Heimili og skóli - 01.12.1944, Page 21

Heimili og skóli - 01.12.1944, Page 21
HEIMILI OG SKÓLI 97 Heimur framtíðarinnar. góði drengurinn, sem gekk með henni í skóla. Og í elli sinni dreymdi hana einu sinni draum. Sá draumur var á þessa Ieið: Þau voru bæði lítil börn og gengu í sama skóla. Þau voru að taka próf, og höfðu afhent kennaranum stílana sína. Stílsefnið var „Um lífið.“ Renn- arinn las fyrst yfir stíl Karls. Karl var rólegur á meðan, og María samgladd- ist lionum, því að þar var engin villa. Hver komma var á réttum sfað og engar stafavillur. En hversu undrandi urðu þau, er kennarinn ski ifaði undir stílinn með stórum stöfum: laklega. Karl afsakaði sig og sagði, að það væri engin villa. En kennarinn svaraði: ,,Nei, það er rétt. En þú hefur skrifað allt annan stíl en þú áttir að gera. Þú hefur byrj- að rétt, en síðan hefur þú horfið frá efninu. Þetta er hvorki fugi né fisk- ur.“ Því næst tók kennarinn stíl Maríu. Hún skalf af hræðslu. Þar var villa við villu. Hún sá, að flestar þeirra voru sökum Hjótfærni, — hún vissi, hvernig það átti að vera. Hún sá ekki einkunnina, en kennarinn sagði við hana: Allt of margar fljótfærnisvillur — en sjálft stílsefnið er rétt með farið. Þú hefur skilið það rétt.“ Listin, sem íslenzkir skólar þurfa að tenrja sér, er sú, að ætla bæði vizku- steininurn og eilífðarklukkunum hæfi- legt rúm í störfum sínum, svo að sem flestir íslenzkir unglingar læri þá erf- iðu þraut, að fara rétt með stílsefnið sitt „Um lifið.“

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.