Heimili og skóli - 01.08.1944, Qupperneq 18
64
HEIMILI OG SKÓLI
stækka þennan skóla um helming, og verða
þar þá hin prýðilegustu húsakynni. Þá hef-
ur verið byggt við skólann eitt hið vandað-
asta og fullkomnasta fimleikahús hér á
landi utan Reykjavíkur, og loks er svo verið
að byggja yfirbyggða sundlaug við skólann,
sem fullgjörð mun á næsta ári. Allt verður
þetta ein bygging, skólinn, íþróttahúsið og
sundlaugin, og öllu þar mjög haganlega fyrir
komið. Þegar bygging þessi verður fullgjör,
verður ef til vill nánar sagt frá henni hér í
ritinu.
Eiður Albertsson, skólastjóri og oddviti,
hefur sýnt mikinn dugnað við að koma
þessum byggingum upp, en þorpsbúar virð-
ast fylgja honum þarna að málum og hafa
verið ósparir á fjarframlög til bygginganna
með samskotum og fleiru.
Bréfriturum þakkað.
Eg hef fengið allmörg bréf frá ýmsum
kaupendum Heimilis og skóla, sem mest-
megnis eru þakkir fyrir ýmislegt, er birzt
hefur í ritinu. Eg þakka öllum þessum bréf-
riturum, bæði þeim, sem skrifað hafa undir
nafni og hinum, sem sent hafa nafnlaus
þakkarbréf. Slík vinsemd er ritinu og mér
mikils virði.
Einn spyr, hvort ekki sé unnt að stækka
ritið, segir að margur myndi glaður greiða
hærra verð fyrir það, ef það gæti flutt
meira lesmál um uppeldismál, mál heimila
og skóla. Það er von okkar, sem að þessari
útgáfu stöndum, að ritið geti stækkað mjög
fljótlega, og þar með fengið möguleika til
að gegna hlutverki sínu betur en áður, en
hvort það verður um næstu áramót, eða síð-
ar, er ekki hægt að segja að sinni. En vel-
unnarar ritsins gætu flýtt fyrir þessari
stækkun með því að útvega ritinu, þótt
ekki væri nema 2 eða 3 kaupendur. Safn-
ast þegar saman kemur.
Annar spyr, hvort ekki myndi heppilegt
og vinsælt að hafa sérstakan foreldraþátt í
ritinu, þar sem foreldrar kæmu fram með
áhugamál sín og vandamál. Jú, vissulega, og
ég hef einmitt oft óskað að fá stutta þætti
frá þeim, og ég óska þess enn. Mér er
ánægja að birta slíka smá þætti, að svo
miklu leyti, sem rúmið leyfir.
Nýr fræðslumálastjóri.
Sú breyting hefur orðið á yfirstjórn
fræðslumálanna að séra Jakob Kristinsson
hefur sagt af sér embætti fræðslumálastjóra
frá 1. ágúst þ. ár, en við því hefur tekið frá
sama tíma Helgi Elíasson, sem verið hefur
fulltrúi á fræðslumálaskrifstofunni um langt
skeið og nokkrum sinnum settur fræðslu-
málastjóri.
Um leið og Heimili og skóla þakkar séra
Jakobi Kristinssyni fyrir ágætt starf á und-
anförnum árum og ámar þessum mikla
mannkostamanni alls góðs í framtíðinni,
býður ritið hinn unga og nýja fræðslumála-
stjóra velkominn til starfs í hinn mikla vín-
garð uppeldis- og fræðslumálanna. Hann er
íslenzkum barnakénnurum kunnur að góðu
einu, og munu þeir því hyggja gott til sam-
starfs við hann eigi síður en fyrirrennara
hans.
Fyrr og nú..........
...... En svo mikill voði, sem gæfu
vorri, já tilveru vorri, hefur stafað af efnis-
hyggjunni, þá hefur þó fávitadýrkun kyn-
hvatarinnar verið langtum meiri skaðvald-
ur heima fyrir. Aður fyrr réðu foreldrarnir
því, hverjir skyldu eigast, og það var sjálf-
sagt, að sambándið skyldi vera ævilangt.
Þetta finnst oss nú einber villimennska. En
hver dirfist að segja, að þessi vandamál hafi
nú fengið lánlegri lausn? Þegar þessir nýju
hættir voru innleiddir, átti takmark þeirra
að vera hamingja einstaklingsins, og óham-
ingja einstaklingsins hefði ekki getað orðið
meiri. Aður fyrr var talað um óhamingju í
ástum. Astin er afnumin og óhamingjan er
ein eftir......
(Kaj Munk: Við Babylonsfljót).
Hræðið litlu börnin aldrei til að hafa þau
góð, það getur haft hinar alvarlegustu af-
leiðingar fyrir sálarlíf þeirra.
Prentverk Odds Björnssonar 1944.