Heimili og skóli - 01.08.1944, Page 3
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
3. árgangur. Júlí—Ágúst. 4. heíti.
Snorri Sigfússon, skólastj., sextugur.
Hinn 31. ágúst n.k.
verður Snorri Sigfús-
son, skólastj. á Akur-
eyri, sextugur. Marg-
ur myndi þó ætla
hann yngri, svo mikið
á hann enn eftir af
eldi æskunnar, rösk-
leika hennar og glað-
værð, en kirkjubæk-
urnar verða víst ekki
véfengdar, og því
dæmist rétt vera, að
Snorri eigi nú að baki
sex tugi ára.
Hann er fæddur að
Brekku í Svarfaðardal
31. ágúst árið 1884,
en fluttist skömmu
síðar með foreldrum
sínum að Grund í
sömu sveit. Þar missti
hann báða foreldra
sína með stuttu milli-
bili, þá rúmlega 10 ára
gamall.
Snorri er af góðu
bergi brotinn. Sigfús
faðir hans var í móð-
urætt kominn af hinni
svonefndu Krossaætt,