Heimili og skóli - 01.12.1944, Side 19
HEIMILI OG SKÓLI
95
Eiríkur Sigurðsson:
Vizkusteinninn og eilifðarklukkurnar
- BROT -
Verksvið flestra skóla er tvíþætt.
Annars vegar það að glæða skilning
og anka þekkingu, og hins vegar að
hjálpa hverjum einstaklingi að byggja
upp sína eigin skapgerð með uppeldis-
legum áhrifum. Fyrra atriðið mun þó
vera aðalviðfangsefnið í flestum ís-
lenzkum skólum. Varla leikur þó á
tveim tungum, að síðara atriðið er
mjög mikilvægt, bæði fyrir einstak-
linginn og þjóðfélagið.
En ekki er fyrir það að synja, að
bæði þessi sjónarmið geti farið saman.
Börn og unglingar, sem glíma við að
skifja og tileinka sér hinar ýmsu fræði-
greinar, geta stundum notað þær við
uppbyggingu eigin skapgerðar. Og
þroski sá og leikni, sem vinnst við
skólastörfin, verður ævarandi eign
hvers einstaklings, án tillits til þess,
Iivort þekkingin er liagnýt eða eigi.
Leitin að vizkusteininum er eitt af
aðalsmerkjum mannssálarinnar.
Danskur rithöfundur, Anker Lar-
sen að nafni, hefur í merkri skáldsögu
sem ber nafnið „Vizkusteinninn",
skýrt frá, hvar vizkusteininn er að
finna. Hann segir:
„Vizkusteinninn er merkisteinn við
þjóðveginn.
Og ef þið viljið vita, hver þeirra það
er, þá er það — sá næsti —.
staðar, munu nú allir ánægðir með
þessa framkvæmd, og nýlega tjáði einn
ráðamaður hreppsins mér það, að luin
hefði reynzt hreppnum fjárhagslega
léttbær, enda konrst hann að hag-
kvæmum samningum við kvenfélagið
siglfirzka.
Þessi tvö nýbyggðu skólaheimili í
sveitum, sem nefntl liafa verið, eru
gleðilegur vottur um vaxandi skilning
:á því, að farskólahaldið, sem enn er
víðast hvar drottnandi í sveitunum,
er með öllu óviðunandi til frambúðar.
Víða er orðið mjög erfitt með húsa-
kost, og öll aðstaðan er víða hin aum-
asta, enda tolla sæmilegir kennarar
þar illa, en stöðug kennaraskipti eru
mjög óheppileg fyrir alla aðila. Þetta
þurfa allir að skilja og reyna úr að
bæta, og úrbótin mun alls staðar reyn-
ast sú eina skynsamlega, er Arskógs-
hreppur, Haganeshreppur og ýmsir
fleiri hreppar, einkum sunnanlands,
hafa þegar hrundið í framkvæmd, að
byggð séu skólaheimili á tilteknum
stöðum, og gangi þangað þau börn,
sem næst búa, en hin hafi þar heima-
vist. Framtíðin mun sýna og sanna,
að þetta fyrirkomulag er hið eina, sem
unandi er við í strjálbýlinu til fram-
búðar.