Heimili og skóli - 01.12.1944, Side 10
86
HEIMILI OG SKÓLI
Séra Benjamin Kristjánsson:
Leyfið börnunum að koma til mín!
Nokkrar athugasemdir um trúarlegt uppekli barna.
Flutt á fundi presta og kennara á Akurevri, 10. september 1944.
„Leyfið börnunum að koma
til rnin og bannið þeirn það
eigi, því að slikra er guðsríkið.
Sannlega segi ég yður: Hver,
sem ekki meðtekur guðsríkið
eins og barn, mun alls ekki inn
i það koma. — Mark. 10, 13.
Öll könnumst vér við þessi orð. Þau
eru höfð yfir við liverja barnsskírn.
En mér er nærri að halda, að orðin séu
oss ofkunnug til þess, að vér höfum
nokkru sinni hugsað um það með al-
vöru, hversu mikilvægan sannleika
þau hafa að geyma. En orðin þýða í
stuttu máli þetta: Ef barninu er ekki
innrætt rétt trú og holl lífsskoðun þeg-
ar í bernsku, og þar með lagðár undir-
stöður að persónulegum þroska þess,
þá er hætt við, að barnið bíði þess aldr-
ei bætur í lífinu, það verði ófarsælt
alla sína æfi.
Það mun að vísu vera frumhugsun
allra foreldra, sem ekki láta fram-
kvæma skírnina einungis af vanafestu
sem arfgengan sið, að ekki skaði það
a. m. k., að börnunum séu innrættar
á unga aldri kenningar Krists. En þó
munn nú vera að verða skiptar skoð-
anir um, Jiversu áríðandi þetta sé. Á
ég liér ekki einungis við þá, sem bein-
línis Jjanna börnunum að koma til
Krists, þ. e. vilja ltvorki láta skíra þau
né kenna þeim kristindóm. Kemur
þar til greina fullkomin andúð á
kristindómi. Foreldrarnir livorki
skilja né vita iíetur, en að þau séu að
forða barninu sínu frá trúarbrögðum,
sem þau telja úrelt eða siðspillandi. Sé
liér um lífsskoðun að ræða, sem
grundvölluð er á Jjeztu vitund hlut-
aðeiganda, er ekkert annað um þetta
að segja en að eftir er að vinna þetta
fólk yfir til kristindóms. Ætla ég ekki
að snúa máli mínu til þess fyrst og
fremst.
En það eru aðrir, sem þykjast vera
frjálslyndir kristnir menn. Frá þeim
lieyrast iðulega röksemdir eins og
þessar: Við viljum ekki fara að fylJa
Jiuga Jiarnsins okkar, meðan það er
ungt, með alls konar trúarkreddum,
sem það Jiefur engan þroska til að
skilja. Það á að láta hvern einstakling
þroskast eftir sínum eigin lögum, og
skal fiver maður kjósa sínar lífsskoð-
anir sjálfur, er liann kemst til vits og
ára. Kristindómurinn er sjálfsagt góð
ur. En það er hættulegt að þrýsta lion-
um inn í varnarlausa barnssálina. —
Hvers vegna ættum við, með foreldra-
valdi, að fara að berjast við að móta
barnssálirnar eftir okkar eigin hug-
myndum? Látum barnið, a. m. k. í
trúarsökum, velja sjálft sínar lífsskoð-
anir, þegar það fær aldur og þroska.
Eg lield, að það fari ekki fjarri lagi,
að margir foreldrar og barnakennarar,