrátt í hug orð, sem Matthías Jochumsson leggur í munn móður sinni í ógleymanlegu er- indi. Frammi fyrir litlu kertaljósi er hún að opna sonum sínum sýn inn í leyndardóm jólanna og guðs og segir: „Þessa hátíð gefur okkur guð, guð hann skapar allan lífsfögnuð, án hans náðar engin sprytti rós, án hans náðar dæi sérhvert ljós“. Hún er ólík lífsskoðun þessara tveggja kvenna. Onnur er borin í landi glómálma og á allt, sem hægt er að kaupa fyrir fé. Hún situr við brunn allsnægta, en bannfærir þó hið gjöfula líf. Hún hatar börn sín áður en þau fæðast,og þylur buslubæn yfir þeirri jörð, sem elur allt líf við brjóst sér. Skoðanir hennar og viðhorf sýna hve óendanlega ormsmogið líf þeirra manna er, sem ekki vermist yl neinn- ar trúar á háleitari tilgang tilverunn- ar. Þrátt fyrir gnægð alls, skortir þá hið eina nauðsynlega, frið í eigin sál og innri hamingju- Orð hinnar hátt settu, amerísku konu láta í eyrum sem ömurlegt gnauð vinda, innan frá einhverri regin ísauðn friðleysisins. í augum hennar er ægilegur vetur, í svip hennar dauði. Nemum svo staðar við hlið hinn- ar konunnar, sem flytur boðskapinn um lífsfögnuð og æðra ljós. Sú kona er íslenzk og heyrir fyrri tíma til. Hún er fátæk, býr í lágreist- um bæ, ann sér engrar hvíldar. Margt gæti bent til, að einmitt hún sæi fyrst

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.