Heimili og skóli - 01.08.1944, Qupperneq 11

Heimili og skóli - 01.08.1944, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKÓLI 57 EIRÍKUR SIGURÐSSON: Lífskjör og uppeldi. Flest þekkjum við einhverja menn, sem vegna féleysis, eða einhverra erfið- leika gátu ekki í æsku búið sig undir það starf, er hugur þeirra stóð til. Af þessu hefur leitt, að þeir hafa orðið að stunda atvinnu, sem þeim hefur ekki verið hjartfólgin, jafnvel þótt sumir hafi verið það vel settir að geta unnið eitthvað að áhugamálum sínum í tóm- stundum. En nú er það markmið alls uppeld- is, að hver þegna fái notið hæfileika sinna sem bezt í lífinu. í stuttu máli miðar allt uppeldi að því, að hver ein- staklingur geti náð þeim þroska, sem hæfileikar hans benda til. Þetta er sá viðurkenndi lýðræðisgrundvöllur alls uppeldis. Maðurinn sjálfur er þar markmiðið, en ekki neinar stefnur eða flokkar í þjóðfélaginu. En þessu hefur stundum verið snúið við. Það hefur m. a. átt sér stað í einræðisríkj- unum, og fullyrða kunnugir, að eftir stríðið verði að gerbreyta þar öllum uppeldismálum, og varlega megi reikna með núverandi kynslóð þessara landa við uppbyggingastarfið, vegna þess einhæfa uppeldis, sem liún hefur fengið við þjóðrembingsanda og hern- aðarbrjálæði. í framtíðinni þurfi að ala upp frjálsa menn, en ekki ríkis- eða flokksþræla. En það var ekki upeldi almennt, sem ég ætlaði að gera að umtalsefni, heldur aðeins einn þáttur þess: áhrif mismunandi lífskjara á uppeldi barna á skólaaldri. Við kennarar, sem tökum við börn- um frá ólíkum heimilum, verðum á margan hátt varir við, hvernig heimili og lífskjör þau búa við. Og ég álít að lífskjörin hafi oft örlagaríkar afleið- ingar fyrir fjölda barna. Fátæktin og umkomuleysið setur enn svip sinn á þau og tefur fyrir þroska þeirra. Sumir fullyrða, að hér á landi líði engir fyrir fátækt, og flestir hafi svip- að handa á milli. Þessu vil ég svara með eftirfarandi dæmi. Árið 1934 höfðu 55% íbúa Reykja- víkur aðeins 17% af heildartekjum bæjaibúa, en 45% íbúanna höfðu 83% teknanna. Verið getur, að þessi munur sé eitthvað minni í öðrum bæj- um, en þessar tölur sýna jrað samt, að heildartekjur manna eru mjög mis- jafnar. Það skapar ólík lífskjör og kemur fram í uppeldi barnanna. En þess skal þó getið, að þessi síðustu ár virðast lífskjör fólks yfirleitt hafa ver- ið jafnari og betri en nokkru sinni áð- ur í sögu þjóðarinnar. Nú má enginn skilja Jjað svo, sem ég segi hér á eftir, að ég álíti lífskjörin eina mælikvarðann á uppeldi barna. Þar kemur fjölmargt fleira til greina, t. d. foreldrarnir, umhverfi, andleg viðliorf o. fl. Eg ræði aðeins um lífs- kjörin, sem einn þátt, er áhrif hefur á uppeldi barnsins. í stórum dráttum má skipta heimil-

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.