Heimili og skóli - 01.12.1944, Síða 22

Heimili og skóli - 01.12.1944, Síða 22
98 HEIMILI OG SKÓLI HANNES J. MAGNÚSSON: Sólskinsblettir „Er ekki f jarska leiðinlegt og þreyt- ancíi að vera kennari?" Þetta er nokk- uð algeng spurning, sem lögð er fyrir okkur kennarana. Jú, það er oft þreyt- andi að vera kennari, en leiðinlegt rná það aldrei verða. Kennari, sem er orð- inn leiður á kennslustarfi, á helzt að fá sér annað starf. Vonbrigði og margs konar ósigrar verða oft hlutskipti kennarans, en sólskinsblettirnir eru líka óteljandi, og ætla ég hér að skýra frá einum af mörgum. Fyrir nokkrum árum var ég einn dag að hefja kennslu í smábarnabekk. Börnin voru komin í sæti sín og starf var að byrja. Þá stendur ein litla stúlk- an upp úr sæti sínu og gengur til mín fram að kennaraborðinu. Eg sé, aðhún heldur á einhverju í lófanum. Hún fer mjög hikandi, en kemst þó til mín, réttir mér litla böggulinn og hneigir sig kurteislega, en getur ekkert sagt. „Hvað er þetta?“ spyr ég vingjarn- lega. „Ég ætla að, gefa þér þetta,“ segir litla stúlkan feimnislega og roðnar. Ég tek bréfið utan af gjöfinni, það var ein, hvít töflukrít. „Hvar fékkstu þetta?“ spyr ég. „Ég keypti hana handa þér,“ svaraði litla stúlkan. Nú þurfti ég einskis að spyrja. Litla töflukrítin í lófa mínum, sem kostaði 5 aura í búðinni og er auk þess býsna hversdagslegur hlutur fyrir okkur kennarana, var orðin að konunglegri gjöf, því að ég fann, að henni fylgdi hjarta og vinátta þessarar litlu, sak- lausu stúlku. Mér fannst birta í stof- unni og birta í sál minni, og ég sá inn í heim, sem allt of oft er okkur kenn- urunum lokaður til hálfs. Ég sá snöggvast inn í heim hinna ungu sálna, þar sem eitthvað var að gróa, þrátt fyrir allt. Litla stúlkan opinberaði mér björtu hliðina á hinu hversdagslega skóla- starfi. Hún kom með sólskin inn í grá- an hversdagsleikann, hún sýndi mér, að skólastarfið er meira en strit við lé- legan lestur og ljóta skrift. Og það væri okkur öllum ómetanlegur styrk- ur í starfinu, ef við værum alltaf vef skyggn á þessa hlið og notuðum sól- skinsblettina til að sækja þangað styrk og bjartsýni, og sólskinsblettirnir eru margir. Látum þá ekki fara fram hjá okkur. Lýsi og gulrófur. Lýsis- og mjólkurgjafir hafa á síðari árurn verið teknar upp í nokkrum hinna stærri skóla hér á landi. og tók barnaskóli Akureyrar upp þann sið fyrstur allra íslenzkra skóla. En vegna vöntunar á heppilegum mjólkurílátum, hefur ekki ætíð verið hægt að gefa börnunum mjólk með lýsinu, og svo er nú háttað í barnaskóla Akureyrar í vetUr. En í stað mjólkur fá börnin- dálitla gulrófusneið, og virðist það ekki vera verr þegið en nýmjólkin. Síðan lýsisgjafir hófust í byrjun nóvembermánaðar, hafa börnin neytt að meðaltali 5—6 lítra af lýsi á degi hverjum, og ætti þeim að verða gott af þeim sopa.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.