Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 21

Heimili og skóli - 01.06.1942, Blaðsíða 21
HEIMILI OG SKÓLI 35 Hannes J. Magnússon: »Kross er undir og ofan á« Mér hefir alltaf þótt hún falleg þjóðsagan um álfkonurnar tvær, sem komu að ungbami í vöggu til að taka það í skiptum fyrir annað álfabarn, en urðu frá að hverfa með þessum orðum: „Ekki má því mein er á, kross er undir og ofan á, en tvævetlingur situr hjá og segir frá“. Móðirin hafði orðið að hverfa frá hvítvoðungnum, og skilja hann eftir hjá tvævetra barni, en áður en hún fór markaði hún kross bæði undir barninu og ofan á því. Þessi fallega þjóðsaga leiðir hug- ann að þúsundum mæðra, sem setið hafa við vöggu kynslóðanna og markað hinn blessandi og vernandi þess að sjá mig aftur á þínu reki lifa, vona, leita, elska og villast". Ungu vinir! En þótt þér villist ein- hvern tíma á æfinni, þá ræð ég yður til þess að fara ekki að eins og maður, sem villist, gengur sig þreyttan, leggst fyrir uppgefinn og tæmdur þrótti, sofnar og deyr. Heldur skulu þér fara að eins og maður, sem villist, og þegar hann veit um villu sína, þá sezt hann að áður en þrótt hans þrýtur og bíður þar til birtir og hann áttar sig og kemst aftur á rétta leið. . . . kross yfir framtíð þeirra. Signingarn- ar gömlu, kvölds og morgna, sem mörg börn þekkja nú ekki lengur, voru þjóðlegur menningararfur frá þessum mæðrum, sem við höfum notið fram á síðustu tíma. Það fólst í þeim eitthvert öryggi, er gjörði mönnum léttara að ganga til hlut- verka sinna út í daginn. Þær voru hin síðasta athöfn dagsins, sem gaf innri frið og ró. Þessi saga leiðir hugann að því hyldýpi ástar og umhyggju íslenzkra mæðra, sem allir hinir verðmætustu uppeldislegu fjársjóðir eru dregnir úr, og hamingjan hjálpi íslenzkri þjóð og íslenzkri menningu, ef að því skyldi koma, að konurnar teldu sig eiga eitt- hvert æðra hlutverk en að ala upp syni og dætur þjóðar sinnar. I djúpri kyrrð hins íslenzka sveita- lífs sjáum vér þúsundir mæðra, ríkar og fátækar, sitja við vöggu barna sinna og koma þeim í værð. Þetta var þeim heilög skylda, og er enn. Það liggur við að okkur, þegnum hins hávaðasama, friðlausa nútíma, finnist þetta helgar stundir og heilög jörð, sem þarna ber fyrir. En í þessari djúpu kyrrð greri þróttmikill gróður, þótt hið ytra ríkti íslenzkur fimbul- vetur. I þessari kyrrð, í þessum litlu, friðsælu ríkjum réðust örlögin. Loks nemur hugurinn staðar við okkur nútímalíf, og í þetta sinn að-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.